Úkraína
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 79 ›
Johnson í erfiðri stöðu Frumvarp um frekari hernaðaraðstoð frá Bandaríkjunum til Úkraínu hefur færst nær því að verða lagt fyrir fulltrúadeild Bandaríkjaþings, eftir að hafa setið þar fast í marga mánuði. Mike Johnson, þingforseti, kæmi frumvarpinu ekki í gegnum þingið án aðstoðar Demókrata og það gæti þar að auki kostað hann embættið. Erlent 18.4.2024 16:38
Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Þrettán eru sagðir fallir í það minnsta og rúmlega sextíu særðir eftir að þrjú rússnesk flugskeyti hæfðu íbúðarblokk nærri miðborg Tsjérnihiv í norðanverðri Úkraínu í morgun. Enn er leitað að fórnarlömbum í húsarústum. Erlent 17.4.2024 11:18
Áætla að yfir 50.000 rússneskir hermenn hafi fallið í átökunum Fleiri en 50.000 rússneskir hermenn hafa nú fallið í átökunum í Úkraínu, samkvæmt BBC. Mannfallið var 25 prósent meira á öðru ári átakanna, ef talið er í mánuðum frá því að innrásin hófst, heldur en fyrstu tólf mánuðina. Erlent 17.4.2024 06:49
Sirskí segir stöðuna hafa versnað töluvert Staða Úkraínumanna á víglínunni í Austur-Úkraínu hefur versnað töluvert á undanförnum dögum. Þetta segir Oleksandr Sirskí, yfirmaður herafla Úkraínu, en hann segir Rússa hafa gefið töluvert í á undanförnum vikum. Erlent 13.4.2024 14:01
Samþykktu loks frumvarp um herkvaðningu Úkraínska þingið samþykkti í morgun nýtt frumvarp um það hvernig haldið er utan herkvaðningu. Frumvarpið hefur verið til umræðu í þinginu í marga mánuði og tekið umfangsmiklum breytingum. Lögin þykja óvinsæla en fela meðal annars í sér að lækka lágmarksaldur herkvaðningar úr 27 árum í 25 ár og auðvelda yfirvöldum að kveðja menn í herinn. Erlent 11.4.2024 11:52
Erfiðir dagar í vændum á óreiðukenndu þingi Bandarískir þingmenn snúa aftur úr tveggja vikna páskafríi í dag, þriðjudag, en þeir standa frammi fyrir þó nokkrum umdeildum og erfiðum málum. Óreiða hefur einkennt þingið þetta kjörtímabil og þá sérstaklega í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem Repúblikanaflokkurinn hefur haft nauman og minnkandi meirihluta. Erlent 9.4.2024 08:00
Grossi varar við drónaárásum á Zaporizhzhia-kjarnorkuverið Rafael Grossi, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, hefur fordæmt drónaárásir á einn af sex kjarnakljúfum Zaporizhzhia-kjarnorkuversins í Úkraínu Erlent 8.4.2024 06:44
Felldu þrjá slökkviliðsmenn með drónum í Karkív Að minnsta kosti fjórir létu lífið í nótt þegar sjálfsprengidrónum var flogið á tvö fjölbýlishús og orkuver í Karkív, næst stærstu borg Úkraínu. Rússar hafa látið sprengjum rigna yfir borgina á undanförnum vikum og valdið þar miklum skemmdum og mannfalli. Erlent 4.4.2024 15:14
Tónleikahöllin var nefnd sem mögulegt skotmark ISKP Bandarískir embættismenn vöruðu rússneska kollega sína við því að tónleikahöllin í Crocus væri mögulegt skotmark vígamann Íslamska ríkisins í Khorasan, eða ISKP, rúmum tveimur vikum áður en fjórir menn myrtu þar minnst 144. Ráðamenn í Rússlandi hunsuðu viðvörunina og Vladimír Pútín, forseti, sagði nokkrum dögum fyrir árásina að Vesturlönd væru að reyna að kúga Rússland. Erlent 3.4.2024 13:00
Herkvaðningaraldurinn lækkaður úr 27 árum í 25 ár Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að herkvaðningaraldurinn verði lækkaður úr 27 ára í 25 ára. Erlent 3.4.2024 06:32
