Fjármálamarkaðir
8 9 10 11 ›
Credit Suisse dragbítur á evrópskum bönkum Svissneski bankinn Credit Suisse dróg evrópska banka niður með sér þegar hlutabréfaverð hans hríðféll í skugga óróa vegna falls tveggja bandarískra banka í dag. Gengi bréfa bankans féll um allt að þrjátíu prósent og hefur aldrei verið lægra. Viðskipti erlent 15.3.2023 17:47
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu nefndarinnar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 15.3.2023 09:01
Sitja ekki á óinnleystu tapi vegna skuldabréfa sem hafa lækkað í verði Íslensku viðskiptabankarnir fjórir sitja ekki á neinu óinnleystu tapi í bókum sínum í tengslum við mörg hundruð milljarða króna eign þeirra í skuldabréfum en ólíkt því sem átti við um Silicon Valley Bank (SVB), sem varð gjaldþrota fyrir helgi, eru slík verðbréf metin á markaðsvirði í reikningum bankanna hér á landi. Margir evrópskir bankar beita hins vegar sömu aðferð og SVB þar sem skuldabréfasafn þeirra er metið á kostnaðarverði en meðal annars vegna sterkrar lausafjárstöðu er ólíklegt að bankarnir neyðist til að selja þau bréf með afföllum, samkvæmt nýrri greiningu Moody´s. Innherji 15.3.2023 07:01
„Þetta er svona skjálfti sem ég held að gangi yfir“ Fjármálaráðherra segir eftirlit með bönkunum hafa verið eflt verulega á síðasta rúma áratug en hrun bandaríska bankans Silicon Valley sýni fram á mikilvægi þess að regluverkið um bankastarfsemi og fjármálafyrirtæki sér sterkt. Innlent 14.3.2023 21:01
Rannsaka fall Kísildalsbankans Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 14.3.2023 18:47
Regluverkið virkaði ekki og vaxtastefnan gerði banka „háða“ lágum vöxtum Gjaldþrot Silicon Valley Bank (SVB) sýnir að sú stefna sem fjármálayfirvöld hafa rekið í einn og hálfan áratug var röng. Regluverkið virkaði ekki og vaxtastefnan gerði banka „háða“ lágum vöxtum. Fleiri bankar glími við samskonar vanda og SVB en það stefnir þó ekki í aðra bankakrísu, segir Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði við London School of Economics. Innherji 14.3.2023 15:00
Sveinbjörn nýr framkvæmdastjóri hjá Fossum Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignastýringar Fossa fjárfestingarbanka. Viðskipti innlent 14.3.2023 14:18
Bréf í bönkum taka dýfu Hlutabréf í bönkum hafa fallið talsvert í Asíu og í Evrópu þrátt fyrir staðhæfingar Bandaríkjaforseta um að bandaríska fjármálakerfið sé öruggt þrátt fyrir fall tveggja banka á örfáum dögum. Viðskipti erlent 14.3.2023 07:16
Ungir fjárfestar orðnir um þriðjungur af markaðnum Hluthöfum í fyrirtækjum í Kauphöllinni sem eru í aldurshópnum 20 til 39 ára hefur fjölgað umtalsvert á undanförnum árum. Hlutabréfaverð hækkaði talsvert á tímabilinu samhliða auknum áhuga yngri fjárfesta en heildarfjöldi hluthafa í skráðum félögum jókst samtals um meira en fimmtíu þúsund. Innherji 14.3.2023 07:01
Traust á fjármálakerfinu ekki komið aftur eftir hrun Íslenskur hagfræðiprófessor segir að óróleiki vegna falls tveggja bandaríska banka bendi til þess að traust fólks á fjármálakerfinu sé ekki komið aftur þrátt fyrir að fimmtán ár séu liðin frá bankahruninu. Fátt bendi þó til þess að bankarnir hafi fallið vegna kerfislægs vanda. Viðskipti erlent 13.3.2023 23:14
Gjaldþrot banka í Kísildal smitast til fjármálamarkaða á Íslandi Gjaldþrot bankans Silicon Valley Bank í Bandaríkjunum hefur leitt til verðlækkana á hlutabréfamörkuðum um allan heim og breytt spám um stýrivaxtahækkanir. Hérlendis hafa verið umtalsverðar lækkanir á hlutabréfum og krafa á óverðtryggð ríkisskuldabréf lækkaði vegna væntinga um að Seðlabankinn hækki stýrivexti minna en áður var talið. Innherji 13.3.2023 16:40
