Jól

Gengu í hús og sungu

Nemendur í Grunnskóla Raufarhafnar gengu í heimahús á Þorláksmessu og sungu fyrir íbúana. Þeir eru að safna fyrir skólaferðalagi til Danmerkur, samkvæmt vef sveitarfélagsins.

Jólin

Spáð stormi fyrir austan

Veðurstofa Íslands spáir stormi á Austur- og Norðausturlandi upp úr hádegi í dag. Á Norðausturlandi má gera ráð fyrir vaxandi norðvestanátt og snjókomu eða éljum víða og vindhraða upp á fimmtán til tuttugu metra við ströndina og því ekkert ferðaveður. Frost verður tíu til tuttugu stig í dag, kaldast í innsveitum, en talsvert mildara á morgun. Frost verður tíu til tuttugu stig en verður talsvert mildara á jóladag.

Jólin

Umferð um kirkjugarðana

Sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar til að greiða sem mest fyrir umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð. Þeir sem ekki þurfa nauðsynlega að fara Bústaðaveg í dag eru hvattir til að velja sér aðrar leiðir.

Jólin

Tæplega þrjár bækur á mann

Forlög Eddu útgáfu höfðu í gær selt 818.486 eintök af bókum á þessu ári. Það jafngildir því að hver Íslendingur hafi keypt 2,7 bækur frá Eddu á árinu.

Jólin

Seinkun í flugi olli pakkaáhyggjum

Allt að tveggja sólarhringa seinkun var á flutningi pakka með flugi frá Bandaríkjunum fyrir jólin. Netverslunin hefur aukist gríðarlega. "Íslendingar hafa uppgötvað ebay", segir framkvæmdastjóri FedEx.

Jólin

Jólamessa á netinu

Bústaðakirkja mun í samvinnu við Opin kerfi hafa beinar útsendingar úr kirkjunni á netinu um komandi jól og áramót til að koma til móts við óskir þúsundir Íslendinga sem eru erlendis á jólunum. Útsendingin verður í gegnum slóðina www.kirkja.is.

Jólin

Fyrir þá sem hafa tíu þumalfingur

Skemmtileg glitrandi jólaumslög fást í Pennanum í nokkrum stærðum og eru sérstaklega hentug fyrir þá sem hafa ekki þann hæfileika að útbúa fallega jólapakka. Umslögin eru til í öllum stærðum og er einfalt að stinga gjöfinni inn og skella svo slaufu utan um þá.

Jól

Flugfélag Íslands styrkir Sjónarhól

Flugfélag Íslands hefur í ár, eins og undanfarin ár, ekki sent jólakort til viðskiptavina. Í stað þess hefur upphæðin sem sparast við þetta verið gefin til góðs málefnis. Í ár var það Sjónarhóll sem gefnar voru 300.000 krónur.

Jól

Kóramót í miðborginni í kvöld

 kvöld klukkan 20.00 munu tíu kórar safnast saman á Austurvelli og syngja jólalög. "Kórarnir er úr ýmsum áttum og hafa að undanförnu gengið um miðborgina og sungið, vegfarendum til ómældrar ánægju," segir Ólafur Þórðarson, sem stendur að uppákomunni.

Jól

Matur vinsælasta jólagjöfin

Athugun Fréttablaðsins leiðir í ljós að fjöldi fyrirtækja gefur starfsfólki sínu mat í jólagjöf. Lengi voru ostur og lax vinsælar jólagjafir en nú hafa hamborgarhryggur og hangikjöt bæst í gjafakörfurnar. Dæmi er um fjölskyldu sem situr uppi með þrjá hamborgarhryggi og annað eins af hangikjöti fyrir jólin. </font /></b />

Jól

Milljón til innanlandsaðstoðar í stað jólakorta

Síminn hefur líkt og í fyrra, ákveðið að senda ekki jólakort en gefa þess í stað Hjálparstarfi kirkjunnar eina milljón króna. Peningarnir eru ætlaðir til aðstoðar innanlands en Hjálparstarf kirkjunnar veitir Íslendingum ráðgjöf og neyðaraðstoð árið um kring.

Jólin

Teymi styrkir Neistann

Teymi hefur líkt og fjölmörg önnur fyrirtæki ákveðið að senda ekki jólakort í ár en láta þess í stað jólakortasjóðinn renna til mannúðarmála. Nýlega afhenti Ragnar Marteinsson, framkvæmdastjóri Teymi, Neistanum jólakortastyrk og jafngildir fjárhæðin þeim kostnaði sem Teymi hefði annars haft af að senda viðskiptavinum sínum og velunnurum jólakveðju.

Jól

Ungt fólk í neyð leitar hjálpar

Það var fjölmennt í bækistöðvum Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar Íslands í gær, á síðasta úthlutunardegi fyrir jól. Í meirihluta var ungt fólk að fá úthlutað matvælum og ná sér í föt á börnin sín. Ungt fólk, sýnilega í sárri fátækt.

