Innlent

Til­kynnt í annar­legu á­standi og reyndist vera á stolnum bíl

Agnar Már Másson skrifar
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í dag.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í dag. Vísir/Vilhelm

Lögreglu barst tilkynning um konu í annarlegu ástandi á bifreið á höfuðborgarsvæðinu. Þegar lögreglumenn gáfu sig á tal við hana reyndist hún vera á stolinni bifreið.

Frá málinu er greint í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag og þar segir að konan hafi verið handtekin og vistuð í fangaklefa en látin laus að skýrslutöku lokinni.

Málinu er ekki lýst frekar í dagbók lögreglu en það er bókfært hjá lögreglustöð 4 sem sinnir verkefnum austan Elliðaáa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×