Straumsvíkurmálið
Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Tveir brasilískir kafarar eru í hópi þeirra níu sem sitja í gærsluvarðhaldi vegna Straumsvíkurmálsins svokallaða, mesta kókaínsmygli Íslandssögunnar. Atli Freyr Fjölnisson sem hlaut áður dóm í stóru fíkniefna máli er einnig í haldi. Innlent 17.7.2026 08:55
Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Allir níu sakborningarnir í Straumsvíkursmálinu svokallaða hafa verið úrskurðaðir í framlengt gæsluvarðhald. Þeir verða í haldi í fjórar vikur til viðbótar en voru handteknir fyrir tveimur vikum. Innlent 8.7.2026 16:18
Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Lögreglan fer í dag fram á framlengt gæsluvarðhald yfir öllum níu sakborningunum í Straumsvíkurmálinu svokallaða, þar sem lögregla rannsakar sögulega umfangsmikinn kókaíninnflutning í súrálskipi. Innlent 8.7.2026 12:19
Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Svokölluð sníkjudýrsaðferð hefur verið að ryðja sér til rúms í fíkniefnasmygli á heimsvísu á undanförnum árum. Þá er fíkniefnum komið fyrir á skipum neðansjávar, oft í sjókistu, þannig að áhöfnin veit jafnvel ekki að óhreint mjöl sé í pokahorninu. Innlent 8.7.2026 08:00
Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Karlmaður sem var dæmdur fyrir meiriháttar skattalagabrot árið 2024 er sagður einn þriggja Íslendinga sem eru í haldi vegna sögulega stórs kókaínsmygls í Straumsvík. Innlent 4.7.2026 18:11
Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér „Oft er þetta fólk sem er í vinnu og hefur kannski fyrirtæki og er í miklum umsvifum og er bara um það bil að missa allt frá sér vegna neyslunnar. Hún er dýr og krefst þess líka að fá meira og aftur og þetta verður mikil áþján fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans að sjálfsögðu.“ Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, um þann fjölbreytta hóp sem sæki sér aðstoðar vegna kókaínfíknar. Innlent 1.7.2026 21:47
Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. Innlent 1.7.2026 14:08
Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Dómsmálaráðherra segir stærstu fíkniefnamál ársins sýna styrk lögreglunnar en líka mikla eftirspurn eftir sterkum fíkniefnum á Íslandi. Hún boðar frumvarp í haust sem á að styrkja heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi. Innlent 1.7.2026 12:43
„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Lögregluþjónn hjá rannsóknardeild spyr sig hvers vegna svona mikil eftirspurn sé eftir kókaíni og amfetamíni á Íslandi enda ekki um ódýr fíkniefni að ræða. Þegar sé búið að slá met í fíkniefnahaldlagninu í ár en met var síðast slegið í fyrra. Innlent 30.6.2026 18:31
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Lögregla réðst í húsleit víða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á 106 kílógrömmum af kókaíni sem fundust í álflutningaskipi við álverið í Straumsvík í síðustu viku. Níu hafa verið handteknir. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu en virði fíkniefnanna er metið á hátt í þrjá milljarða króna. Innlent 30.6.2026 16:22
Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar eru í haldi lögreglunnar vegna innflutning á rúmlega hundrað kílóum af fíkniefnum sem var flutt sjóleiðis til Straumsvíkur. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu. Innlent 30.6.2026 13:57