Fréttir
262 263 264 265 266 267 268 269 270 … 334 ›
Maður á fertugsaldri talinn hafa verið myrtur í sumarhúsi Grunur er um manndráp í sumarhúsi í Árnessýslu. Fjórir hafa verið handteknir á grundvelli rannsóknarhagsmuna að sögn lögreglunnar. Rannsókn málsins er á frumstigi og segir lögreglan að því verði ekki veittar frekari upplýsingar að svo stöddu. Innlent 20.4.2024 18:01
Grunur um manndráp á Suðurlandi, Kári Stefánsson og ropandi kýr Karlmaður á fertugsaldri er talinn hafa verið myrtur í sumarhúsi á Suðurlandi. Fjórir hafa verið handteknir. Innlent 20.4.2024 18:00
Ók á vegg eftir stutta eftirför Ökumaður klessti á vegg eftir stutta eftirför lögreglu. Hann er óslasaður en grunur er á um að hann hafi verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Hann var tekinn höndum og færður á lögreglustöð þar sem tekin verður skýrsla af honum þegar runnið hefur af honum. Innlent 20.4.2024 17:55
„Ég er neyddur til að vera með rándýra tunnu” Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði beiðni íbúa Reykjavíkurborgar um að sorptunnugjöld fyrir blandaðan heimilisúrgang og matarleifar yrðu felld niður. Björn Guðmundsson, efnafræðingur, kvartaði til nefndarinnar eftir að hann fékk rukkun frá borginni fyrir sorptunnugjaldi en hann notar hvoruga tunnuna. Innlent 20.4.2024 17:05
Kristrún varar við kæruleysi Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hvatti félagsmenn til að ganga sameinuð til verka. Hún hvatti þau til að vera þolinmóð, skipulögð og öguð og til þess að sýna almenningi að Samfylkingin geti unnið samkvæmt áætlun. Á sama tíma megi þau ekki verða kærulaus. Innlent 20.4.2024 16:51
Tugir þúsunda mótmæltu fjölda ferðamanna á Kanaríeyjum Tugir þúsunda mótmæltu á Tenerife, Lanzarote, Gran Canaria og fleiri eyjum í Kanaríeyjaklasanum í dag. Mótmælendur segja eyjarnar við þolmörk. Það verði að takmarka fjölda ferðamanna. Það sé of dýrt að búa þar og að nýting auðlinda sé ekki lengur sjálfbær. Erlent 20.4.2024 16:10
25 þjóðerni í Grundaskóla á Akranesi Það er búið að vera meira en nóg að gera hjá nemendum og starfsfólki Grundaskóla á Akranesi síðustu daga því þar voru haldnir fjölmenningardagar en nemendur frá tuttugu og fimm löndum eru í skólanum. Einn nemandi kemur frá Arúba, sem er eyja í Karíbahafi. Innlent 20.4.2024 14:31
Staðfesta risasekt Arnarlax Matvælaráðuneytið hefur staðfest 120 milljóna stjórnvaldssekt Matvælastofnunar á hendur Arnarlaxi vegna slysasleppinga á eldilaxi fyrirtækisins í Arnarfirði árið 2022. Innlent 20.4.2024 14:03
Lilja hjólar í Samfylkinguna: „Hver tekur Samfylkinguna alvarlega?“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi Samfylkinguna harðlega í ávarpi sínu á flokksþingi Framsóknarflokksins í dag. Hún sagði Samfylkinga hafa tekið upp þeirra stefnu, miðjustefnuna. Innlent 20.4.2024 13:53
Nauðsynlegt að koma í veg fyrir skautun og tvístrað samfélag Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, er stoltur af árangri flokksins í stjórnmálum og því hvernig flokkurinn fer með völdin. Hann ræddi verkefnin framundan og þeim sem lokið eru í ávarpi sínu á flokksþingi flokksins fyrr í dag. Innlent 20.4.2024 13:43
Fjögur börn meðal smitaðra af kíghósta Fjögur börn eru meðal þeirra sem hafa greinst með kíghósta á höfuðborgarsvæðinu. Sóttvarnalæknir hvetur þá sem telja sig finna til einkenna að hafa samband við heilbrigðisstarfsfólk. Innlent 20.4.2024 13:08
Formaður ávarpar flokksþing Framsóknar 37. Flokksþing Framsóknar er haldið í dag og á morgun á Hótel Hilton í Reykjavík. Framsókn heldur reglulegt flokksþing eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs. Innlent 20.4.2024 12:45
Bein útsending: Sigurður Ingi, Lilja og Einar ávarpa flokksþing Framsóknar 37. flokksþing Framsóknar fer fram um helgina og mun formaður flokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra flytja yfirlitsræðu sína klukkan 13. Innlent 20.4.2024 12:16
„Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segist alls ekki sjá neitt sem bendi til þess að annað eldgos sé að hefjast. Innlent 20.4.2024 11:46
Jarðhræringar, sprengjuhótun og kíghósti Eldfjallafræðingur telur ekkert benda til þess að nýtt eldgos sé við það að hefjast þrátt fyrir gögn Veðurstofunnar. Almannavarnir juku viðbúnað sinn í gær vegna hættu á öðru gosi. Innlent 20.4.2024 11:45