„Lifum á þýðingamestu tímum frá endalokum seinni heimsstyrjaldarinnar“ Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands segir Evrópu vera á „fyrirstríðstímum“ og varar við því að Úkraína megi ekki lúta í lægra haldi fyrir Rússlandi. Heimsálfan eigi mikið undir og stríð ekki lengur draugar fortíðar. Erlent 30.3.2024 08:37
Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Degi áður en sendiráð Bandaríkjanna í Moskvu gaf út opinbera viðvörun um mögulegar árásir öfgamanna á tónleika eða aðra samkomustaði í Moskvu höfðu starfsmenn Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) í Moskvu sent rússneskum kollegum sínum sambærileg skilaboð. Erlent 28.3.2024 19:59
Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Alexander Bortnikov Yfirmaður Leyniþjónustu Rússlands, FSB, lýsti því yfir í dag að Úkraínumenn hefðu þjálfað íslamska öfgamenn í Mið-Austurlöndum og bæru ábyrgð á árásinni á tónleikahöllina í Crocus um helgina. Þá bendlaði hann Bandaríkjamenn og Breta við árásina. Erlent 26.3.2024 22:31
Beinir spjótunum enn að Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir öfgamenn úr röðum íslamista hafa gert árásina á tónleikahöllina í Crocus um helgina en beinir spjótum sínum þó áfram að Úkraínu og Bandaríkjunum. Í ræðu í kvöld gaf hann í skyn að árásarmennirnir hefðu fengið borgað fyrir árásina og frá Úkraínu. Erlent 25.3.2024 22:01
Pólverjar virkja aukinn viðbúnað eftir „gríðarlegar“ árásir Pólski flugherinn hefur virkjað aukinn viðbúnað í kjölfar loftárásarhrinu Rússa í Kyiv höfuðborg Úkraínu og Lviv í austurhluta landsins. Um er að ræða þriðju árásirnar um nótt á fjórum dögum. Erlent 24.3.2024 07:58
Umfangsmiklar árásir á Úkraínu Rafmagnsleysi hefur orðið víða í Úkraínu eftir umfangsmikla árás Rússa á orkuinnviði landsins í nótt og í morgun. Úkraínumenn segja Rússa hafa notað rúmlega sextíu Shahed-sjálfsprengidróna frá Íran og tæplega níutíu eld- og stýriflaugar. Erlent 22.3.2024 11:56
Samkomulag að nást um að nýta vexti af Rússaeignum í þágu Úkraínu Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandins hafa komist að samkomulagi um að veita vöxtum af þeim eignum Rússa sem hafa verið frystar í refsiaðgerðum sambandsins til að fjármagna varnir Úkraínumanna. Erlent 22.3.2024 06:39
Ræða að veita vöxtum af frystum eignum Rússa til Úkraínu Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins munu funda í Brussel í dag en á dagskránni verða meðal annars umdeildar hugmyndir um að veita vöxtum af frystum eignum Rússa til Úkraínu. Erlent 21.3.2024 07:09
Rússar segja íslenska málaliða í Úkraínu María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, segir íslenska málaliða berjast í Úkraínu, sem er ekki rétt. Hún gagnrýnir að Alþingi Íslendinga sé að skoða að festa stuðning við Úkraínu í sessi og að verið væri að endurskoða opinber samskipti Rússlands og Íslands. Erlent 20.3.2024 15:20
Vill festa stuðning við Úkraínu í sessi Utanríkisráðherra kynnti þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára á Alþingi í dag. Markmið stefnunnar er að festa umfangsmikinn stuðning Íslands við Úkraínu í varnarstríði sínu gegn innrásarliði Rússlands í sessi til langframa. Innlent 19.3.2024 23:23
