Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Lovísa Arnardóttir skrifar 6. maí 2026 21:37 Lisa Graver er forstjóri Alvotech. Aðsend og Vísir/Vilhelm Heildartekjur Alvotech voru 105,9 milljónir dollara, samanborið við 132,8 milljónir dollara á fyrsta fjórðungi liðins árs. Það samsvarar um þrettán milljörðum íslenskra króna. Félagið gerir ráð fyrir að heildartekjur ársins 2026 verði á bilinu 650 til 700 milljónir dollara.
Félagið gerir ráð fyrir að aðlöguð EBITDA verði á bilinu 180-220 milljónir dollara. Lægri mörk afkomuspárinnar gera ráð fyrir engum tekjum af nýjum lyfjum í Bandaríkjunum á árinu 2026. Frá þessu er greint í fyrsta ársfjórðungsuppgjöri félagsins á þessu ári. Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Þar kemur einnig fram að aðlöguð EBITDA1 hafi numið 24,4 milljónum dollara og framlegð af heildartekjum var 57 prósent. „Á liðnum ársfjórðungi náðum við ýmsum stefnumarkandi áföngum, undirbjuggum að senda inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum, tókum mikilvæg skref í markaðssetningu og þróun nýrra hliðstæðna og unnum að markvissum endurbótum á framleiðsluaðstöðunni,“ segir Lisa Graver, forstjóri Alvotech, í tilkynningu með uppgjörinu. Hún segir að undanfarna mánuði hafi þau endurbætt fjölmörg gæða- og framleiðslukerfi félagsins. „Við tókum meðvitaða ákvörðun um að eyða meiri tíma í þessar aðgerðir til að draga enn frekar úr þeirri áhættu að úttektir á framleiðsluaðstöðunni hefðu áhrif á reksturinn. Við vildum einnig tryggja að þegar við sendum inn umsóknirnar að nýju til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) svari þær fyllilega öllum kröfum eftirlitsins. Endurbæturnar stuðla jafnframt að langtímavexti og verðmætasköpun félagsins,“ segir Lisa. Þá segir hún að heildartekjur og EBITDA-framlegð á fyrsta ársfjórðungi endurspegli að hægja þurfti á framleiðslu á meðan úrbætur á framleiðsluaðstöðunni fóru fram. „Við búumst við að tekjur af vörusölu aukist þegar framleiðslan kemst aftur í eðlilegt horf. Á viðskiptahliðinni verðum við vör við mikla undirliggjandi eftirspurn eftir öllum hliðstæðum okkar sem eru á markaði, þar á meðal fer eftirspurn enn vaxandi eftir hliðstæðunni við Humira í Bandaríkjunum. „Við náðum einnig mikilvægum áföngum í lyfjaþróun, þar á meðal lögðum við inn umsókn um markaðsleyfi í Evrópu fyrir fyrirhugaða hliðstæðu við Entyvio og tókum inn fyrstu sjúklingana í lykilrannsókn á klínískri virkni og öryggi fyrirhugaðrar hliðstæðu við Eylea í háum styrk. „Í dag tilkynntum við um samstarfssamning við FUJIFILM Biotechnologies um framleiðslu á nokkrum þeirra hliðstæðna sem við erum með á markaði og í þróun. Þetta treystir enn frekar framleiðslukeðjuna og dreifir áhættu, sem mun auðvelda næstu skref í markaðssetningu. Við leggjum ríka áherslu á að senda inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi til FDA á þessum ársfjórðungi. Þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í síðan á síðasta ári gera þessar umsóknir traustari en bæta einnig alla aðstöðu okkar fyrir framleiðslu og þróun nýrra hliðstæðna. Með endurbótunum verðum við því enn betur búin undir næsta vaxtarskeið í sögu félagsins.“ Stjórnendur félagsins kynna uppgjörið í beinu streymi sem hefst klukkan tólf á morgun, fimmtudaginn 7. maí. Hér verður streymi af fundinum. Ítarlegri tilkynning á ensku sem veitir nánari upplýsingar um fjárhag og rekstur á fyrsta ársfjórðungi 2026 er birt hér undir liðnum „Q1 2026 Earnings Call“.
Alvotech Lyf Bandaríkin Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira