Alvotech
1 2 3 4 5 … 5 ›
Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur veitt Alvotech markaðsleyfi fyrir Selarsdi (ustekinumab-aekn), líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara. Gert er ráð fyrir að Selarsdi komi á markað í Bandaríkjunum um eða eftir 21. febrúar 2025 í samræmi við samkomulag við framleiðanda frumlyfsins Stelara Viðskipti innlent 16.4.2024 21:31
Mun stýra mannauðsmálum Alvotech Jenný Sif Steingrímsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra mannauðsmála hjá Alvotech. Jenný gekk til liðs við Alvotech í október 2022 og hefur verið mannauðsráðgjafi fyrir rannsóknar- og þróunarsvið Alvotech. Viðskipti innlent 11.4.2024 09:37
Vogunarsjóðum Akta reitt þungt högg eftir óvænt gengisfall Alvotech Ævintýralegar sveiflur hafa verið á gengi vogunarsjóða í stýringu Akta á undanförnum vikum samhliða hröðu risi og síðan falli á hlutabréfaverði Alvotech. Sjóðastýringarfélagið hefur lagt mikið undir á Alvotech, sem fékk undir lok febrúar langþráð samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum, en einn af flaggskipssjóðum Akta tók dýfu um nærri fimmtíu prósent á nokkrum viðskiptadögum þegar það fór að síga á ógæfuhliðina hjá líftæknilyfjafyrirtækinu á hlutabréfamarkaði. Innherji 9.4.2024 10:29
Fjárfestar tóku dræmt í skilaboð Alvotech um stóran sölusamning „á næstu vikum“ Skilaboð Alvotech um stöðuna í viðræðum vegna sölusamninga vestanhafs á stuttum kynningarfundi í hádeginu ollu nokkrum vonbrigðum meðal innlendra fjárfesta og féll hlutabréfaverð félagsins skarpt strax að afloknum fundi. Félagið segist vera á „lokastigi“ með að klára samning við einn stærsta söluaðilann í Bandaríkjunum vegna líftæknilyfjahliðstæðunnar Simlandi. Innherji 3.4.2024 14:19
Alvotech í mótvindi þegar eftirspurn innlendra fjárfesta mettaðist Gæfan hefur snúist hratt gegn hlutabréfafjárfestum í Alvotech sem hafa séð bréfin lækka um þriðjung eftir að félagið náði hinum langþráða áfanga að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Enn er beðið eftir að fyrirtækið ljúki stórum sölusamningum vestanhafs og væntingar um innkomu nýrra erlendra fjárfesta á kaupendahliðina hafa ekki gengið eftir. Skarpt verðfall síðustu viðskiptadaga framkallaði veðköll á skuldsetta fjárfesta en á sama tíma og búið er að þurrka út stóran hluta af hækkun ársins hafa erlendir greinendur tekið vel í uppfærða afkomuáætlun Alvotech og hækkað verðmöt sín á félagið. Innherji 3.4.2024 10:55
Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Alvotech fékk kaupauka að andvirði rúmlega þrjú hundruð milljóna króna á dögunum. Viðskipti innlent 26.3.2024 13:31
Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda. Innherji 21.3.2024 10:53
Tapaði ríflega hálfum milljarði dala annað árið í röð Tap Alvotech á árinu 2023 nam 551,7 milljónum dollara eða 2,43 dollara tapi á hlut, samanborið við 513,6 milljóna dollara tap á árinu 2022, sem nemur 2,6 dollara tapi á hlut. 551,7 milljónir dollara eru tæplega 75 milljarðar króna á gengi dagsins. Viðskipti innlent 20.3.2024 21:35
Búast við að Alvotech nái „verulegri“ markaðshlutdeild eftir samþykki FDA Erlendir og innlendir greinendur hafa hækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech eftir að félagið hlaut markaðsleyfi í Bandaríkjunum og vegna tímabundins einkaréttar er líftæknilyfjafyrirtækið, ásamt samstarfsaðila sínum Teva, sagt vera í stöðu til að ná „verulegri“ markaðshlutdeild þar í landi í nálægri framtíð með sölu á hliðstæðu við Humira, að mati fjárfestingabankans Barclays. Með blessun FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech er talið að félagið muni í framhaldinu eiga auðveldara um vik að fá samþykki fyrir fleiri lyf á mikilvægasta markaði heims. Innherji 4.3.2024 15:55
Hástökk Alvotech fyrir bí Fjórða daginn í röð lækkar verð á bréfum í Alvotech eftir hástökkið á mánudaginn þegar verðið hækkaði um ellefu prósent. Það er nú lægra en það var áður en matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna veitti fyrirtækinu langþráð leyfi síðastliðna helgi. Viðskipti innlent 1.3.2024 10:23