Verðmetur Reginn 66 prósentum yfir markaðsverði Jakobsson Capital verðmetur fasteignafélagið Reginn 66 prósentum yfir markaðsverði. Erlend fasteignafélög hafa hækkað nokkuð það sem af er ári. „Íslensku fasteignafélögin hafa hins vegar fátt annað gert en að lækka í verði það sem af er ári,“ segir í verðmati. „Verðtryggt greiðsluflæði og stöðugleiki ætti að heilla fjárfesta öllum stundum en sérstaklega nú á tímum verðbólgu og óvissu.“ Innherji 13.3.2023 14:01
Eyrir Invest tapaði yfir 80 milljörðum eftir mikið verðfall á bréfum Marels Mikil umskipti urðu á afkomu Eyris Invest á árinu 2022 samtímis verulegri lækkun á hlutabréfaverði Marels, langsamlega stærstu eign fjárfestingafélagsins, og nam tapið samtals um 83 milljörðum króna. Til að tryggja fjárhagsstöðuna þurfti félagið að ráðast í endurfjármögnun á skuldum sínum undir lok síðasta árs en virkir vextir á breytanlegu láni sem Eyrir fékk frá erlendum sjóðum eru 17,4 prósent. Innherji 9.3.2023 10:19
Kauphöllin opnar markað fyrir sígræna sjóði án líftíma Kauphöllin hefur sett á fót markað fyrir sérhæfða sjóði. Hann er fyrir sjóði sem eru sígrænir, sem sagt án líftíma, og eru markaðssettir til fagfjárfesta. Sambærilegar markaðir hafa notið vinsælda í Bretlandi og eru starfræktir á Norðurlöndunum þó í minna mæli, að sögn framkvæmdastjóra hjá Nasdaq Iceland. Innherji 6.3.2023 12:28
Markaðshlutdeild Varðar tvöfaldast á tíu árum og Sjóvá jók hlutdeild sína Markaðshlutdeild Varðar hefur vaxið hratt á síðustu árum á sama tíma og TM og VÍS hafa verið að gefa eftir. Forstjóri tryggingafélagsins segir enn tækifæri til vaxtar, einkum á fyrirtækjamarkaði, en ætla má að markaðsvirði Varðar hafi fjórfaldast frá kaupum Arion banka fyrir hartnær sex árum síðan. Innherji 3.3.2023 07:24
Verðtryggð krafa á Íslandi orðin töluvert lægri en í Bandaríkjunum Ávöxtunarkrafan á bandarísku verðtryggðu ríkisskuldabréfi til þriggja ára er orðin um 60 punktum hærri en krafan á íslensku verðtryggðu ríkisbréfi og ef horft er til fimm ára er krafan á svipuðu reiki. Eigi að takast að ná niður verðbólgu og verðbólguvæntingum þarf „bálreiðan“ Seðlabanka og að lágmarki 100 punkta vaxtahækkun á næsta fundi peningastefnunefndar, að mati skuldabréfamiðlara hjá Arion banka. Innherji 2.3.2023 11:10
Íslenskir vogunarsjóðir í varnarbaráttu á ári þar sem svartsýni réð ríkjum Íslenskir vogunarsjóðir fóru ekki varhluta af erfiðum markaðsaðstæðum 2022 þegar fjárfestar höfðu í fá skjól að leita og bæði skuldabréf og hlutabréf féllu í verði. Gengi allra sjóðanna, sem hafa fjárfestingarheimildir til að gíra skort- eða gnóttstöður sínar margfalt, gaf talsvert eftir, einkum sem fjárfestu í hlutabréfum, og þeir sem skiluðu lökustu ávöxtuninni lækkuðu um vel yfir 20 prósent, samkvæmt úttekt Innherja. Innherji 2.3.2023 07:00
Ráðin forstöðumaður fjármála- og rekstrarsviðs Fossa Fossar fjárfestingarbanki hafa ráðið til sín Heiðrúnu Haraldsdóttur sem forstöðumann fjármála- og rekstrarsviðs. Viðskipti innlent 1.3.2023 08:47
Fjárfestar selja í sjóðum þrátt fyrir viðsnúning á mörkuðum Fjárfestar losuðu um stöður sínar í helstu verðbréfasjóðunum á fyrsta mánuði ársins 2023 sem einkenndist engu að síður af verðhækkunum á mörkuðum eftir erfitt ár í fyrra. Í tíu skipti á síðustu tólf mánuðum hefur verið hreint útflæði úr innlendum hlutabréfasjóðum. Innherji 27.2.2023 10:21
