Stj.mál
60 61 62 63 64 65 66 67 68 … 187 ›
Innanlandsflugið fer hvergi Lítill áhugi er á fyrir því á þingi að flytja innanlandsflugið úr Vatnsmýrinni og enn minni áhugi fyrir því að byggja upp nýjan flugvöll á höfuðborgarsvæðinu. Þetta mátti heyra í utandagskrárumræðum á Alþingi þar sem aðeins þrír af tíu ræðumönnum lýstu trú á að flugið færi úr Vatnsmýrinni. Innlent 23.10.2005 17:50
Flugbraut á Lönguskerjum fráleit Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir fráleitt að byggja upp flugvöll á Lönguskerjum. Hann segir í pistli í Morgunkornum VG að uppbygging flugvallar á Lönguskerjum þýddi að áður en yfir lyki væri Skerjafjörður malbikaður nánast stranda á milli. Innlent 23.10.2005 17:50
Ingibjörg vill úr bankaráði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur farið fram á það við Alþingi að vera leyst undan setu í bankaráði Seðlabankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni. Ingibjörg óskaði eftir þessu vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á högum hennar frá því að hún var kosin í bankaráðið vorið 2003, en sem kunnugt er tók Ingibjörg sæti á þingi nú í haust. Málið verður tekið fyrir á fundi Alþingis á morgun. Innlent 23.10.2005 17:50
Enginn fundur Ekkert varð af fyrirhuguðum fundi íslensku og bandarísku samninganefndanna í gær um endurskoðun varnarsamningsins. Fundinn átti að halda í Bandaríkjunum og var íslenska samninganefndin farin utan. Innlent 23.10.2005 17:57
Fundað um varnarsamninginn í dag Fulltrúar íslenskra stjórnvalda funda með fulltrúum Bandaríkjastjórnar um framtíð varnarsamningsins í Washington í dag. Að sögn aðstoðarmanns Geirs H. Haarde utanríkisráðherra sér ekki fyrir endann á viðræðunum á næstunni en aðalágreiningsefnið er skipting kostnaðar við rekstur herstöðvarinnar. Innlent 23.10.2005 17:50
Samkomulag í Kópavogi Starfsmannafélag Kópavogs og launanefnd sveitarfélaga náðu nú á fjórða tímanum samkomulagi vegna nýrra kjarasamninga bæjarstarfsmanna Kópavogs. Innlent 23.10.2005 17:50
Leyfir ekki innflutning erfðaefnis Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir ekki koma til greina að leyfa innflutning erfðaefna til að blanda við íslenska kúastofninn. Hann furðar sig á ályktun borgfirskra bænda um að undirbúningur að slíkum innflutningi skuli hafinn. Innlent 23.10.2005 17:50
Álit fjöllmiðlanefndar standi Ég er tilbúinn fyrir hönd míns flokks að standa að setningu laga sem byggir á þeirri þverpólitísku sátt sem náðist í fjölmiðlanefndinni," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Innlent 23.10.2005 17:57
Eftirlaun ráðherra til skoðunar Misræmi á kostnaði vegna eftirlaunafrumvarpsins kemur forsætisráðherra á óvart. Hann segir stjórnvöld hafa rætt um að endurskoða lögin, en það verði ekki gert nema með samkomulagi allra stjórnmálaflokka. Alþingi samþykkti breytt lög um eftirlaun æðstu embættismanna og þingmanna rétt fyrir árslok 2003, og þiggja níu fyrrverandi ráðherrar nú eftirlaun, þótt þeir séu í öðrum störfum hjá ríkinu. Innlent 23.10.2005 17:50
ASÍ vill svör frá ríkisstjórninni Forseti Alþýðusambands Íslands segir að stjórnvöld verði að brúa bilið milli gerðra kjarasamninga og verðbólgunnar sem nú blasir við, eigi friður að haldast á almennum vinnumarkaði. Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin vilji ræða málið þar sem skynsamlegt sé fyrir alla að kjarasamningar haldi. Innlent 23.10.2005 17:50
Skoða lagasetningu um einkavæðingu Skipaður verður starfshópur sem kanna á hvort endurskoða þurfi verklagsreglur um einkavæðingu og hvort þörf sé á lögum þar um. Framkvæmdanefnd vinnur að samantekt á eignum ríkisins svo skoða megi frekari einkavæðingu. Innlent 23.10.2005 17:57
Auðveldi úrræði í kynferðisbrotum Félagsmálaráðherra hefur hrint af stað aðgerðaráætlun gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi á Íslandi. Hann segir umræðuna að undanförnu hafa haft áhrif og þakkar fyrir kjark þeirra sem þar gengu á undan. Innlent 23.10.2005 17:57
Skoða reglur einkavæðingarnefndar Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að skipa starfshóp til að skoða verklagsreglur einkavæðingarnefndar og athuga hvort ástæða sé til að breyta þeim. Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis. Innlent 23.10.2005 17:50
Flokksformenn ekki í takt Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir ekki gert ráð fyrir lækkun matarskatts sem lið í því að treysta grundvöll kjarasamninga. Innlent 23.10.2005 17:57
Undrast viðbótarkostnað Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir sjálfsagt og nauðsynlegt að fara á næstunni yfir eftirlaunamál ráðherra og þingmanna.Um 650 milljóna króna viðbótarkostnaður hefur hlotist af nýju lögunum miðað við upphaflegar áætlanir og ákvæði í lögunum hafa sætt gagnrýni. Innlent 23.10.2005 17:57
Vilja stimpilgjöldin burt Sjálfstæðismenn vilja að stimpilgjöld verði felld niður í núverandi mynd. Þetta er meðal efnis í ályktun landsfundar sjálfstæðismanna í húsnæðismálum sem samþykkt var í gær. Fyrir fundinum lágu drög að ályktun í sama málaflokki þar sem einungis var gert ráð fyrir því að fella bæri stimpilgjöld niður þegar aðstæður leyfðu. Innlent 23.10.2005 17:34
