Fjárlagafrumvarp 2027
1 2 3 ›
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Fjórar af hverjum fimm íbúðum seldust undir auglýstu verði í júlí. Leyfum fyrir ný íbúðarhús hefur fækkað um helming frá árunum 2021 til 2023, atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgað um 27 prósent og vanskil greinarinnar aukist hratt. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir boðaða skattahækkun geta leitt til þess að enn minna verði byggt. Viðskipti innlent 10.9.2026 13:43
200 milljarðar – og við getum gert betur Ferðaþjónustan skilar stolt 200 milljarða skattframlagi íslenskrar ferðaþjónustu til ríkis og sveitarfélaga um allt land. Skoðun 10.9.2026 11:00
Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Þráhyggjustef ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokk fólksins um hallalaus fjárlög raungerðist í byrjun vikunnar. Þá héldu ríkisstjórnarflokkarnir fádæma kynningu á fjárlagafrumvarpi sem lagt verður á haustþingi. Skoðun 10.9.2026 10:45
Hver borgar skattinn að lokum? Hallalaus fjárlög eru mikilvægt markmið. Skattkerfið þarf hins vegar að gera meira en að afla tekna. Það þarf einnig að vera fyrirsjáanlegt, sanngjarnt og samkeppnishæft. Breytingar á því þurfa að taka mið af raunverulegum áhrifum á fyrirtæki og heimili. Óskýrt er hvers vegna ekki eru farnar almennari leiðir til að hækka skatta ef það er markmiðið. Umræðan 10.9.2026 09:41
Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Fjárlög fyrir árið 2027 voru kynnt á mánudagsmorgunn, við gleðileik ráðherra en litla alþýðuhylli. Áform um gríðarlegar skattahækkanir sem munu snerta alla anga ferðaþjónustu ollu þar gríðarlegum vonbrigðum, enda hefur atvinnugreinin viljað vinna með stjórnvöldum að öðrum og jákvæðari leiðum til að auka skatttekjur samfélagsins af ferðaþjónustu til framtíðar. Skoðun 9.9.2026 15:02
„Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, kannast ekki við að hafa átt í virku samtali við stjórnvöld um forsendubrest kjarasamninga. Hann gefur lítið fyrir fjárlagafrumvarp næsta árs sem sé „sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“. Innlent 9.9.2026 10:11
Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Frumvarp ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um fjárlög fyrir árið 2027 liggur nú fyrir. Það hefur vart farið framhjá neinum. Ríkisstjórnin hreykir sig af því við hvert tækifæri sem gefst að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður á næsta ári. Skoðun 9.9.2026 09:30
Stokkið á (barna)vagninn Það var viðbúið að vinsælt þema í skrifum þessa dagana yrði gagnrýni á fjárlög ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Það er enda óhætt að segja að stórtæk skatta- og gjaldahækkunaráform hafi ekki vakið mikla lukku hjá skattpíndum almenningi og fyrirtækjum í landinu. Ég læt mitt ekki eftir liggja í þessari óánægjubylgju. Skoðun 9.9.2026 07:30
Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Gunnar Helgason rithöfundur biður Loga Einarsson menningarmálaráðherra afsökunar eftir að hafa farið ófögrum orðum um hann. Ástæðan var niðurskurður Bókasafnssjóðsins um tugi milljóna. Innlent 9.9.2026 06:48
„Það kostar peninga að afla peninga“ Mennta- og barnamálaráðherra segir áherslumál Flokks fólksins og kostnaður þeirra fara vel saman með áætlunum ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjármagn. Fátækt kosti ríkið meiri peninga en ef ekkert er að gert. Forsætisráðherra segir að sérstaklega hafi verið staðið vörð um almenning þegar litið var til fjármögnunar fjárlagafrumvarpsins fyrir næsta ár. Innlent 8.9.2026 20:01
