Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 3. mars 2026 13:01 Beirút í Líbanon er illa farin eftir sprengjuregn Ísraelshers í morgun. Skotmörkin eru meðlimir Hezbollah-samtakanna. Stjórnvöld segja að fleiri en fimmtíu hafi látið lífið. AP/Hussein Malla Um 140 íslenskir ríkisborgarar eru staddir á áhrifasvæðum átakanna í Miðausturlöndum þar sem ófriður breiðist út með hraði. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að hún sé í virku samtali við hópinn.
Lokuð loftrými, hættulegar landleiðir og sú staðreynd að engin íslensk sendiskrifstofa sé á svæðinu takmarki verulega getu borgaraþjónustunnar til að veita aðstoð umfram almennar ráðleggingar og upplýsingagjöf. Þróunin er hröð í Miðausturlöndum þessa sólarhringa. Forsvarsmenn ísraelska hersins segja umfangsmiklar árásir hafa verið gerðar á opinberar byggingar í Tehran, höfuðborg Íran, í nótt. Hundruð herþotna eru sagðar hafa varpað rúmlega 250 sprengjum á byggingarnar.Yfirlitsmyndir af Beirút í Líbanon sína til að mynda reykjarmökk hér og þar í borginni vegna loftárása Ísraelsmanna en skotmörkin eru Hezbollah-samtökin sem Íran styður. Stjórnvöld í Líbanon segja minnst 52 hafa látið lífið í árásunum og að 154 séu særðir. Hezbollah hefur á sama tíma staðið fyrir árásum á skotmörk í Ísrael.Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir erfitt að spá fyrir um hvert þróunin leiðir. „Nú er alls búið að gera árásir á ein tíu ríki og það eru fyrst og fremst þau ríki þar sem Bandaríkjamenn eru með herstöðvar í; Kúveit, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Barein og í Jórdaníu. Þeir hafa líka gert árás á bandaríska sendiráðið í Ríad í Sádi-Arabíu og í sambandi við það hvort það verði aukin stigmögnun eða önnur Arabaríki taki þátt í stríðsátökum þá hefur Sádi-Arabía lýst því yfir að það megi, þau megi svara fyrir sig.“ Stóra spurningin á þessum tímapunkti snúist um það hvort fleiri ríki blandist inn í átökin, annaðhvort taki þátt í að kynda undir ófriðarbálið eða reyni að slökkva í því. „Bretar, Frakkar og Þjóðverjar hafa lýst því yfir að þeir muni veita Bandaríkjamönnum og Ísraelsmönnum stuðning en engin arabaríki fyrir utan Herzbollah-samtökin hafa gripið til vopna enda hafa líka Ísraelar að fyrra bragði ráðist inn í Líbanon.“
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Utanríkismál Tengdar fréttir Vaktin: Átökin breiðast enn út Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. 3. mars 2026 09:35 Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Guðlaug Sigfúsdóttir hefur verið búsett í Barein í Miðausturlöndum í fjórtán ár. Hún segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir, landið sé svo friðsælt. Fjölskyldan hefur lítið sofið fyrir sprengjum og sírenum síðustu nætur og heldur sig bara heima. 3. mars 2026 08:13 Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Íslendingur búsettur í Kúveit-borg segir að fólk sé beðið um að halda sig innandyra vegna braks frá drónum og flaugum sem hafa verið skotin niður. Hann vonar að árásunum fari að linna en fjölskyldan sé við öllu búin. 2. mars 2026 23:31 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira
Vaktin: Átökin breiðast enn út Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. 3. mars 2026 09:35
Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Guðlaug Sigfúsdóttir hefur verið búsett í Barein í Miðausturlöndum í fjórtán ár. Hún segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir, landið sé svo friðsælt. Fjölskyldan hefur lítið sofið fyrir sprengjum og sírenum síðustu nætur og heldur sig bara heima. 3. mars 2026 08:13
Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Íslendingur búsettur í Kúveit-borg segir að fólk sé beðið um að halda sig innandyra vegna braks frá drónum og flaugum sem hafa verið skotin niður. Hann vonar að árásunum fari að linna en fjölskyldan sé við öllu búin. 2. mars 2026 23:31