Innrás Rússa í Úkraínu
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 86 ›
Handsprengjubrot hafi fundist í líkum í flakinu Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að brot úr handsprengju hafi fundist í líkum fólks sem fórst með flugvél Jevgení Prígósjíns í ágúst. Erlent 5.10.2023 18:36
Segja 49 hafa fallið í árás á matvöruverslun Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir 49 manns hafa fallið í árás Rússa á matvöruverslun og kaffihús í þorpinu Hroza í Karkívhéraði. Sex ára drengur er meðal hinna látnu en minnst sex aðrir særðust í árásinni. Erlent 5.10.2023 13:59
Tekist á um áframhaldandi fjárstuðning við Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur heitið áframhaldandi stuðningi Bandaríkjanna við Úkraínu, jafnvel þótt aukinn fjöldi Repúblikana sé nú á móti auknum fjárútlátum vegna stríðsátakana í landinu. Erlent 2.10.2023 07:15
Skortur og álag á lögregluþjónum: „Einungis fávitar myndu ganga til liðs við lögregluna“ Gífurlegt álag er á lögregluþjónum í Rússlandi, sem má að miklu leyti rekja til fækkunar lögregluþjóna, þó mun fleiri lögregluþjónar séu í Rússlandi miðað við í Bandaríkjunum og Bretlandi. Fækkunin hefur komið niður á forvörnum þeirra gegn glæpum, leitt til spillingar og annarra vandræða. Erlent 1.10.2023 14:48
Umdeildur fyrrverandi forsætisráðherra í góðri stöðu Flokkur umdeilds fyrrverandi forsætisráðherra Slóvakíu bar sigur úr býtum í þingkosningum gærdagsins og fékk nærri því fjórðung atkvæða. Smer-flokkurinn er leiddur af Robert Fico, sem þykir vinveittur yfirvöldum í Rússlandi og hefur heitið því að hætta öllum stuðningi við Úkraínu. Erlent 1.10.2023 10:44
Samþykktu bráðabirðgafjárlög á síðustu stundu Bandarískir þingmenn samþykktu á síðustu stundu í nótt nýtt fjárlagafrumvarp til bráðabirgða og komu þannig í veg fyrir lokun opinberra stofnanna. Sú lokun átti formlega að hefjast á miðnætti í nótt, að staðartíma, og hefur verið frestað um 45 daga. Fjárlögin nýju gætu kostað forseta fulltrúadeildarinnar embættið. Erlent 1.10.2023 08:05
Pútín biður Wagner-foringja að taka yfir sjálfboðasveitir Rússa Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur fundað með Andrei Troshev, háttsettum foringja innan Wagner-málaliðahópsins. Stjórnvöld í Moskvu segja Troshev nú starfa fyrir varnarmálaráðuneytið. Erlent 29.9.2023 08:43
Grannt fylgst með Slóvakíu og upplýsingaóreiðu Ráðamenn Evrópusambandsins samþykktu í síðasta mánuði ný lög sem sporna eiga gegn upplýsingaóreiðu á samfélagsmiðlum. Nú reynir almennilega á lögin í fyrsta sinn vegna kosninganna í Slóvakíu en forsvarsmönnum samfélagsmiðla hefur verið sagt að taka betur á upplýsingaóreiðu þar. Erlent 28.9.2023 08:34
Enn lítið um svör, ári frá sprengingunum Ár er liðið frá því Nord Stream gasleiðslurnar voru skemmdar í sprengingum á botni Eystrasalts. Skemmdarverkið er til rannsóknar í nokkrum ríkjum en enn er ekki búið að varpa ljósi á því hverjir sprengdu leiðslurnar. Erlent 26.9.2023 16:00
