Fréttir
152 153 154 155 156 157 158 159 160 … 334 ›
Mótmælir gjaldtöku við Egilsstaðaflugvöll með gagnkvæmu skutli Sérstökum hóp hefur verið komið upp á Facebook til að komast hjá því að greiða ný bílastæðagjöld á Egilsstaðaflugvelli með því að skutla og ná gagnkvæmt í flugfarþega út á völl. Sveinn Snorri Sveinsson stofnandi hópsins segir ekki um mótmæli að ræða heldur aðgerðir. Innlent 17.7.2024 17:00
Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Konur í fræðasamfélaginu hafa hneykslast á skýrslu um stöðu drengja í menntakerfinu, sem greinandi hjá CCP vann að beiðni tveggja ráðherra. Bæði vekur há upphæð, sem greidd var fyrir skýsluna, athygli en einnig inntak skýrslunnar og framsetning. Innlent 17.7.2024 15:52
Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Erna Magnúsdóttir dósent í læknadeild Háskóla Íslands skrifaði athugasemd við færslu á Facebook þar sem hún sagðist hafa óskað þess að skotmaðurinn sem gerði banatilræði gegn Donaldi Trump forsetaframbjóðanda hefði hæft hann. Erna segist standa við orð sín en að auðvelt sé að taka þau úr samhengi. Innlent 17.7.2024 14:23
Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Ómar Valdimarsson lögmaður hefur verið hirtur af úrskurðarnefnd lögmanna fyrir tölvupósta sem hann sendi dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, dómstjóra sama dómstóls og 26 öðrum lögmönnum. Ómar sendi dómaranum bréf þar sem hann kvartaði undan lágri dæmdri málsvarnarþóknun og sagðist þurfa að segja upp starfsmanni vegna hennar. Innlent 17.7.2024 14:17
Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Á vefsíðunni Booking.com má finna auglýsingu þar sem boðið er upp á gistingu í Hornafirði í fullútbúnu tjaldi, og er verðið í kringum þrettán þúsund krónur. Gistingin virðist almennt falla vel í kramið á gestum, en umsagnir eru flestar jákvæðar. Innlent 17.7.2024 13:40
Íslendingur á sextugsaldri fannst látinn í Taílandi Íslenskur maður á sextugsaldri fannst látinn á hóteli í Samut Prakan í Taílandi. Lögregla rannsakar málið en engin merki um átök fundust í herberginu. Málið er sagt dularfullt. Innlent 17.7.2024 13:39
Dvaldi lengi í Engey áður en hún synti til baka í flasið á hvalaskoðunarskipi Kona sem viðbragðsaðilar leituðu að aðfaranótt sunnudags eftir að tilkynning barst um að hún hefði farið í sjóinn við Granda í Reykjavík fannst á lífi á mánudag. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það fólk í hvalaskoðunarbát sem fann hana. Innlent 17.7.2024 13:11
Biden leggur lokahönd á tillögur að breytingum á hæstarétti Joe Biden Bandaríkjaforseti er að leggja lokahönd á tillögur að breytingum á lögum um hæstarétt, sem munu meðal annars fela í takmörk á skipunartíma dómara. Erlent 17.7.2024 12:48
Metfjöldi sérsveitarmanna á Þjóðhátíð í sumar Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur áhyggjur af því að ofbeldi og vopnaburður muni aukast á Þjóðhátíð í sumar þegar þúsundir ungmenna frá höfuðborgarsvæðinu og víðar streyma til eyjunnar. Hann segir lögregluna hafa gripið til ráðstafana vegna þessa og viðbúnaður á hátíðinni hafi aldrei verið meiri. Innlent 17.7.2024 12:16
Ákærður fyrir að stinga mann í heimahúsi í Súðavík Ungur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að stinga annan mann í heimahúsi í Súðavík þann 11. júní síðastliðinn. Innlent 17.7.2024 11:47
