
Samgöngur

Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair
Icelandair sló farþegamet árið 2024 en flogið var með tæplega fimm milljónir farþega. Metsætanýting var í desember en átján prósenta munur var á milli ára.

Hvernig væri að Isavia setti viðskiptavini sína í forgang?
Forgangsröðun Isavia virðist á sumum sviðum vera nokkuð skökk.

Strætómiðinn dýrari
Ný gjaldskrá hjá Strætó mun taka gildi tekur gildi þann næstkomandi miðvikudag, þann 8. Janúar. Stakt fargjald mun hækka um tuttugu krónur og fara úr 650 krónum upp í 670 krónur.

Þarf að taka hápólitískar ákvarðanir vegna Sundabrautar
Framkvæmdir við Sundabraut verða boðnar út á Evrópska efnahagssvæðinu að sögn verkefnisstjóra hjá Vegagerðinni. Ef allt gangi upp verði Sundabraut komin í gagnið árið 2032. Margir komi að ákvörðunartöku og mismunandi hagsmunir sem þurfi að taka tillit til í ferlinu

Sundabraut forgangsmál, fjármögnuð með veggjöldum
Ný ríkisstjórn hittist á vinnufundi í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum á morgun og er búist við að fundurinn standi allan daginn að sögn samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra. Hann segir að forgangsverkefni sitt sé að hefja framkvæmdir á Sundabraut. Framkvæmdin verði fjármögnuð með innheimtu veggjalda

Þróuðu vefsíðu sem segir til um umferð
Ungur forritari hvetur fólk til að nota nýja vefsíðu sem segir til um hve mikil umferð er á höfuðborgarsvæðinu. Vefsíðan geti komið sér vel, nú þegar fólk er í óða önn að undirbúa áramótin.

Sjö daga þjóðarsorg lýst yfir í Suður-Kóreu
Ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur lýst yfir sjö daga þjóðarsorg vegna mannskæðs flugslyss sem varð í landinu í dag. Fánar verða dregnir í hálfa stöng og opinberir starfsmenn munu bera svartar slaufur.

Súðavíkurhlíð opin til 16
Búið er að opna fyrir umferð um Súðavíkurhlíð, en vegna snjóflóðahættu verður veginum lokað aftur klukkan 16 í dag. Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu.

Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði
Opnað var fyrir umferð um Hellisheiði og Þrenglsaveg í nótt, enn er lokað á Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Þá er ófært um Ísafjarðardjúp og Steingrímsfjarðarheiði.

Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland
Nýr flugvöllur sem verið er að gera við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands, mun hafa gríðarleg áhrif á atvinnulíf og samgöngur í landshlutanum. Hann mun einnig gagnast Íslendingum sem eru með starfsemi á svæðinu.

Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum
Spáð er suðaustanstormi á vestanverðu landinu í nótt og til morguns, og hríðarveðri norðanlands annað kvöld. Gul veðurviðvörun tekur gildi eftir miðnætti um allt land fyrir utan austfirði og suðausturland. Vegir gætu víða orðið mjög hálir meðan snjó og klaka leysir.

Færeyingar fagna tvennum göngum
Mannfjöldi fagnaði opnun tveggja nýrra jarðganga á Borðey í Færeyjum fyrir helgi, Árnafjarðarganga og Hvannasundsganga. Saman nefnast þau Göngin norður um Fjall og eru samtals 4,2 kílómetra löng.

Mikilvægi samgöngusáttmála fyrir Vestfirði
Á síðustu vikum hefur Vestfirðingar vakið athygli á nauðsyn samgöngubóta í fjórðungnum undir merkjum „Vestfjarðalínu“. Þetta ákall um sterkari samgönguinnviði Vestfjarða vísar til öflugra heilsárstenginga innan atvinnusvæða, öruggari samgangna milli svæða, og að leiðin frá höfuðborgarsvæðinu yrði að mestu leyti láglendisvegur.

Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur
Í byrjun árs 2025 stefnir Strætó að því að byrja að leggja fargjaldaálag á þá farþega sem ekki geta sýnt fram á gilt fargjald við eftirlit. Fargjaldaálagið verður almennt 15 þúsund krónur en 7.500 krónur á ungmenni og aldraða. Á öryrkja verður gjaldið 4.500 krónur. Ekki verður innheimt fargjaldaálag af börnum yngri en 15 ára. Börn yngri en 15 ára verða ekki krafin um fargjaldaálag.

Fastir í Múlagöngum í tvo tíma
Starfsmenn úr áhöfn Freyju, nýjasta varðskipi Landhelgisgæslunnar, voru fyrir örskömmu að losna úr Múlagöngum, sem liggja á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.

Múlagöng lokuð vegna bilaðrar hurðar
Lokað er fyrir umferð um Múlagöng á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur vegna bilunar í hurðarbúnaði. Viðgerðarmenn eru að mæta á svæðið.

Lykilatriði að nota alltaf sama kortið til að greiða fargjaldið
Nú er hægt að borga með korti, síma, úri eða öðrum snjalllausnum í öllum vögnum Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Farþegar greiða aldrei fyrir fleiri en þrjár ferðir sama daginn. Framkvæmdastjóri segir lykilatrið að nota alltaf sama kortið svo það virki.

Hægt að borga með korti í strætó
Frá og með deginum í dag er hægt að borga snertilaust með korti í Strætó í gegnum Klapp greiðslukerfið. Fyrirkomulagið hefur verið í prófun hjá fyrirtækinu og er nú komið í fullna virkni að því er segir í tilkynningu frá Strætó.

Dynjandisheiði boðin út með verklokum haustið 2026
Lokaáfanginn í uppbyggingu Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði verður boðinn út á morgun, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Til stóð að bjóða verkið út mun fyrr og sökuðu talsmenn Vestfirðinga stjórnvöld um svik fyrr á árinu þegar því var slegið á frest.

Yfirlit yfir allar framkvæmdir Samgöngusáttmálans
Fólk getur nú kynnt sér allar framkvæmdir við stofnvegi, Borgarlínu og göngu- og hjólastíga á nýrri upplýsingagátt sem heitir Verksja.is

Airbus-þotu Icelandair lent á Akureyri og Egilsstöðum
Hin nýja Airbus-þota Icelandair, Esja, heldur í fyrramálið, á sunnudagsmorgni, í flug frá Keflavík til æfingalendinga á varaflugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum. Aðaltilgangur flugsins er að þjálfa flugmenn þotunnar en flugáhugamönnum bæði norðanlands og austan gefst um leið tækifæri til að sjá hana lenda og taka á loft.

Flugstöð og flughlað vígð á afmæli Akureyrarflugvallar
Ný flugstöð og nýtt flughlað voru vígð við hátíðlega athöfn á Akureyrarflugvelli síðdegis. Samtímis var fagnað sjötíu ára afmæli flugvallarins.

Styttum biðtímann í umferðinni
Biðtíminn og pirringurinn í umferðinni eykst með hverju ári. Ástæðan er að ekki hefur verið farið í uppbyggingu nauðsynlegra samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu á síðustu áratugum, á sama tíma hefur bifreiðaeign á svæðinu margfaldast. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins tekur að einhverju leiti á þessu máli. Ár og áratugir munu líða þar til allar væntingar um framkvæmd samgöngusáttmálans nái fram að ganga, á meðan munum við íbúar á höfuðborgarsvæðinu vera áfram í umferðarteppum.

Drónaflugmenn þurfa nú að skrá sig
Allir drónaflugmenn þurfa nú að skrá sig á þar til gerðri vefsíðu og flugmenn dróna sem vega meira en 250 grömm þurfa að taka próf og fá hæfnivottorð.

Ástand á Reykjanesbrautinni
Viðbragðsaðilar eru á fjórum vettvöngum á Reykjanesbraut þar sem árekstrar eða óhöpp hafa orðið. Ekki er vitað um slys á fólki.

Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“
Vegagerðin skýrði frá því í dag að hún undirbúi núna útboð vegna þriðja áfanga nýbyggingar Vestfjarðarvegar um Dynjandisheiði á um 7,3 kílómetra kafla og einnig á um eins kílómetra kafla á Dynjandisvegi. „Áætlað er að útboðið fari í loftið á allra næstu dögum,“ segir í frétt Vegagerðarinnar.

Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga
Styrkur svifryks sem kemur frá bílaumferð hefur mælst hár á nokkrum stöðum í Reykjavík í dag. Búast má við áframhaldandi loftmengun næstu daga vegna umferðar, kulda og þurrks og eru borgarbúar hvattir til að draga úr notkun einkabíla.

Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli
Grænlendingar fagna í dag nýjum alþjóðflugvelli í Nuuk. Opnun vallarins er sögð marka þáttaskil í samgöngum Grænlands við umheiminn og var almenningi boðið til hátíðar með tónleikum og veisluhöldum í dag og flugeldasýningu í kvöld.

Plan í skipulags- og samgöngumálum í lítilli bílaborg
Meirihluti borgarstjórnar er með plan í skipulags- og samgöngumálum. Já, þið lásuð rétt, það er ekki bara Samfylkingin sem er með plan heldur líka Viðreisn, Framsókn og Píratar.

Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins
Boðað hefur verið sannkallaðrar þjóðhátíðar í Nuuk á fimmtudag með tónleikum, veisluhöldum og flugeldasýningu. Tilefnið er opnun nýs alþjóðaflugvallar og fyrsta lending stórrar farþegaþotu í höfuðstað Grænlands.