
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna

„Þær eiga ekki eftir að koma okkur á óvart“
Kvennalið Blika á fyrir höndum mikilvægan Evrópuleik í kvöld þegar liðið mætir FC Minsk frá Hvíta-Rússlandi.

Meistaradeild Evrópu: Breiðablik mætir FC Minsk | Valur mætir Ljuboten
Dregið var í forkeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna í fótbolta nú rétt í þessu við hátíðlega athöfn í Nyon í Sviss. Tvö íslensk lið, Valur og Breiðablik, voru í pottinum. Valur mætir ZFK Ljuboten frá Norður-Makedóníu, Breiðablik mætir FC Minsk frá Hvíta-Rússlandi.

Þrítugur aðstoðarmaður tekur við besta liði Evrópu
Evrópumeistarar Barcelona hafa fundið eftirmann meistaraþjálfarans Jonatan Giráldez. Giráldez hætti sem þjálfari kvennaliðs félagsins eftir tímabilið og tók við bandaríska liðinu Washington Spirit.

Rígur framtíðar eða valdaskipti: „Við munum snúa aftur“
Á laugardag vann Barcelona 2-0 sigur á Lyon í úrslitaleik Meistaradeildar kvenna í fótbolta. Barcelona hefur nú unnið Meistaradeildina tvö ár í röð, keppni sem Lyon einokaði lengi vel.

Barcelona Evrópumeistari
Barcelona er Evrópumeistari kvenna í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Lyon í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Mörkin má sjá í fréttinni.

Tekst Glódísi að hrifsa „barnið“ af Popp í dag?
Glódís Perla Viggósdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir gætu mæst í dag í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í fótbolta, þegar stórveldin Bayern München og Wolfsburg eigast við.

Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu
Franska stórliðið Lyon er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu eftir sigur á París Saint-Germain í undanúrslitum. Lyon mætir Barcelona í úrslitaleiknum sem fram fer Estadio San Mamés-vellinum í Bilbao á Spáni þann 25. maí næstkomandi.

„Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“
Emma Hayes, knattspyrnustjóri Chelsea, sparaði ekki stóru orðin eftir að liðið féll úr leik fyrir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í gær.

Evrópumeistarar Barcelona sneru dæminu við og eru komnar í úrslit
Barcelona er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu kvenna eftir 2-0 sigur á Chelsea í Lundúnum í dag, laugardag. Sneru Börsungar dæminu við eftir að tapa óvænt á heimavelli.

Ótrúleg endurkoma í undanúrslitum Meistaradeildarinnar
Lyon vann hádramatískan 3-2 sigur er liðið tók á móti PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Chelsea vann á heimavelli Evrópumeistaranna
Chelsea er í fínum málum í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir 1-0 útisigur á Barcelona í fyrri leik liðanna.

PSG mætir Lyon í undanúrslitum
París Saint-Germain vann öruggan 3-0 sigur á BK Häcken í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu. PSG vinnur einvígið 5-1 samanlagt og mætir Lyon í undanúrslitum.

Barcelona ekki í vandræðum með Brann
Barcelona lagði Brann 3-1 í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu. Vann Barcelona einvígið samtals 5-2. Íslenska landsliðskonan Natasha Anasi sat allan tímann á varamannabekk Brann.

Fimmtu undanúrslitin á sjö árum
Chelsea komst í kvöld í undanúrslit Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir jafntefli við Ajax í Lundúnum.

Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit
Lyon varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta. Benfica féll úr leik.

Barcelona og PSG í kjörstöðu eftir útisigra
Barcelona og PSG eru í kjörstöðu eftir góða útisigra gegn Brann og BK Häcken í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Lyon í góðri stöðu eftir nauman sigur í Portúgal
Lyon lagði Benfica 2-1 ytra þegar liðin mættust í fyrri viðureign sinni í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu.

Chelsea með annan fótinn í undanúrslitum
Chelsea vann gríðarlega öruggan 3-0 útisigur á Ajax í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu.

Telja að sekt UEFA sé brot á tjáningarfrelsinu
Norska knattspyrnufélagið Brann ætlar að ekki að taka fimm þúsund evra sekt Knattspyrnusambands Evrópu þegjandi og hljóðalaust.

Dregið í Meistaradeild: Natasha tekst á við Evrópumeistarana
Leiðin að úrslitaleiknum í Bilbao, í Meistaradeild kvenna í fótbolta, er nú orðin ljós fyrir liðin átta sem eftir standa í keppninni. Þar á meðal er eitt Íslendingalið.

Allt hrundi hjá Guðrúnu og Rosengård í seinni hálfleik
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård máttu sætta sig við stórt tap gegn Frankfurt í Meistaradeildinni knattspyrnu í kvöld.

Glódís lagði upp en Bayern missti af sæti í átta liða úrslitum
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í þýska stórliðinu Bayern München eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir grátlegt 2-2 jafntefli gegn PSG í lokaumferð riðlakeppninnar í kvöld.

Häcken í átta liða úrslit og Chelsea vann stórsigur
Sænska félagið Häcken tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu er liðið vann 1-0 útisigur gegn Real Madrid í D-riðli í kvöld. Á sama tíma vann Chelsea 4-0 stórsigur gegn Paris FC á útivelli.

Lyon skoraði sjö en Barcelona aðeins tvö
Lyon og Barcelona unnu þægilegra sigra í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Sigur Lyon var þó heldur þægilegri en sigur Börsunga sem hafa átt betri dag fyrir framan markið.

Natasha komin áfram og Guðrún fékk loks stig
Tvær íslenskar landsliðskonur í knattspyrnu voru í eldlínunni í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu.

Bayern jafnaði tvisvar á lokamínútunum gegn Roma
Roma og Bayern München gerðu 2-2 jafntefli þegar liðin mættust í næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern, spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar.

Natasha kom inn af bekknum í magnaðri endurkomu
Natashi Anasi og stöllur hennar í norska liðinu Brann nældu í stig er liðið tók á móti Lyon í B-riðli Meistaradeildar Evrópu kvenna í kvöld. Lokatölur 2-2 í leik þar sem frönsku gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins.

Spennan magnaðist í riðlakeppninni eftir úrslit kvöldsins
Enn ríkir mikil spenna yfir C-riðli Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir að bæði Bayern Munchen og Roma mistókst að tryggja sig áfram í átta liða úrslitin í kvöld.

Bayern náði aðeins jafntefli gegn Ajax
Glódís Perla Viggósdóttir spilaði allan leikinn þegar Bayern München gerði 1-1 jafntefli við Ajax í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Bayern hefur nú mistekist að vinna tvo af fyrstu þremur leikjum sínum en hefur þó ekki enn tapað leik.

Fyrsta tap Brann kom gegn franska stórliðinu
Natasha Anasi-Erlingsson lék allan leikinn í vörn Brann sem beið lægri hlut gegn stórliði Lyon í Meistaradeild Evrópu í kvöld.