
Bílar

Meðalframleiðslukostnaður á Tesla bifreið er 4,66 milljónir króna
Ársskýrsla Tesla fyrir árið 2021 greinir frá því að fyrirtækið hafi náð hæstu framlegð allra fjöldaframleiðanda bifreiða í heiminum á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.

Gordon Murray kynnir T.33 léttan ofurbíl til hversdagsnota
T.33 er nýjasti ofurbíllinn úr smiðju hins goðsagnakennda Gordon Murray. Hann er knúinn áfram með 607 hestafla V12 sem snýst upp í 11.100 snúninga. Verðmiðinn er um 244 milljónir króna.

Eintak af Tesla Cybertruck hefur verið smíðað
Tesla hefur smíðað Cybertruck og allar efasemdaraddir þurfa því að draga í land um það að Cybertruck yrði aldrei smíðaður. Myndband af bílnum var birt á Youtube-rás Cybertruck eigendaklúbbsins.

MG þrefaldaði söluna í Evrópu
Mikill vöxtur var í starfsemi sölu- og markaðsmála bílaframleiðandans MG í Evrópu á síðasta ári, þar sem þreföldun varð í bíla miðað við 2020 og 67% fjölgun á sölu- og þjónustuumboðum. Sambærilegur vöxtur var í sölu MG hér á landi, þar sem 200 bílar voru nýskráðir samanborið við 62 árið 2020.

Sjóvá riftir samningi við FÍB
Samkvæmt frétt á heimasíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) frá því á föstudag hefur tryggingafélagið Sjóvá rift samningi sínum við FÍB. Í fréttinni er talað um að riftunin komi einungis „nokkrum vikum eftir að FÍB gagnrýndi tryggingafélagið fyrir milljarða króna greiðslur til hluthafa.“

Vinsældir Kia aukast enn í Evrópu
Kia náði hæstu markaðshlutdeild sinni í Evrópu á síðasta ári eða 4,3%. Kia bætti þar með enn árangur sinn á evrópskum mörkuðum frá árinu áður en bílaframleiðandinn var með 3,5% markaðshlutdeild í Evrópu árið 2020. Kia seldi alls 502.677 nýja bíla í Evrópu á síðasta ári sem er aukning um 20,6% frá árinu áður.

BMW hættir að framleiða V12 vélar
Síðasta V12 vélin verður sett í M760i sem eingöngu verður fáanlegur í Bandaríkjunum. Framleiðslu bílsins verður hætt seinna á árinu. Þar með lýkur sögu nýrra 12 sílendra BMW véla.

Valentino Rossi ætlar að keppa á fjórum hjólum
MotoGP goðsögnin Valentino Rossi hætti keppni í mótorhjólakappakstri í lok síðasta árs. Á glæstum mótorhjólaferli varð Rossi sjöfaldur heimsmeistari, vann 89 keppnir og var 199 sinnum á verðlaunapalli. Hann hefur nú skráð sig í sportbílakappakstursmótaröð með WRT liðinu á þessu ári í GT3 flokki.

Volkswagen íhugar skráningu rafhlöðueiningar á markað
Volkswagen ætlar að koma allri rafhlöðuframleiðslu sinni í eitt evrópskt rafhlöðufyrirtæki. Því verður ætlað að framleiða rafhlöður í sex verksmiðjum fyrir lok 2030. Þar sem útkoman eru um 240GWh á ári. Stjórnarmaður félagsins hefur þegar sagt að hugsanlega verði utanaðkomandi gert kleift að fjárfesta í félaginu.

BMW segir of snemmt að veðja á innanhúss rafhlöðuframleiðslu
BMW hefur hingað til ekki viljað fjárfesta í eigin rafhlöðuframleiðslu. Fyrirtækið hefur sagt að það sé of snemmt að stækka innanhúss rafhlöðuframleiðslu sína þar til tæknin er orðin þróaðri.

