
Bíó og sjónvarp


Kaldaljós með flestar tilnefningar
Kvikmyndin Kaldaljós, sem Hilmar Oddsson gerði eftir samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur hlýtur flestar tilnefningar til Eddunnar, verðlauna Íslensku kvikmynda- og sjónvarspakademíunnar í ár. Kaldaljós er ein þriggja mynda sem tilnefnd er sem bíómynd ársins. Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður hlýtur heiðursverðlaun akademíunnar í ár.


Tilnefningar til Eddunnar kynntar
Tilnefningar til Eddunnar 2004 verða kynntar mánudaginn 25. október. Heiðursverðlaunahafi Eddunnar 2004 verður auk þess kynntur. Að lokinni kynningu tilnefninga hefst netkosning hér á Vísi sem stendur til 13. nóvember. Verðlaunin verða svo afhent sunnudaginn 14. nóvember í beinni útsendingu Sjónvarpsins og hér á Vísi.

Um Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíuna
Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían, (ÍKSA) er sameiginlegur vettvangur hagsmunafélaga kvikmyndagerðarmanna í landinu til að stuðla að eflingu íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirans. Í þessu skyni stendur akademían m.a. fyrir veitingu Eddunnar, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna, ár hvert.

EDDA 2004
Edduverðlaunin verða veitt í sjötta sinn við hátíðlega athöfn þann 14. nóvember næstkomandi. Nú er óskað eftir innsendingum verka í verðlaunaflokka hátíðarinnar. Skilafrestur er til klukkan 17:00 föstudaginn 8. október næstkomandi.

Vísir í samstarf við ÍKSA um Eddu
Björn Br. Björnsson, stjórnarmaður Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) og Ásmundur Helgason, markaðsstjóri Fréttablaðsins, skrifuðu í gær undir samning um samstarf Fréttablaðsins og Vísis við Edduverðlaunin til þriggja ára.

Næsland frumsýnd í kvöld
Næsland, kvikmynd í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar, verður frumsýnd í Háskólabíói í kvöld. Friðrik segir það forréttindi að hafa fengið að vinna með frábærum leikurum að gerð myndarinnar. Kostnaður við hana er á þriðja hundrað milljóna króna.

Síðasti bærinn í dalnum bestur
Íslenska stuttmyndin <em>Síðasti bærinn í dalnum</em> var valin besta norræna stuttmyndin á norrænu stutt- og heimildamyndahátíðinni Nordisk Panorama í gærkvöldi. Myndin er eftir Rúnar Rúnarsson. Þetta er í annað sinn sem íslensk mynd er valin sú besta á þessari hátíð sem var nú haldin í fimmtánda sinn.

Nói fær ágæta dóma
Íslenska kvikmyndin Nói albínói fær ágæta dóma í dönskum fjölmiðlum um helgina.

Bretar óánægðir með útlitið
Bretar virðast með eindæmum óánægðir með útlit sitt ef marka má fjölda þeirra sem sóttu um að gangast undir lýtaaðgerðir fyrir bresku útgáfuna af þættinum Extreme Makeover, eða "Nýtt útlit“. Sextán þúsund sóttu um en aðeins tuttugu og tveir komust að.
Sopranós stal senunni
Sopranós-fjölskyldan hreinlega stal senunni á Emmy-verðlaunahátíðinni í gærkvöldi og nótt, eins og áhorfendur Stöðvar 2 urðu vitni að, því þættirnir fengu fern verðlaun, þar á meðal sem besti dramaþátturinn.

Englarnir sigurvegarar kvöldsins
Þættirnir Englar í Ameríku voru sigurvegarar kvöldsins þegar Emmy-verðlaunin voru afhent fyrir besta sjónvarpsefnið í Los Angeles í gær. Þættirnir fengu ellefu verðlaun, meðal annars sem besta þáttaröðin. Sopranos var valinn besti dramaþátturinn og Arrested Development besta gamanþáttaröðin.

Klámhögg
Ken Park er samt skemmtileg pæling en bersöglin er klámhögg.

Amerískir Indídagar í Háskólabíói
Amerískir Indídagar hefjast í Háskólabíói 25. ágúst næstkomandi. Margar áhugaverðar og spennandi myndir verða á hátíðinni í ár og sumar hverjar farið sigurför um heiminn.

Hatar mánudaga en elskar lasagne
Teiknimyndasagan um köttinn Gretti, sem hatar mánudaga en elskar lasagne, hefur verið ákaflega vinsæl í gegnum árin. Nú hefur loksins verið gerð kvikmynd um þessa skondnu persónu sem ber einfaldlega heitið Garfield.

Skógarverur ógna friðsælu þorpi
The Village, eða Þorpið, er nýjasta kvikmynd leikstjórans M. Night Shymalan sem sló í gegn með draugamyndinni The Sixth Sense.

Olsen-systur í New York
Rómantíska gamanmyndin New York Minute skartar tvíburasystrunum Ashley og Mary-Kate Olsen í hlutverkum systranna Jane og Roxy Ryan sem þola ekki hvor aðra.

Hundakonan Witherspoon
Leikkonan Reese Witherspoon ætlar að framleiða og leika aðalhlutverkið í kvikmyndinni The Dog Walker.

Stærsta kvikmynd Íslandssögunnar
Leikarinn Gerard Butler hefur verið ráðinn til að leika aðalhlutverkið í kvikmyndinni Bjólfskviðu sem fer í tökur hér á landi þann 16. ágúst næstkomandi.

Innrás vélmannanna
Rússneska skáldið Isaac Asimov hafði velt afleiðingum gervigreindar fyrir sér löngu áður en Arnold Schwarzenegger setti upp sólgleraugun í fyrstu Terminator-myndinni.

Kletturinn og ferðalag
Glímutrölið The Rock, sem vakti fyrst athygli í bíómyndum fyrir hörmulegan leik sinn í hlutverki The Scorpion King í The Mummy Returns, er mættur til leiks í myndinni Walking Tall sem er frumsýnd í dag og slagsmálakínverjinn Jackie Chan lætur ljós sitt skína í ævintýramyndinni Around the World in 80 Days.

Með illu skal illt út reka
Pitch Black var frekar ódýr hryllingsmynd sem sló óvænt í gegn og gerði aðalleikarann Vin Diesel að eftirsóttustu hasarmyndahetju kvikmyndanna. Hann er mættur aftur til leiks í hlutverki morðingjans Riddick sem þarf nú að bjarga alheiminum undan oki hins illa.

Þroskuð stúlka og treg hasarhetja
Frumsýndar á föstudegi eru myndirnar 13 going on 30 og the Chronicles of Riddick.