Alvotech sagði 21 upp í gær 21 starfsmanni var sagt upp störfum hjá Alvotech í gær. Þar af voru fjórtán sem starfa á Íslandi. Þetta staðfestir Benedikt Stefánsson, forstöðumaður fjárfesta- og almannatengsla hjá Alvotech, í samtali við Vísi. Viðskipti innlent 29.2.2024 11:03
Uppsagnir hjá Alvotech Þónokkrum starfsmönnum lyfjafyrirtækisins Alvotech var sagt upp störfum í dag. Viðskipti innlent 28.2.2024 16:42
Lækkaði um átta prósent eftir mikla hækkun í gær Virði hlutabréfa í Alvotech lækkuðu um 7,76 prósent í dag. Velta dagsins var um 1,3 milljarðar króna. Verð hlutar í félaginu stendur nú í 2.260 krónum og á síðastliðnu ári hefur verðið hækkað um 42,6 prósent. Viðskipti innlent 27.2.2024 20:01
Forstjóri Alvotech væntir þess að stórir sölusamningar klárist „á næstu vikum“ Alvotech og samstarfsaðili þess í Bandaríkjunum, lyfjarisinn Teva, eru núna í „virkum viðræðum“ vegna stórra samninga um sölu á líftæknilyfjahliðstæðu íslenska fyrirtækisins við eitt mesta selda lyf í heimi, að sögn forstjóra félagsins, og ættu þær að klárast á næstu vikum. Eftir að samþykki fékkst um markaðsleyfi vestanhafs áformar Alvotech að auka umsvif sín í Vatnsmýrinni með því að efla framleiðslugetuna og fjölga enn frekar starfsfólki. Innherji 27.2.2024 14:29
Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 26.2.2024 11:07
Tóku 23 milljarða tilboði í morgunsárið Alvotech gekk í morgun að tilboði frá hópi fagfjárfesta og viðurkenndra gagnaðila um sölu á 10.127.132 almennum hlutabréfum í félaginu að verðmæti um 22,8 milljarðar króna. Tilboðið er jafnvirði 166 milljóna dala miðað við miðgengi Seðlabanka Íslands síðastliðinn fösudag á genginu 2.250 krónur á hlut, 16,41 dalir á hlut. Verð á bréfum í félaginu hækkaði um þrettán prósent eftir fyrstu viðskipti dagsins. Viðskipti innlent 26.2.2024 09:31
Alvotech fær langþráð grænt ljós í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur veitt Alvotech leyfi til sölu og markaðssetningar í Bandaríkjunum á Simlandi (adalimumab-ryvk) sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira. Þetta kemur fram í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 24.2.2024 03:00
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34
Eina athugasemdin vegna of mikillar sótthreinsunar Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur birt skýrslu sína eftir úttekt á framleiðslu Alvotech. Eina athugasemdin var vegna þess að eftirlitsmaður sá starfsmann Alvotech sótthreinsa hanska sína of oft og nota þá ekki með hárréttum hætti. Viðskipti innlent 31.1.2024 15:19
Fimmtán sagt upp hjá Alvotech Líftæknifyrirtækið Alvotech sagði upp fimmtán starfsmönnum í gær. Viðskipti innlent 31.1.2024 12:37
Mælir nú með kaupum í Alvotech og hækkar verðmatið um 70 prósent Alþjóðlegi fjárfestingabankinn Barclays mælir með því að fjárfestar bæti við sig í Alvotech, áður ráðlagði hann þeim að halda stöðu sinni, og hækkar verulega verðmatsgengi sitt á íslenska líftæknilyfjafélagið eftir að ljóst varð að það á von á því að fá samþykkt markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf. Fjárfestar eru nú með meiri vissu um að sá fjöldi lyfja sem eru í þróun hjá Alvotech fari að skila tekjum, að sögn Barclays, sem telur félagið verða með sterka samkeppnisstöðu á markaði vestanhafs með hliðstæðu við gigtarlyfið Humira. Innherji 29.1.2024 12:30
Fjármagn flæddi í hlutabréfasjóði á síðasta mánuði ársins Eftir nánast samfellt útflæði úr hlutabréfasjóðum um langt skeið varð viðsnúningur á síðasta mánuði ársins 2023 þegar fjárfestar settu talsvert fjármagn í slíka sjóði samhliða því að hlutabréfamarkaðurinn fór á mikið flug. Á sama tíma var hins vegar ekkert lát á áframhaldandi sölu fjárfesta í blönduðum sjóðum og skuldabréfasjóðum. Innherji 29.1.2024 10:37