Loksins úr mínus í plús Eftir átta ára samfelldan hallarekstur og 866 milljarða króna uppsafnaðan halla verður ríkissjóður rekinn með afgangi á næsta ári. Þetta eru mikilvæg tímamót. Halli ríkissjóðs jókst mikið í heimsfaraldrinum en hvarf ekki þegar faraldurinn var genginn yfir. Tímabundin útgjöld urðu varanleg og kostnaðurinn hélt áfram að vaxa hraðar en tekjurnar. Sú staða var ósjálfbær og leiddi til þenslu. Skoðun 8.9.2026 19:03
Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um. Innlent 8.9.2026 17:09
Þjóðin eigi náttúrupassa skilið Auðveldara er að innleiða náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands í dag en það var á sínum tíma þegar umræða um náttúrupassa fór mikinn, að mati forsætisráðherra. Hún segir breyttan heim auðvelda innleiðingu gjaldsins og að vont hafi verið að ekki hafi tekist að innleiða náttúrupassa á sínum tíma. Innlent 8.9.2026 16:52
„Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Formenn stjórnarandstöðuflokka á þingi segja þingmálaskrá rýra og að ríkisstjórnin sé algjörlega að missa tökin á hagstjórn í landinu. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ískaldan vetur fram undan á þingi. Rætt var við formenn stjórnarandstöðu eftir þingsetningu á þingi fyrr í dag. Innlent 8.9.2026 16:35
65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Svartsýn sviðsmynd fjármála- og efnahagsráðuneytisins sýnir að 4,7 milljarða króna afgangur ríkissjóðs samkvæmt fjárlagafrumvarpinu gæti orðið að um 65 milljarða halla árið 2027. Í bjartsýnu sviðsmyndinni gæti afgangurinn hins vegar orðið um 25 milljarðar. Viðskipti innlent 8.9.2026 12:33
„Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Barnabókahöfundur segir nóg komið eftir að Bókasafnssjóður var skorinn niður um tugi milljóna króna. Menningarráðherra segir aukið fjármagn til bókmennta væntanlegt og því skuli spyrja að leikslokum. Innlent 8.9.2026 12:11
„Sannkallað efnahagslegt og pólitískt sjálfsmark“ hjá ríkisstjórninni Það „vekur furðu“ að ríkisstjórnin sé að endurtaka sömu mistökin frá því um áramótin með hækkunum á krónutölugjöldum sem ýtir undir verðbólguvæntingar og verðbólgu, að sögn sjóðstjóra á skuldabréfamarkaði, og kallar aðgerðirnar „sannkallað efnahagslegt og pólitískt sjálfsmark“ hjá stjórnvöldum. Aðhaldið sem er boðað í fjárlögunum er töluvert í sögulegu samhengi, með nokkuð minni útgjaldavexti milli ára en hefur sést að jafnaði síðasta áratuginn, en á móti benda greinendur á að viðsnúningurinn sem á að nást í afkomunni sé að litlum hluta vegna niðurskurðar eða aðhalds í rekstri. Innherji 8.9.2026 11:26
„Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Gunnar Helgason rithöfundur segir að það sé verið að búa til „samfélag hálfvita“ þegar framlög til Bókasafnssjóðs séu skorin niður. Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi verður Bókasafnssjóður skorinn niður úr 224,5 milljónum í 142,3. Hann segir þetta koma niður á barnabókahöfundum sérstaklega en þeir standi aðeins jafnfætis öðrum höfundum þegar kemur að greiðslum úr sjóðnum. Innlent 8.9.2026 09:35
„Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir boðuð fjárlög ekki senda góð skilaboð inn í kjaraviðræður. Þungt hljóð sé í atvinnurekendum vegna efnahagsástandsins og boðaðar skattahækkanir hjálpi ekki til. Innlent 7.9.2026 21:28
„Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Rithöfundar og listamenn eru hvumsa yfir því að gert sé ráð fyrir því að framlög til bókasafnssjóðs verði skorin niður samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Formaður Rithöfundasambands Íslands segir þetta munu bitna mest á viðkvæmasta hópi rithöfunda. Innlent 7.9.2026 18:33
Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Frábært hjá ríkinu að ætla að skila hallalausum fjárlögum, það er löngu tímabært og núllið á spjaldinu var flott sjónvarpsefni. En til að núllið gangi upp, á nú að sækja 9 milljarða til viðbótar í ferðaþjónustuna, og þegar hækkun kílómetragjalds er talin með er reikningurinn nær 10 til 11 milljörðum. Um helmingur allrar nýrrar tekjuöflunar frumvarpsins er þannig sóttur í eina atvinnugrein. Skoðun 7.9.2026 18:00
Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Ríkisstjórnin leggur til að 21 milljarður króna fari í barnabætur árið 2027, sömu fjárhæð og í ár. Á sama tíma á að hækka ýmis krónutölugjöld ríkisins um 5,2 prósent. Innlent 7.9.2026 16:58
Klórar sér í kollinum Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segist klóra sér í kollinum yfir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Hann segir að við fyrstu sýn virðist frumvarpið gera lítið fyrir kjomandi kjaraviðræður, áhrif á persónuafslátt og barnabætur séu sérlega vond. Innlent 7.9.2026 15:35
Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkissjóður fær 3,1 milljarði króna meira í tekjuskatt árið 2027 en ef núverandi regla héldi sér. Innlent 7.9.2026 14:54
Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárlagafrumvarpið þegar hafa haft áhrif á skuldabréfamarkaðinn. Fjárfestar verðleggi nú meiri verðbólgu á næsta ári en fyrir helgi. Gjaldahækkanir ríkisins valdi vonbrigðum og sendi röng skilaboð þegar kjarasamningar eru til endurskoðunar. Viðskipti innlent 7.9.2026 14:14
Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Framkvæmdastjóri Samtaka í ferðaþjónustu segir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár fela í sér reiðarslag fyrir ferðaþjónustu á Íslandi en stór hluti tekjuaukningar ríkisins kemur frá ferðaþjónustunni. Aukin skattheimta séu gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí,“ sem nemi helmingi heildarafkomu greinarinnar árið 2024. Viðskipti innlent 7.9.2026 14:03
Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða Dregið verður úr framlögum til Loftslags- og orkusjóðs um 3,2 milljarða króna á næsta ári ef fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar verður samþykkt óbreytt. Niðurskurðurinn nemur ríflega helmingi þeirra rafbílastyrkja sem sjóðurinn útdeildi í fyrra. Innlent 7.9.2026 13:24
„Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár fela í sér þyngri byrðar á bæði fjölskyldur og fyrirtæki. Hærri álögur komi ekki í stað varanlegs aðhalds í ríkisrekstri. Innlent 7.9.2026 13:21
„Hvar ætla þau þá að spara?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja jákvætt að ríkisstjórnin stefni að hallalausum ríkisrekstri en segja að það hangi á bláþræði hvort það muni takast og óttast að áætlanir muni ekki halda. Þá segist þingmaður Miðflokksins óljóst hvar skera eigi niður á meðan þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bankaskatt eiga eftir að bitna mest á skuldurum. Innlent 7.9.2026 12:58
Fjárfestar veðja á meiri verðbólgu en áður eftir kynningu á fjárlagafrumvarpi Þrátt fyrir áform um hallalausfjárlög á komandi ári, sem nemur 0,1 prósenti af landsframleiðslu, hafa skuldabréfafjárfestar tekið fremur illa í fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar en verðbólguvæntingar á markaði hafa hækkað umtalsvert í morgun. Fjármálaráðherra boðar að aðhaldsstig ríkisfjármálanna, sem er áætlað lítillega neikvætt á þessu ári, verði „allnokkuð“ en samhliða því er útlit fyrir að hreinn lánsfjárjöfnuður batni umtalsvert á árinu 2027. Innherji 7.9.2026 12:43