Úkraínumenn senda fjölda dróna langt inn í Rússland Varnarmálaráðuneyti Rússlands sakar stjórnvöld í Úkraínu um að hafa reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í landinu með einni umfangsmestu drónaárás sem Úkraínumenn hafa gert á Rússland. Erlent 18.3.2024 08:24
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Pútín sagður ætla að „taka til“ eftir kosningarnar Hægt hefur á sókn Rússa vestur af Avdívka, fyrstu borgina sem fallið hefur í hendur Rússa um langt skeið. Rússneskir hermenn gera þó áfram tiltölulega smáar árásir víðsvegar á víglínunni í austurhluta Rússlands, að virðist í leit að veikleikum á vörnum Úkraínumanna. Erlent 17.3.2024 08:00
Látinn horfa á hermenn nauðga óléttri móður sinni og kærustu Rússneskir hermenn ruddust inn á heimili í Kyiv-héraði í Úkraínu í mars 2022, skömmu eftir að innrás Rússa hófst. Þar nauðguðu þeir 42 ára konu sem gengin var þrjá mánuði á leið og sautján ára kærustu sonar hennar ítrekað, á meðan þeir þvinguðu soninn til að horfa á. Erlent 16.3.2024 16:01
Segir Úkraínumenn ekki skorta hugrekki, heldur skotfæri Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, varaði við því í dag að Úkraínumenn glímdu við mikinn skotfæraskort og þyrftu meiri stuðning frá bakhjörlum þeirra. Hann sagði bakhjarla Úkraínu skorta pólitískan vilja. Erlent 14.3.2024 15:02
„Vopnin eru til þess að nota þau“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ítrekaði enn eina ferðina í morgun að Rússar væru tilbúnir fyrir kjarnorkustyrjöld. Notkun slíkra vopna kæmi til greina ef öryggi Rússlands eða fullveldi væri ógnað. Erlent 13.3.2024 13:52
Úkraínumenn hafi fundið fyrir miklum stuðningi hér á landi Sendinefnd þingmanna frá Úkraínu sem skipa vinahóp Íslands á Úkraínuþingi kom til landsins í gær. Tilgangur heimsóknarinnar er meðal annars að efla tvíhliða samskipti landanna og ræða þann stuðning sem íslensk stjórnvöld hafa veitt úkraínsku þjóðinni. Innlent 12.3.2024 18:19
Senda fleiri eldflaugar og fallbyssur til Úkraínu Yfirvöld í Bandaríkjunum eru sögð ætla að tilkynna í dag nýjan fjögur hundruð milljóna dala pakka af hernaðaraðstoð til Úkraínu. Þetta yrði fyrsti pakkinn af þessu tagi frá Bandaríkjunum í nokkra mánuði en fjárveitingar til hernaðaraðstoðar situr fastur í bandaríska þinginu. Erlent 12.3.2024 16:50
Gerðu árásir í átta héruðum Rússlands Úkraínumenn gerðu umfangsmiklar drónaárásir í að minnsta kosti átta héruðum Rússlands í nótt. Í einu tilfelli var gerð árás á olíuvinnslustöð í um 775 kílómetra fjarlægð frá landamærum Úkraínu. Þá hafa rússneskir menn sem berjast með Úkraínu gert aðra atlögu inn í Belgórodhérað og Kúrskhérað í Rússlandi. Erlent 12.3.2024 10:42
Alþjóðahreyfingin krafin aðgerða vegna Rauða krossins í Rússlandi Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er nú sögð sæta þrýstingi af hálfu þjóða sem leggja samtökunum til fjármagn um að grípa til aðgerða vegna þjónkunnar Rauða krossins í Rússlandi við þarlend stjórnvöld. Erlent 12.3.2024 07:03
Mátu helmingslíkur á kjarnorkustyrjöld haustið 2022 Haustið 2022 mátu yfirvöld í Bandaríkjunum stöðu mála í Úkraínu þannig að það væru helmingslíkur á að stjórnvöld í Rússlandi myndu beita kjarnorkuvopnum til að stöðva Úkraínumenn ef herinn kæmist í gegnum varnir Rússa á Krímskaga. Erlent 12.3.2024 06:21