Þvinga fjölskyldur til að hlusta á nauðganir Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) segir sterkar vísbendingar fyrir því að rússneskir hermenn fremji stríðsglæpi í Úkraínu. Rússar hafa pyntað Úkraínumenn til dauða og þvingað fjölskyldur til að hlusta á þegar hermenn nauðguðu konum í næsta herbergi. Erlent 26.9.2023 13:12
Aðmírállinn virðist enn á lífi Viktor Sokolov, aðmíráll sem leiðir Svartahafslofta Rússlands, virðist ekki hafa fallið í árás Úkraínumanna á höfuðstöðvar flotans í Sevastopol á Krímskaga á föstudaginn, eins og úkraínski herinn hélt fram í gær. Erlent 26.9.2023 11:17
Danir slaufa „nítján gráðu reglunni“ í opinberum byggingum Stjórnvöld í Danmörku hafa ákveðið að slaufa reglunni um að einungis megi kynda opinberar byggingar upp í nítján gráður að hámarki vegna orkusparnaðar. Reglunni var komið á fyrir um ári síðan vegna stöðunnar á evrópskum orkumarkaði í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 26.9.2023 08:47
Segjast hafa fellt yfirmann Svartahafsflota Rússa Yfirmenn sérsveita Úkraínuhers segja stjórnanda Svartahafsflota Rússa hafa fallið í stýriflaugaárás á höfuðstöðvar flotans í Sevastaopol á Krímskaga á föstudaginn. Þar að auki hafi 34 aðrir yfirmenn í rússneska hernum fallið og rúmlega hundrað hafi særst. Erlent 25.9.2023 12:10
Sjö ára börn í Rússlandi læra herkænsku Sjö ára börnum er kennd herkænska í skólum í Rússlandi. Rússlandsforseti kynnti nýjan skylduáfanga í skólum fyrr á árinu þar sem farið er yfir helstu atriði sem þarf að kunna í stríði. Krakkar á unglingastigi læra að beita vopnum. Erlent 24.9.2023 16:28
Forsætisráðherra biður Selenskí að „móðga Pólverja aldrei framar“ Forsætisráðherra Póllands biður Volódímír Selenskí Úkraínuforseta um að móðga Pólland aldrei framar. Forsætisráðherrann tók gagnrýni Selenskís óstinnt upp á dögunum. Pólverjar hyggjast hætta að senda vopn til Úkraínu. Erlent 23.9.2023 16:51
Biden lofar Selenskí nýjum eldflaugum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti Vólódómír Selenskí, forseta Úkraínu, í dag að hann ætlaði að senda langdrægar eldflaugar til Úkraínu. Úkraínumenn hafa lengi beðið um slíkar eldflaugar sem heita Army Tactical Missile System, eða ATACMS. Erlent 22.9.2023 16:57
Hæfðu höfuðstöðvar Svartahafsflota Rússa Að minnsta kosti ein eldflaug hæfði höfuðstöðvar Svartahafsflota Rússa í Sevastopol á Krímskaga í morgun. Leppstjóri Rússa í héraðinu, sem Rússar innlimuðu ólöglega árið 2014, birti myndir af höfuðstöðvunum sem eru mikið skemmdar. Erlent 22.9.2023 11:47
Þreyttir eftir harða bardaga: „Vinir okkar týna lífinu í skóginum, einn af öðrum“ Eftir þriggja mánaða baráttu tókst úkraínskum hermönnum að frelsa bæina Klistjívka og Andrjívka í austurhluta Úkraínu. Hermenn lýsa aðstæðum þar sem helvíti en þeim tókst að sigra Rússa og segjast hafa fellt og handsamað fjölmarga rússneska hermenn. Erlent 21.9.2023 16:01
Umfangsmiklar árásir á báða bóga Úkraínumenn gerðu í gærkvöldi umfangsmikla árás á flugstöð Rússa á Krímskaga. Á sama tíma skutu Rússar fjölmörgum eld- og stýriflaugum sem ætlað var að valda skemmdum á orkuinnviðum Úkraínu. Erlent 21.9.2023 12:16
Pólverjar hætta vopnasendingum til Úkraínu Pólverjar hafa lýst því yfir að þeir séu hættir að sjá Úkraínumönnum fyrir vopnum í baráttu sinni við innrásarher Rússa. Erlent 21.9.2023 07:13