Jól

Les jólakveðjurnar í síðasta sinn

Gerður G. Bjarklind er að hætta sem þulur hjá Ríkisútvarpinu eftir 30 ár í starfi. Hún hóf ferilinn hjá RÚV árið 1961og vann á auglýsingadeildinni í þrettán ár áður en hún settist í þularstofuna. Gerður mun áfram stjórna hinni geisivinsælu Óskastund á föstudagmorgnum. Hún er einn fárra Íslendinga sem séð hafa Bítlana á hljómleikum. </font /></b />

Jól

Vægi jólabókasölunnar fer dvínandi

Allt bendir til að bóksala sé væn þessi jólin og því fagna útgefendur mjög. Þeir eru hins vegar sammála um að vægi jólavertíðinar hafi dvínað nokkuð síðastliðin ár. </font /></b />

Jól

Jólaland og verslun í bakgarði

Í litlu bakhúsi við Grundarstíginn er lítið ævintýraland þar sem Litla jólabúðin stendur. Aðkoman er með eindæmum skemmtileg og er vísir að því sem bíður manns inni í litlu versluninni. Þegar gengið er inn grípur maður andann á lofti því í þessu litla rými er heill heimur af dásamlegu jólaskrauti víðs vegar að úr veröldinni.

Jól

Sveinarnir kátu

Jólasveinarnir eru á vappi þessa dagana eins og alþjóð veit og meðal viðkomustaða hjá þeim er Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í Laugardal.

Jól

Aðventan ýfir upp sárin

"Aðventan og jólin eru margslunginn tími, bæði er þetta tilfinningahlaðinn tími og tími minninga," segir Jóna Lísa Þorsteinsdótttir, prestur í Akureyrarkirkju. "Oft er fólk með ákveðnar hugmyndir um hvernig aðventan á að vera, en svo blasir allt í einu við nýr raunveruleiki.

Jól

Öðru vísi jólaverslun

Óvenjustór hluti jólaverslunarinnar í ár virðist fólginn í því að fólk sé að kaupa sér heilu innréttingarnar og raftæki í eldhúsið, að sögn Emils B. Karlssonar hjá Samtökum verslunar og þjónustu.

Jól

Skreytir tíundu jólin í röð

"Ég er að þessu fyrst og fremst ánægjunnar vegna og ekki í samkeppni við neinn. Jólin eru hátíð ljóssins og friðarins og það á ekki að vera nein samkeppni um skreytingar heldur á hver að skreyta eftir eigin getu og hugmyndaflugi," segir Sigtryggur Helgason en hann leggur lokahönd á jólaskreytingarnar í dag. "Þá fer ég að halda jól."

Jól

Kjöt í stað jólakorta

Lánasjóður landbúnaðarins hefur í ár ákveðið að verja hluta fjármuna sem ætlaður var til jólaundirbúnings, til kaupa á matvælum til styrktar hjálpar- og líknarstarfi Mæðrastyrksnefndar og Hjálpræðishersins.

Jól

Notalegra í góðu veðri

Hátíðarhöldin fara fram með hefðbundnum hætti á sjó um jól og áramót. Guðmundur Haraldsson, skipstjóri á Selfossi, verður á sjó og segir að brytinn verði með mjög góðan mat, þríréttað eins og gerist á bestu hótelum, og áhöfnin borði saman. </font />

Jól

Jólin eru drengjakórar

Marta Nordal leikkona er ekki hrifin af jólafárinu sem grípur um sig í þjóðfélaginu í desembermánuði. "Þegar ég var lítil var ég jólabarn vegna gjafanna en núna finnst mér jólin vera hálfgerð vitleysa. 

Jól

Jólapakkar hrannast upp

Í ár virðast ætla að safnast töluverð fleiri jólapakkar undir jólatréð í Kringlunni heldur en í fyrra, að sögn Ragnhildar Guðmundsdóttur hjá Mæðrastyrksnefnd.

Jól

Ástarávísanir í pakkann

Ástarávísanir, útfylltar og óútfylltar, fyrir bæði kynin er sniðug jólagjöf sem fæst í Pennanum Eymundson og víðar. Þar er að finna ávísun upp á rómantísk kvöld, skemmtilega ferð og uppáhaldsmat svo eitthvað sé nefnt.

Jól

Fyrstu skíðin

Fyndnasta jólgjöf sem ég hef fengið voru plastskíði sem ég fékk þegar ég var sex ára. Það voru fyrstu skíðin mín. En þau fóru eiginlega hraðar upp brekkuna en niður. Þau voru með gúmmíbindingum og munstri undir. Þannig að ég skellti mér bara í Nokia stígvélin mín og beint í skíðin," segir Einar Örn og hlær dátt.

Jól

Innpökkun er einstök list

Sumum gengur illa að pakka inn gjöfum svo vel fari og finnst þeir vera með tíu þumalputta. Ekki bætir úr skák þegar endinn á glæra límbandinu er týndur og maður verður að liggja ofan á pakkanum meðan hann er krafsaður upp.

Jól

Jólastund í jólasundi

Kveikt var á kertum og rithöfundar fengnir til að lesa úr bókum sínum fyrir sundlaugargesti sem sátu í pottunum eða við sundlaugarbakkana og hlýddu á skemmtilegan upplestur.

Jól