Rafbíllinn Renault Megane E-Tech með allt að 470 km drægni
Ný kynslóð af Renault Megane er væntanleg til BL í júní og eru forpantanir þegar hafnar. Ekki aðeins hefur Megane verið endurhannaður frá grunni að utan sem innan heldur kemur Megane í fyrsta sinn í alrafmagnaðri útfærslu sem ber heitið Megane E-Tech. Bíllinn hefur þegar verið kynntur á sýningum víða á meginlandinu og sló strax í gegn hjá til að mynda Top Gear í Bretlandi sem útnefndi hann fjölskyldubíl ársins 2022.

Myndband: Volvo ætlar að hefja sölu sjálfkeyrslukerfis á árinu
Volvo hefur tilkynnt að fyrirtækið hyggist í samstarfi við Luminar Technologies hefja sölu sjálfkeyrslukerfis í bílum sínum á árinu. Viðskiptavinir í Kaliforníu munu vera þeir fyrstu til að fá að prófa kerfið, sem heitir Ride Pilot. Notkun kerfisins verður háð áskrift af því.

MG Marvel R - MG færir sig inn á lúxusmarkað
MG Marvel R er nýlegur fimm manna rafjepplingur frá MG sem hefur útlitið með sér. MG hefur undanfarið komið af krafti inn í rafbílasenuna með MG ZS sem hefur verið einn hagkvæmasti kosturinn fyrir þau sem vilja hreinan rafjeppling.

Toyota kynnir GR86 með FasterClass herferðinni
Toyota hefur kynnt alheims auglýsingaherferð fyrir GR86 sport bílinn. Toyota vill með herferðinni halda áfram metsölu sinni. Toyota varð í fyrra fyrsti framleiðandinn til að selja meira en General Motors í Bandaríkjunum í næstum heila öld. Markmiðið er að halda gjöfinni í gólfinu og setja af stað FasterClass herferðina sem hófst á þriðjudag.

Hugmyndabíllinn Mercedes-Benz EQXX kynntur til leiks
Bíllinn á að verða einn sá skilvirkasti og spilar þar stærstan þátt loftflæðishönnun bílsins. Hann státar af rétt tæplega 1000 km drægni.

Toyota seldi flest ökutæki en Kia seldi flesta fólksbíla í fyrra
Flest nýskráð ökutæki á síðasta ári voru af Toyota gerð, eða 2145. Kia var í öðru sæti með 1983 nýskráð ökutæki ig Hyundai í þriðja sæti með 1603 ökutæki nýskráð á árinu, samkvæmt tölum á vef Samgöngustofu. Toyota hefur verið á toppnum í 32 ár samkvæmt tilkynningu frá Toyota umboðinu. Kia seldi hins vegar flest ökutæki í flokki fólksbíla eða 1980 á meðan Toyota er í örðu sæti í flokki fólksbíla með 1890 selda á árinu.

Lögreglan í New York fær heimild til að panta Mustang-Mach-E og Tesla Model 3
New York borg hefur ráðist í metnaðarfulla aðgerð sem snýst um að rafvæða lögreglubílaflota borgarinnar. Borgarstjórn New York borgar hefur nú veitt heimild fyrir kaupum á 184 Ford Mustang Mach-E rafbílum.

Tesla innkallar hálfa milljón bíla í Bandaríkjunum
Bílaframleiðandinn Tesla hefur innkallað um 475 þúsund bíla í Bandaríkjunum vegna galla á afturmyndavél og farangursgeymslu sem gæti leitt til slysa. Um er að ræða allt að 356.309 bíla af gerðinni Model 3 sem seldir voru í Bandaríkjunum milli 2017 og 2020 og allt að 119.009 Model S bíla sem seldir voru eftir 2014.

Myndband: Amazon Rivian bílar farnir að sjást á götum úti
Amazon pantaði 100.000 sendibíla frá Rivian sem nú eru farnir að koma á göturnar. Markmiðið er að rafvæða sendibílaflotaflota Amazon og að fyrirtækið verði kolefnishlutlaut fyrir árið 2040.