Öryggisráðsframboði ekki mótmælt Ekki var ályktað gegn framboði Íslands í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær, þrátt fyrir tilraunir ungra sjálfstæðismanna í þá átt. Fyrrverandi formaður flokksins gerði það svo að einu af sínum síðustu verkum að hvetja til að róttæk ályktun um afnám ríkisstyrkja í landbúnaði yrði felld. Innlent 23.10.2005 17:34
Misráðin ályktun Formenn stjórnarandstöðuflokkanna segja að ályktun Sjálfstæðisflokksins um að synjunarvald forsetans verði fellt úr gildi, sé misráðin og beri ekki vott um sáttatón. Flokkurinn sé hikandi við að ákveða hvað eigi að koma í staðinn. Innlent 23.10.2005 17:50
Bótahækkanir gætu fallið niður Ef hætt verður við að afnema bensínstyrk til öryrkja getur það orðið til þess að hætta verður við hækkanir bóta til öryrkja sem lagðar eru til í fjárlagafrumvarpinu, sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra við upphaf þingfundar. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, hafði hvatt sér hljóðs um málið vegna ályktunar landsfundar Sjálfstæðisflokksins Innlent 23.10.2005 17:34
Vill ekki einkavæðingu Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi Vinstri grænna segir að flokkur sinn hljóti að berjast með oddi og egg gegn einkavæðingu Landsvirkjunar. Innlent 23.10.2005 16:58
Sjálfstæðisflokkurinn mildast Sjórnmálafræðingar virðast nokkuð sammála um að yfirbragð Sjálfstæðisflokksins muni mildast við brotthvarf Davíðs Oddssonar. Að öðru leyti er ekki búist við miklum breytingum. Úlfar Hauksson, stjórnmálafræðingur á ekki von á miklum breytingum og benti á að forystan hefði náð kjöri með miklum yfirborðum á landsfundinum. Því hefði forystan í góðan styrk á bakvið sig og gott umboð. Hann sagði að flokkurinn héldi sínu striki. Innlent 23.10.2005 17:50
Slær varnagla við einkavæðingu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, nýkjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það ekki forngangsmál að selja hlut ríkisins í Landsvirkjun eins og ályktað var um á Landsfundi flokksins um helgina og Geir H. Haarde nýkjörinn formaður gerði að sérstöku umtalsefni í ræðu sinni á laugardag. Sjálfstæðismenn vilja Íbúðalánasjóð út af almennum húsnæðislánamarkaði og leggja niður stimpilgjöld. Innlent 23.10.2005 17:34
Lokað prófkjör Ákveðið hefur verið að hafa lokað prófkjör hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði við uppstillingu á lista flokksins fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Tillaga kom fram á félagsfundi um að hafa opið prófkjör en aðeins um fjórðungur félagsmanna var hlynntur því. Innlent 23.10.2005 17:50
Fá eftirlaun en gegna öðru starfi Níu fyrrverandi ráðherrar þiggja nú eftirlaun þótt þeir séu í öðrum störfum hjá ríkinu. Fjárlaganefnd Alþingis ætlar að skoða sérstaklega hvers vegna 250 milljón krónum meira hefur farið í eftirlaun þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna, en ráð var fyrir gert. Innlent 23.10.2005 17:50
Hrærður og þakklátur Geir H. Haarde var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með nær öllum greiddum atkvæðum á landsfundi flokksins í dag. Nýr formaður sagðist hrærður og þakklátur en sá gamli gekk á táknrænan hátt af hinu pólitíska sviði. Innlent 23.10.2005 15:05
Vill afnema synjunarvald forseta Landsfundur Sjálfstæðisflokksins telur óhjákvæmilegt að ákvæði 26. greinar stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta verði numið úr gildi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var að fundinum í dag. Þá telur fundurinn að huga verði að almennri heimild í stjórnarskrá til þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin mál. Innlent 23.10.2005 15:05
Þorgerður fékk 62,3% atkvæða Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var rétt í þessu kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hún fékk 728 atkvæði eða 62,3% greiddra atkvæða en mótframbjóðandi hennar, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, hlaut 424 atkvæði eða 36,3% greiddra atkvæða. Tíu aðrir sjálfstæðismenn fengu samtals 16 atkvæði. Innlent 23.10.2005 15:05
Býst við að taka ákvörðun Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ekki sjá neitt annað í spilunum en að hann taki ákvörðun um nýjan saksóknara sem taka á við þeim 32 ákæruatriðum í Baugsmálinu sem Bogi Nilsson ríkissaksóknari sagði sig frá fyrir helgi. Þetta sagði ráðherrann í Silfri Egils á Stöð 2 fyrr í dag. Innlent 23.10.2005 15:05
Frumvarp kosti 650 milljónir Gróft mat frá Fjársýslu ríkisins segir að eftirlaunafrumvarpið umdeilda kosti 650 milljónir króna, eða 50 prósentum meira en haldið var fram á þingi. Innlent 23.10.2005 15:04
Þorgerður kjörin varaformaður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var rétt í þessu kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Innlent 23.10.2005 15:05