Vill taka neitunarvaldið af Rússum Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði eftir því í dag að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna yrði breytt á þann veg að hægt yrði að svipta ríki sem eiga fast sæti í ráðinu neitunarvaldi. Öryggisráðið og SÞ gætu ekkert gert vegna stríðsins þar sem árásaraðilinn, Rússland, væri með neitunarvald. Erlent 20.9.2023 16:59
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segjast hafa rofið varnir Rússa við Bakhmut Gagnsókn Úkraínumanna heldur áfram en hefur enn sem komið er skilað litlum árangri í formi frelsaðs landsvæðis. Úkraínskir hermenn sækja þó fram, bæði í suðurhluta landsins og í austri en töluverð óvissa ríkir um mannfall hjá bæði Rússum og Úkraínumönnum. Erlent 20.9.2023 09:00
„Illsku er ekki treystandi“ Illsku er ekki treystandi. Þetta voru skilaboð Volodómírs Selenskís Úkraínuforseta þegar hann hélt ávarp sitt á Allsherjarþingi Semeinuðu þjóðanna í gærkvöldi. Erlent 20.9.2023 07:45
Sagði engan öruggan ef Pútín yrði leyft að búta Úkraínu í sundur Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir heiminn verða að standa við bakið á Úkraínumönnum og standa gegn ofstopa Rússa. Engin þjóð yrði örugg ef Rússum yrði leyft að búta Úkraínu í sundur. Erlent 19.9.2023 16:52
Telja eldflaugina hafa verið úkraínska Útlit er fyrir að eldflaugin sem banaði minnst fimmtán manns og særði rúmlega þrjátíu í bænum Kostiantynivka í austurhluta Úkraínu þann 6. september hafi verið skotið á loft af Úkraínumönnum sjálfum. Eldflaugin lenti á markaði í bænum en innan við tveimur tímum síðar sakaði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, Rússa um árásina. Erlent 19.9.2023 09:34
Rússar segja sig úr Barentsráðinu Yfirvöld í Rússlandi hafa ákveðið að segja sig úr Barentsráðinu og saka nágranna sína um að hafa gert ráðið óstarfhæft. Rússar segja Finna ekki hafa viljað afhenda þeim forsæti ráðsins. Erlent 18.9.2023 16:57
Úkraínumenn sækja fram í grennd við Bakhmut Úkraínumenn eru sagðir hafa náð yfirráðum yfir bænum Klishchiivka sem er í grennd við borgina Bakhmut þar sem harðir bardagar hafa geisað um mánaða skeið. Erlent 18.9.2023 07:45
Munu mögulega sæta aðgerðum af hálfu erlendra ríkja Utanríkisráðuneytið segir ekki útilokað að erlend ríki muni grípa til aðgerða gegn tveimur Íslendingum sem tóku þátt í „kosningaeftirliti“ í Kherson á dögunum, einu þeirra svæða sem Rússar hafa hernumið í Úkraínu. Innlent 15.9.2023 06:48
Skemmdu herskip og kafbát með stýriflaugum Úkraínski herinn skemmdi í nótt rússneskt herskip og kafbát sem voru í slipp í Sevastopol á Krímskaga. Það gerðu Úkraínumenn með Storm Shadow stýriflaugum en árásin beindist að höfuðstöðvum Svartahafsflota Rússa. Erlent 13.9.2023 22:00
Kim heitir Pútín fullum stuðningi Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, heitir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, „fullum og skilyrðislausum“ stuðningi. Leiðtogarnir einangruðu funduðu í rúma fjóra tíma í dag og eru þeir sagðir hafa rætt samvinnu á sviði hernaðar og efnahags. Erlent 13.9.2023 18:18