Borgin í þungum róðri á skuldabréfamarkaði Hækkun ávöxtunarkröfunnar á skuldabréfum Reykjavíkurborgar skilar sér í „verulega þungri vaxtabyrði“ á nýjum lánum. Krafan á óverðtryggða skuldabréfaflokknum RVKN 35 1, sem stendur í ríflega 8,8 prósentum, hefur hækkað um 1,5 prósentustig frá áramótum og nærri tvöfaldast frá byrjun árs 2022. Innherji 24.2.2023 08:37
Hagræðing í rekstri hjá Íslandsbanka gerir hann 25-30 prósent verðmætari Sú hagræðing sem hefur átt sér stað hjá Íslandsbanka á undanförnum árum jafngildir því að vaxtamunur hafi aukist um 0,5 prósentustig. Hún hefur aukið verðgildi bankans um 25 til 30 prósent, samkvæmt nýju verðmati. Innherji 22.2.2023 17:00
Erum á leið í „verstu sviðsmyndina“ með vextina hærri lengur en áður var talið Þrátt fyrir vaxtahækkun og harðari tón peningastefnunefndar fyrr í þessum mánuði þá hafa verðbólguvæntingar fjárfesta á skuldabréfamarkaði haldið áfram að versna verulega í skugga harðra átaka á vinnumarkaði sem hafa valdið enn meiri óvissu um verðbólguþróunina, að sögn sjóðstjóra og sérfræðinga á fjármálamarkaði. Markaðsvextir á stuttum ríkisskuldabréfum eru að nálgast átta prósent og hafa ekki verið hærri í meira en áratug. Innherji 22.2.2023 08:56
Eignastýring á umrótatímum Við fögnum nýju ári 2023 og kveðjum versta ár á fjármálamörkuðum í áratugi. Staðan í heiminum er þó sú að enn geysar stríð í Úkraínu, landfræðileg áhætta hefur aukist, verðbólgu er mikil og vextir hækka hraðar en nokkru sinni fyrr. Umræðan 18.2.2023 10:45
Sekt Fossa stendur vegna bónusa í búningi arðgreiðslna Fjármálafyrirtækið Fossar markaðir braut lög þegar fyrirtækið greiddi út of háa kaupauka til starfsmanna sinna og kallaði þá ranglega arðgreiðslur. Þetta er niðurstaða Fjármálaeftirlitsins, héraðsdóms og nú Landsréttar sem kvað upp dóm sinn í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:07
Forstjóri SKEL ekki á þeirri skoðun að verðmiði Fossa sé of hár Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL fjárfestingafélags, sem er næststærsti hluthafi VÍS, segist ekki vera á þeirri skoðun að fjárfestingabankinn Fossar sé verðmetinn of hátt í fyrirhuguðum samruna við tryggingafélagið. Hann telur að „strategísk tækifæri“ geti falist í sameiningu félaganna. Innherji 17.2.2023 14:03
Alvotech orðið ein stærsta eignin hjá helstu hlutabréfasjóðum landsins Vægi Alvotech í eignasöfnum stærstu hlutabréfasjóða landsins hefur aukist verulega á fáum vikum samtímis miklum verðhækkunum á gengi bréfa íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins og þátttöku sjóðanna í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Úttekt Innherja sýnir að félagið er orðið stærsta eða næststærsta eignin hjá meirihluta sjóðanna. Innherji 16.2.2023 15:54
Kvika muni sjá til lands í samrunaviðræðum við Íslandsbanka „fyrr en seinna“ Hagnaður Kviku á fjórða ársfjórðungi eftir skatt minnkaði um rúmlega milljarð króna á fjórða ársfjórðungi og nam 1.613 milljónum sem skilaði sér í arðsemi á efnislegt eigið fé upp á 15,3 prósent. Afkoman litaðist af einskiptiskostnaði en forstjóri Kviku segir rekstur fjórðungsins hafa verið þann besta á liðnu ári og hann býst við að niðurstaða muni fást í viðræðum bankans um mögulegan samruna við Íslandsbanka innan ekki of langs tíma. Innherji 16.2.2023 08:20
Aðdragandinn að kaupum VÍS á Fossum „var stuttur“ VÍS ítrekaði áhuga sinn á að útvíkka starfsemi félagsins á fjármálamarkaði og vaxa á þeim vettvangi í tilkynningu til Kauphallarinnar í janúar. Eftir það fór boltinn að rúlla. Í morgun var tilkynnt um möguleg kaup VÍS á Fossum fjárfestingabanka. Þetta segir Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður VÍS, segir í samtali við Innherja. Innherji 15.2.2023 17:05