Veitingamenn berjist í bökkum Veitingamennirnir Aðalgeir Ásvaldsson og Simmi Vill segja að rekstrarumhverfi veitingastaða á Íslandi sé erfitt, gjaldþrot séu regluleg. Veitingamenn séu almennt ekki að okra, þótt finna megi undantekningar til dæmis á fjölförnum ferðamannastöðum. Þeir segja að óvíða sé harðari samkeppni en í veitingabransanum. Innlent 17.7.2024 11:43
Kórónuveiran, Skaginn og viðbúnaður á Þjóðhátíð Bráðsmitandi afbrigði kórónuveirunnar virðist í dreifingu segir fagstjóri hjúkrunar. Óvenju margar pestir herja nú á landsmenn. Frá þessu verður greint í hádegisfréttum á Bylgjunni klukkan tólf. Fréttir 17.7.2024 11:41
Stórhættulegur framúrakstur á Holtavörðuheiði Róbert Marvin Gíslason, tölvunarfræðingur og rithöfundur, var litlu frá því að lenda í alvarlegum árekstri á Holtavörðuheiði á mánudag þegar bílstjóri sendibíls tók fram úr honum á glannalegan hátt, bíll kom nefnilega akandi úr hinni áttinni og mjóu munaði að hann skylli framan á sendibílinn. Innlent 17.7.2024 11:28
Bretar samþykkja sölu dýrafóðurs úr ræktaðri kjötvöru Yfirvöld á Bretlandseyjum hafa veitt fyrirtækjunum Meatly og Omni heimild til að framleiða og selja dýrafóður sem er unnið úr kjöti sem hefur verið ræktað á tilraunastofu. Erlent 17.7.2024 11:28
Íslensk kona og fjölskylda hennar á sjúkrahúsi eftir árás á Krít Ráðist var á íslenska konu og fjölskyldu hennar á grísku eyjunni Krít. Konan sem er 41 árs, kanadískur eiginmaður hennar og tveir synir, 21 og 18 ára, voru flutt á sjúkrahús í kjölfar árásarinnar. Innlent 17.7.2024 10:50
Diljá Mist segir hræsni einkenna íslenska femínista Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins dró ekki af sér í hlaðvarpsþættinum Ein pæling; hún sagði innflytjendur fá „súkkulaðipassa“ hjá íslenskum femínistum í mannréttindamálum. Hún talaði umbúðalaust út um skoðun sína á íslenskum femínistum sem hún telur hræsnara. Innlent 17.7.2024 10:47
Sérsveit þurfti ekki að skerast í leikinn vegna ferðamanns á tjaldstæði Lögreglan á Vesturlandi óskaði eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra í gærkvöldi vegna tilkynningar um mann með hnífa. Sérsveitin þurfti þó ekki að fara í neina sérstaka aðgerð vegna málsins, en lögreglan á Vesturlandi útkljáði málið sjálf. Innlent 17.7.2024 10:44
Frjósemi á Íslandi aldrei verið minni en í fyrra Frjósemi á Íslandi hefur aldrei verið minni en í fyrra frá því mælingar hófust fyrir um 170 árum síðan. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Hagstofu Íslands, en þar segir að fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi í fyrra hafi verið 4.315 sem er fækkun frá 2022 þegar fædd börn voru 4.382. Meðalaldur mæðra hefur einnig hækkað jafnt og þétt undanfarna áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður. Innlent 17.7.2024 10:31
Eitraði fyrir sjálfri sér og ferðafélögum sínum með blásýru Blásýra fannst í tebollum á Grand Hyatt Erawan-hótelinu í Bangkok á Taílandi þar sem sex fundust látnir á þriðjudag. Einn af látnu er grunaður um að hafa eitrað fyrir hópnum. Erlent 17.7.2024 10:13
Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs Í dag hefur breska þingið störf eftir stórsigur Verkamannaflokksins í kosningum fyrr í mánuðinum. Eins og hefð er fyrir heldur Karl III Bretakonungur ræðu í þinghúsinu við tilefnið. Ræða konungs er eins konar stefnuyfirlýsing nýviðtekinnar ríkisstjórnar og er skrifuð af ríkisstjórnarliðum. Erlent 17.7.2024 10:10
Telur ekki trúlegt að komið verði á samkomutakmörkunum Margrét Héðinsdóttir, fagstjóri hjúkrunar og upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir fleiri erindi á borði upplýsingamiðstöðvarinnar núna en voru í janúar og febrúar. Skæðar og smitandi veirusýkingar, þeirra á meðal kórónaveiran, séu í gangi og mikið álag á heilsugæslum landsins. Innlent 17.7.2024 09:13
Laðar fjárfesta að til að halda Skaganum á Skaganum Bæjarstjóri Akraness segir bæjarstjórn gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að halda Skaganum 3X í bænum. Innlent 17.7.2024 08:50
Íranir hafna aðild að banatilræðinu Íranir hafnar ásökunum bandaríska embættismanna um samsæri til að ráða Trump af dögunum. Ásakanirnar tengjast þó ekki banatilræðinu gegn Trump á kosningafundi í Pennsylvaníu á laugardaginn síðasta. Íranir þvertaka fyrir aðild að því. Erlent 17.7.2024 08:30
Ekkert nema ást og aðdáun á landsþingi Repúblikana Nikki Haley, fyrrverandi keppinautur Donald Trump í forvali Repúblikanaflokksins fyrir foretakosningarnar í Bandaríkjunum, fór fögrum orðum um manninn þegar hún steig á svið á landsþingi flokksins í gær. Erlent 17.7.2024 07:51
Valið á Vance fyrirboði einangrunarhyggju í utanríkismálum Sérfræðingar í utanríkismálum eru uggandi eftir að Donald Trump tilkynnti um val sitt á varaforsetaefni. Valið bendi til þess að einangrunarhyggja muni mögulega ráða för í utanríkispólitík Bandaríkjanna ef Trump nær kjöri. Erlent 17.7.2024 07:02
Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö Sænska lögreglan rannsakar nú mál þar sem tvö lík fundust skotin og brunnin í bílaleigubíl á iðnaðarsvæði í Malmö. Um var að ræða ökumann og farþega sem virðast hafa verið drepnir á sunnudag, samkvæmt Aftonbladet. Erlent 17.7.2024 06:33
Þrjár líkamsárásir, vinnuslys og mannlaus bíll á ferð Tveir menn voru handteknir í Seljahverfi í gær, fyrir sitthvora líkamsárásina. Báðir voru vistaðir í fangageymslu. Þá var þriðji maðurinn handtekinn fyrir líkamsárás í póstnúmerinu 213. Innlent 17.7.2024 06:15
Grunar að Íranir hafi skipulagt morð á Trump fyrir atburði vikunnar Öryggisgæsla í kring um Donald Trump var fyrir nokkrum vikum aukin þegar bandarísk yfirvöld komust á snoðir um að yfirvöld í Íran hafi ætlað að ráða Trump af dögum. Erlent 17.7.2024 00:11
„Væri ekki að fara ef ekki væri fyrir góðvild fólks“ Tinna Rúnarsdóttir, sem ættleidd var frá Sri Lanka fyrir fjörutíu árum, er á leið út á vit ættingja sinna. Hún hóf leit að blóðforeldrum sínum fyrr á árinu en við hana kom í ljós að móðir hennar hefði verið myrt fyrir meira en tuttugu árum. Tinna er atvinnulaus fjögurra barna móðir og hefur því sett af stað söfnun vegna ferðarinnar. Hún þakkar allan stuðninginn sem hún hefur þegar fengið. Innlent 16.7.2024 23:46
Fyrsta heimasmíðaða útvarp landsins til sýnis Fyrsta heimasmíðaða útvarpstæki landsins, sem smíðað var 1923 á Seyðisfirði vekur nú mikla athygli gesta á Samgöngusafninu á Skógum undir Eyjafjöllum. Innlent 16.7.2024 22:52