Kanaríeyjar
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Einn af þeim fimm frönsku ríkisborgurum sem fluttir voru af MV Hondius, farþegaskipinu þar sem hantaveirusmit braust út, er sagður sýna sjúkdómseinkenni. Farþegarnir fimm hafa verið skikkaðir í einangrun. Erlent 10.5.2026 17:52
„Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ „Við höfum engar áhyggjur af þessu fyrir okkur. Því að þetta er það öruggt með skipið. Lífið heldur bara áfram sinn vanagang.“ Erlent 10.5.2026 13:12
Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skemmtiferðaskipið MV Hondius lagðist við höfn á Tenerife klukkan hálf sex í morgun og hafa fyrstu farþegar farið frá borði. Það hafði verið ágreiningur meðal yfirvalda allt fram á síðustu stundu um hvernig þetta ferli ætti að fara fram en höfnin var valin vegna þess hversu afskekkt hún er þrátt fyrir að vera nálægt flugvelli. Allir um borð skipsins hafa verið skimaðir og reyndust allir einkennalausir. Erlent 10.5.2026 08:58
Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar fullvissaði íbúa Tenerife um að hættan sem stafaði af skemmtiferðaskipinu MV Hondius sem leggur að landi þar á morgun eftir að hantaveira dró þar þrjá til bana, væri lítil og að enginn um borð sýndi einkenni. Erlent 9.5.2026 17:17
Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Hantaveirusmit sem upp kom um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius er ekki upphaf heimsfaraldurs, að sögn heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Heilbrigðisyfirvöld keppast nú við að rekja slóð fjölda fólks sem nýlega fór frá borði úr hollenska skipinu. Alls hafa þrír dáið vegna veirunnar og er talið að að minnsta kosti átta til viðbótar hafi smitast. Erlent 7.5.2026 20:34
Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Tugir farþega skemmtiferðaskipsins MV Hondius eru sagðir hafa farið frá borði á St. Helenu í Suður-Atlantshafi þó nokkrum dögum eftir að maður dó þar um borð. Sá hafði smitast af hantaveirunni en eiginkona hans dó skömmu síðar. Nú er mikið kapp lagt á að framkvæma smitrakningu í tengslum við þetta fólk. Erlent 7.5.2026 13:52
Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Þrír farþegar skemmtiferðaskipsins MV Hondius hafa verið fluttir á sjúkrahús í Hollandi, samkvæmt yfirmanni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Hantaveiran fór í dreifingu þar um borð á dögunum en þrír hafa látið lífið og að minnsta kosti fimm hafa veikst. Til stóð að sigla skipinu til Kanaríeyja en ekki hefur orðið að því enn, þar sem ráðamenn þar vilja ekki taka á móti skipinu. Erlent 6.5.2026 11:13
Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Áhöfn skemmtiferðaskipsins MV Hondius hefur fengið heimild til að sigla til hafnar á Kanaríeyjum, þótt enn sé óákveðið hvar skipið mun leggja að bryggju. Heilbrigðisráðuneyti Spánar segir að þegar þangað verði komið, verði áhöfn og farþegar skoðaðir, meðhöndlaðir og sendir heim í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina og Sóttvarnastofnun Evrópu. Erlent 6.5.2026 06:46
Hvað veistu um... Tenerife? Tenerife er stærsta eyjan í Kanaríeyjum og tilheyrir Spáni. Eyjan er þekkt fyrir hlýtt loftslag allt árið um kring, fallegar strendur og fjölbreytta náttúru sem gerir það að verkum að þetta er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna, ekki síst Íslendinga. Lífið 22.4.2026 20:03
Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Erling Ormar Vignisson og eiginkona hans, Dögg Gunnarsdóttir, telja að brotið hafi verið á farþegaréttindum þeirra þegar þeim var meinaður aðgangur að flugi með Neos sem þau keyptu hjá Heimsferðum og þeim boðið í staðinn að fljúga heim í gegnum London í næturflugi. Lög geri ráð fyrir að farþegar eigi að geta annaðhvort fengið endurgreitt eða sambærilega ferð í staðinn. Innlent 8.4.2026 22:31
Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Yfir 1.500 flugvallarstarfsmenn víða á Kanaríeyjum boða verkföll í kringum páskana eftir að kjaraviðræður vinnuveitenda og stéttarfélaga sigldu í strand. Verkföll á Tenerife Sur-flugvelli, sem flogið er til frá Íslandi, eru fyrirhuguð 28. og 29. mars og 2.-6. apríl. Erlent 26.3.2026 21:21
Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús þar sem hann er nú staddur á Tenerife. Ástæðan er sýking og vökvaskortur en að öðru leyti er ástand konungsins gott. Erlent 24.2.2026 22:03
Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Miðaeigandi Happdrættis Háskóla Íslands mun hafa verið í óðaönn að máta föt í verslun á Tenerife þegar starfsmaður happdrættisins hringdi til að tilkynna að hann hefði unnið eina milljón króna. Lífið 10.2.2026 21:09
Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Lögregluyfirvöld á Spáni hafa lagt hald á tæplega tíu tonn af kókaíni, sem voru falin innan um saltfarm flutningskips við Kanarí-eyjar. Erlent 13.1.2026 08:10