13 nýjar rafhlöðuverksmiðjur í Bandaríkjunum árin fyrir lok árs 2025
Ætla má að þriðji áratugur 20. aldar muni einkennast af rafhlöðuæði. Til stendur að reisa 13 nýjar rafhlöðuverksmiðjur í Bandaríkjunum fyrir árslok 2025. Hingað til er Gígaverksmiðja Tesla í Nevada sú stærsta. Mikil eftirspurn er eftir rafhlöðum í rafbíla. Áætlað er að framleiðslan muni tífaldast á næstu fimm árum.

Engar frekari ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla
Samkvæmt minnisblaði frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu munu ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla senn renna sitt skeið. Skattaívilnanir vegna vistvænna bíla hafa verið í gildi síðan 2011.

Fjórar bílasölur flytja starfsemi á nýtt sölusvæði við Hestháls
Bílaumboðið Askja - Notaðir bílar, Bílaland, Bílabankinn og Bílamiðstöðin eru óðum að koma sér fyrir á nýju og sameiginlegu bílasölusvæði á lóð við Krókháls 7 og Hestháls 15 í Reykjavík og tók fyrstu söluskrifstofurnar til starfa þar í nýju húsnæði í gær.

Myndband: Tesla virkjar virka veghljóðsvörn fyrir Model S og X
Virka veghljóðsvörnin er einungis fáanleg í flaggskipunum, Model-um S og X. Hún var gerð aðgengileg með hugbúnaðaruppfærslu sem framkvæmd var nýlega.

Polestar 2 - betri fólksbíll en Model 3
Polestar 2 er fimm manna rafstallbakur (e. fastback) frá Polestar, sem er dótturfélag Volvo og Geely. Polestar er í grunninn sænskt félag sem framleiðir bíla í Kína og brátt í Bandaríkjunum og frekari útrás í kortunum. Brimborg hefur nýlega tekið við umboði fyrir Polestar á íslandi. Polestar hefur lagt mikla áherslu á sjálfbærni, umhverfisvernd og endurunnin efni í framleiðslu bíla sinna.

Toyota ætlar að kynna 30 rafbíla fyrir árið 2030
Toyota kynnti í gær áform sín um framleiðslu rafbíla til næstu ára. Toyota og Lexus ætla að kynna 30 nýja rafbíla á næstu átta árum. Stefnt er að því að árið 2030 verði sala á rafbílum komin í 3,5 milljónir rafbíla á ári.

Myndband: Cybertruck á prófunarbraut Tesla
Frumgerð af Tesla Cybertruck sást á prófunarbraut við verksmiðju Tesla í Fermont, Kaliforníu. Bíllinn á myndbandinu virðist vera talsvert nær því að vera endanleg útgáfa en sá sem var kynntur upprunalega árið 2019.

Myndir af nýjum Mini leka á netið
Myndum af næstu kynslóð hins goðsagnakennda Mini hlaðbaks hefur verið lekið á netið. Þær birtust upprunalega í kínverskum fjölmiðlum en eru nú komnar í talsverða dreifingu á samfélagsmiðlum.

Audi hefur staðfest að arftaki R8 verði hreinn rafbíll
Audi hefur staðdest að arftaki R8 ofurbílsins verði hreinn rafbíll. Yfirmaður vörumarkaðssetningar hjá Audi Sport, Linda Kurz, sagði í samtali við Roadshow að nýi R bíllinn myndi ekki notast við brunahreyfil.

Kia EV6 valinn jepplingur ársins hjá Top Gear
Kia EV6 rafbíllinn hefur verið valinn jepplingur ársins hjá bílatímaritinu heimsfræga Top Gear. Kia EV6 hefur fengið góðar viðtökur síðan hann kom á markað fyrir stuttu og er þetta enn ein viðurkenningin sem bíllinn fær.

Polestar birtir kitlumynd af Polestar 3
Polestar 3 er rafmagnsjeppi sem frumsýndur verður árið 2022. Polestar 3 er fyrsti jeppi framleiðandans og fyrsti bíll þess sem verður framleiddur í Bandaríkjunum í Charlestone, Suður-Karólínu.