Sprengjuhótun í Billund Flugvöllurinn í Billund í Danmörku hefur verið rýmdur vegna sprengjuhótunar. Talsmaður flugvallarins, Dan Prangsgaard, staðfestir þetta í samtali við Ekstra Bladet. Erlent 20.4.2024 10:44
Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi sagðist ekki vilja tjá sig um Katrínu Jakobsdóttur, sem einnig gefur kost á sér til embættisins, þegar hún væri ekki viðstödd. Jón Gnarr, sem er líka að bjóða sig fram, segir smá meðvirkni í því að tjá sig ekki um aðra frambjóðendur þegar þeir gætu alveg verið á staðnum. Innlent 20.4.2024 10:11
Víða blautt í dag og varað við asahláku Í dag gengur í sunnan strekking eða allhvassan vind með súld eða rigningu sunnan- og vestanlands. Norðaustan til verður úrkomuminna. Síðdegis bætir í rigningu, og verður talsverð rigning á Vesturlandi. Hiti verður víða fimm til 12 stig, hlýjast í hnúkaþey fyrir norðan og austan. Veður 20.4.2024 09:15
Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Maður sem kveikti í sjálfum sér fyrir utan dómshús í New York-borg í gær er látinn. Í réttarsal dómshússins hefur verið réttað yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, síðustu daga. Erlent 20.4.2024 08:12
Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Tveir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar eftir hópslagsmál í miðbæ Reykjavíkur sem áttu sér stað í gærkvöldi eða nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en þar segir að málið sé í rannsókn. Innlent 20.4.2024 07:25
Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Lögreglan í New York telur ekki að karlmaður á fertugsaldri sem kveikti í sjálfum sér fyrir utan dómshús þar sem réttað er yfir Donald Trump hafi ætlað sér að skaða Trump eða aðra. Maðurinn er sagður í lífshættu á sjúkrahúsi. Erlent 20.4.2024 00:00
Getur gosið hvenær sem er Sviðsstjóri almannavarna segir að nýtt gos geti hafist á Reykjanesi hvenær sem er. Líklegast sé að gjósi þar sem kvika kemur upp núna á Sundhnúkagígaröðinni. Innlent 19.4.2024 23:29
Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Halla Hrund Logadóttir, Baldur Þórhallsson, og Jón Gnarr, forsetaframbjóðendur voru spurð í Pallborðinu á Vísi í dag út í það hvern þau myndu kjósa til embættis forseta Íslands ef þau væru ekki sjálf í framboði. Halla benti á að það væri einkamál hvers og eins hvern maður kysi. Innlent 19.4.2024 21:01
Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk nýja körfubíla afhenta með pompi og prakt í Hafnarfirði í morgun. Bílarnir komast mun hærra en þeir gömlu og gætu skipt sköpum við björgunarstörf. Innlent 19.4.2024 19:45
Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Móðir níu ára einhverfrar stúlku hefur tvívegis tilkynnt sig til barnaverndar í örvæntingafullri tilraun til að fá aðstoð fyrir dóttur sína. Á tímabili var vanlíðan stúlkunnar slík að hún missti lífsviljann. Innlent 19.4.2024 19:30
Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli í kvöld vegna farþegaþotu bandaríska Delta-flugfélagsins sem óskaði eftir að að fá að lenda vegna vandamáls um borð. Vélin var á leið frá Heathrow á Englandi til Los Angeles í Bandaríkjunum. Innlent 19.4.2024 19:27
Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Karlmaður kveikti í sjálfum sér í garði gegnt dómshúsinu þar sem réttarhöld yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fara fram á Manhattan í New York. Vegfarendur slökktu í manninum sem var fluttur burt á sjúkrabörum. Erlent 19.4.2024 19:00
Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Þjófarnir í Hamraborgarmálinu tóku ekki eftir poka sem innihélt milljónir króna í peningaflutningabílnum sem þeir stálu úr. Öryggismiðstöðin hefur ekki viljað tjá sig um málið. Innlent 19.4.2024 18:59
Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Fyrrverandi framkvæmdastjóri og formaður Blaðamannafélags Íslands (BÍ) er sagður hafa greitt sjálfum sér milljónir í fyrirframgreidd laun og stofnað til annarra útgjalda án heimildar í úttekt sem endurskoðunarfyrirtæki gerði á bókhaldi félagsins. Innlent 19.4.2024 18:32
Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Almannavarnir hafa aukið viðbúnað vegna meiri hættu á öðru eldgosi, sem búist er við að geti hafist á Reykjanesskaganum á næstu dögum. Við ræðum við Víði Reynisson, sviðsstjóra almannavarna í beinni útsendingu. Innlent 19.4.2024 18:00