Fjölmenni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sólrúnu Diego að sjá Snyrtifræðingurinn Gurrý Jónsdóttir hélt upp á 35 ára afmæli sitt á Tenerife á laugardag og tróðu þar upp Ingó veðurguð, Prettyboitjokkó og Himpsumhaps. Fjöldi góðra gesta mætti en athygli vakti að áhrifavaldurinn Sólrún Diego, sem heldur úti hlaðvarpinu Spjallinu með Gurrýju og Línu Birgittu, mætti ekki. Lífið 12.1.2026 11:32
Fjórir látnir á Tenerife eftir að alda sópaði þeim úr saltvatnslaug Fjórir eru látnir og eins er saknað eftir að öflug alda sópaði fólki úr vinsælli saltvatnslaug á Tenerife á sunnudag og út á haf. Þrjú lík voru heimt úr sjónum en kona sem var bjargað lést á sjúkrahúsi í gær. Erlent 9.12.2025 07:10
Sögulegur dagur Í dag fögnum við merkum áfanga í samskiptum Íslands og Spánar við opnun sendiráðs Íslands í Madrid. Skoðun 1.12.2025 09:03
Katrín Halldóra snýr aftur til Tenerife Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir heldur til Tenerife í þrjár vikur eftir áramót eftir að hafa lýst því yfir að hún færi þangað aldrei aftur. Í þetta sinn er það þó í faglegum erindum. Lífið 22.11.2025 15:05
Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Þrír létu lífið og að minnsta kosti fimmtán slösuðust í risaöldum sem herjuðu á Tenerife í gær. Fjöldi ferðamanna hundsaði viðvörunarskilti vegna öldugangsins með þeim afleiðingum að sjógangurinn hreif þá með sér út í sjóinn. Erlent 9.11.2025 07:51
Hrakfarir á heimleið frá Tene: „Ferðumst innanlands á næstunni og engar jólagjafir í ár“ Eftir að hafa varið fúlgum fjár í nýja flugmiða til Tenerife eftir gjaldþrot Play eru parið Sóley Edda Karlsdóttir og Arnór Gauti Brynjólfsson komin heim úr góðu fríi á eyjunni vinsælu. Gjaldþrot flugfélagsins var ekki það eina sem setti strik í reikninginn, en á heimleiðinni varð röð atvika til þess að þau munu hugsa sig um tvisvar áður en næsta ferðalag verður bókað. Innlent 13.10.2025 22:16
Heimferðin frá Tenerife algjör martröð Hjón í Svarfaðardal segja farir sínar ekki sléttar eftir ferðalagið heim úr sólinni á Spáni. Eftir níu klukkustunda bið á flugvellinum á Tenerife sáu Norðanmenn rúmið í hyllingum þegar flugstjórinn tilkynnti um breytingar. Lent yrði á Keflavíkurflugvelli en boðið upp á rútuferðir norður. Innlent 13.10.2025 15:47
Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Einn farþega Play sem átti flug til Tenerife í morgun segist efast um að hún og fjölskyldan muni fara til Tene í bráð. Flugmiðar sem hún hafi skoðað í morgun hafi síðan þá hækkað um tugi þúsunda. Viðskipti innlent 29.9.2025 14:37
Klara Baldursdóttir er látin Klara Baldursdóttir, betur þekkt sem Klara á Klörubar, er látin. Hún var 74 ára að aldri. Hún lætur eftir sig tvo syni. Innlent 6.6.2025 23:24
Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Í dag var tilkynnt að í fyrsta sinn í sögu Tenerife eyju á Kanaríeyjum verði borað fyrir jarðhita til væntanlegrar orkuvinnslu og að boranir muni hefjast í haust. Íslendingar leiða verkefnið. Viðskipti innlent 23.5.2025 14:53
Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Um áttatíu þúsund hótelstarfsmenn á Tenerife og öðrum Kanaríeyjum eru í verkfalli. Íslendingur á eyjunni segir háværa mótmælendur standa fyrir utan flest hótelin. Erlent 17.4.2025 12:20
Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Talið er að um áttatíu þúsund hótelstarfsmenn séu í verkfalli á fjórum eyjum Kanaríeyja, þeirra á meðal Tenerife. Hópar starfsmanna í verkfalli mætti fyrir utan hótelin í mótmælaskyni. Erlent 17.4.2025 10:50
Háhyrningadans - hörmungar í Loro Parque Nýleg umfjöllun Vísis undir yfirskriftinni „Hann kann að dansa, maður minn!“ og „Höfrungar og háhyrningar að leik á Tenerife“ gefur tilefni til að minna fólk á dapurlegu tilveru þessa stórbrotnu dýra sem haldið er föngnum við óboðlegar aðstæður í dýragarðinum Loro Parque á Tenerife. Skoðun 2.3.2025 10:02
Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ „Frá því ég var 23 ára þá erum við Eva búin að stofna 10 fyrirtæki. Við erum búin að gera upp sjálfsagt einhverja 3500 fermetra á Íslandi og við vorum með líkamsræktarstöð, sjúkraþjálfun, veitingastað og fasteignafélag. Það var kominn tími til að bremsa sig aðeins af svo maður myndi nú ekki drepa sig á þessu,“ segir Davíð Kristinsson rafverktaki og lýsingarhönnuður sem flutti ásamt eiginkonu sinni Evu Ósk Elíasardóttur og þremur dætrum til Tenerife fyrir röskum tveimur árum. Lífið 26.2.2025 15:01
„Hann kann að dansa, maður minn!“ Það er eins gott að vera vel klæddur í vatnsheldum fötum þegar farið er á háhyrningasýningu á Tenerife því það skemmtilegasta sem háhyrningarnir gera er að skvetta vatni á áhorfendur. Þá kunna háhyrningar að dansa eins og Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður varð vitni að á dögunum. Lífið 26.2.2025 14:31
Tvö þúsund Íslendingar í hverri viku á Tenerife Um tvö þúsund Íslendingar eru staddir á Tenerife í hverri viku nú yfir vetrartímann og njóta þess að sleikja sólina með heimamönnum. Á síðasta ári heimsóttu um fimmtíu þúsund Íslendingar eyjuna en alls voru ferðamennirnir, sem sóttu Tenerife það ár um sjö milljónir talsins. Innlent 18.2.2025 21:37