IFS verðmetur Alvotech 47 prósentum hærra en markaðurinn IFS greining verðmetur gengi Alvotech 47 prósentum yfir markaðsverði. Fái fyrirtækið markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir hliðstæðu af líftæknilyfinu Humira, sem er gigtarlyf, í febrúar hækkar verðmatið þannig að það verður næstum tvöfalt hærra en markaðsvirðið er um þessar mundir. „Líftæknilyfjamarkaðurinn hefur farið ört vaxandi, í raun allt frá upphafi, sem gerir markað fyrir hliðstæðulyf einnig mjög spennandi og eftirsóknarverðan.“ Innherji 26.1.2024 13:44
Félag Róberts seldi breytanleg bréf á Alvotech fyrir um milljarð Fjárfestingafélag í aðaleigu Róbers Wessman, stofnanda og forstjóra Alvotech, seldi í síðustu viku, daginn áður en Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna lauk úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins, breytanleg skuldabréf á líftæknilyfjafélagið fyrir tæplega einn milljarð króna. Bréfin voru seld með tugprósenta hagnaði frá því að þau voru keypt í lok júlí í fyrra. Innherji 24.1.2024 20:17
Alvotech lyftir upp öllum markaðnum nú þegar samþykki FDA er nánast í höfn Markaðsvirði Alvotech, ásamt nær öllum félögum í Kauphöllinni, hefur rokið upp um nærri hundrað milljarða króna á markaði sem af er degi eftir að ljóst varð að íslenska líftæknilyfjafélagið ætti von á því að fá samþykkt markaðsleyfi fyrir sín stærstu lyf í Bandaríkjunum. Útlit er fyrir að Alvotech verði í talsverðan tíma einir á markaði vestanhafs með hliðstæðu við gigtarlyfið Humira, eitt mesta selda lyf í heimi, sem hefur þá eiginleika sem söluaðilar þar í landi horfa einkum til. Innherji 22.1.2024 12:15
Alvotech leiðir hækkanir í Kauphöllinni Gengi allra félaga í Kauphöllinni hafa hækkað það sem af er morgni og hefur gengi bréfa í Alvotech hækkað mest, eða um tæplega 17 prósent, í um 2,6 milljarða króna viðskiptum. Viðskipti innlent 22.1.2024 11:18
Virkir sjóðstjórar lutu í lægra hald fyrir vísitölum í krefjandi aðstæðum Að baki er krefjandi ár fyrir stjórnendur hlutabréfasjóða í virkri stýringu. Slíkir sjóðir, fyrir utan einn, skiluðu lakari ávöxtun fyrir sjóðsfélaga sína í samanburði við Úrvalsvísitöluna. Kjarna má árið 2023 fyrir sjóðstjóra að landslagið hafi breyst nokkuð oft með fjölda stórra atburða og ýktum sveiflum á stöku hlutabréfum og markaðnum í heild. Innherji 17.1.2024 06:01
Hlutabréfasjóðir með mikið undir í Alvotech í aðdraganda ákvörðunar FDA Mikill meirihluti hlutabréfasjóða landsins, sem eru að stórum hluta fjármagnaðir af almenningi, er með hlutabréfaeign í Alvotech sem annaðhvort sína stærstu eða næstu stærstu eign núna þegar örfáar vikur eru í að niðurstaða fæst um hvort félagið fái samþykkt markaðsleyfi fyrir sitt helsta lyf í Bandaríkjunum. Hlutabréfaverð líftæknilyfjafyrirtækisins hefur rokið upp á síðustu vikum, meðal annars byggt á væntingum um að Alvotech muni loksins fá grænt ljóst frá Lyfjaeftirliti Bandaríkjanna. Innherji 16.1.2024 15:22
Lyfjarisar keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki Stærstu lyfjafyrirtæki í heimi keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki til að efla framleiðslu sína. Stjórnendur lyfjaframleiðenda vilja hafa hraða hendur því einkaréttur á allt að 170 lyfjum mun falla úr gildi við upphaf næsta áratugar sem standa undir næstum 400 milljarða Bandaríkjadala í tekjum fyrir stærstu fyrirtækin. Innherji 12.1.2024 16:10
Velur Alvotech sem eina bestu fjárfestinguna í hlutabréfum á árinu 2024 Alvotech er í „einstakri“ stöðu til að verða leiðandi í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjum, að sögn bandarísks hlutabréfagreinenda, sem hefur útnefnt íslenska félagið sem einn besta fjárfestingakostinn á hlutabréfamarkaði á þessu ári. Hlutabréfaverð Alvotech hefur verið mikilli siglingu, upp um meira en þriðjung á innan við mánuði, en í vikunni mæta fulltrúar bandaríska Lyfjaeftirlitsins til landsins til gera úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins og mun niðurstaða hennar ráða miklu um framhaldið. Innherji 8.1.2024 15:31