Formúla 1
145 146 147 148 149 150 151 … 151 ›
Schumacher: Árangur Hamilton kemur ekki á óvart Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher lætur nú lítið á sér bera í Formúlu 1 en hefur þess í stað verið á ferðalagi í tengslum við herferð í umferðaröryggi. Blaðamaður nokkur náði þó að skjóta á hann spurningu varðandi hinn unga og efnilega Lewis Hamilton á dögunum. Formúla 1 25.4.2007 17:25
Raikkönen: Hefði átt að vinna allar keppnirnar Finninn Kimi Raikkönen hjá Ferrari segir að slakur árangur sinn í tímatökum hafi einn komið í veg fyrir að hann sigraði í öllum þeim þremur keppnum sem afstaðnar eru á árinu í Formúlu 1. Finninn er í efsta sæti ökuþóra ásamt heimsmeistaranum Fernando Alonso og nýliðanum Lewis Hamilton. Formúla 1 18.4.2007 18:15
Lewis Hamilton getur orðið sá besti Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren liðsins í Formúlu 1, segir að Bretinn ungi Lewis Hamilton geti vel orðið besti ökuþór í sögunni. Hamilton hefur vakið heimsathygli fyrir að komast á verðlaunapall í fyrstu þremur mótum sínum sem aðalökumaður. Formúla 1 18.4.2007 17:15
Massa sigraði í Barein - Hamilton enn í verðlaunasæti Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari kom fyrstur í mark í Barein kappakstrinum í Formúlu 1 sem fram fór í dag. Breska ungstirnið Lewis Hamilton á McLaren varð annar og þar með fyrsti nýliðinn sem kemst á verðlaunapall í fyrstu þremur keppnum sínum. Kimi Raikkönen á Ferrari varð þriðji og heimsmeistarinn Fernando Alonso á McLaren fimmti. Formúla 1 15.4.2007 14:41
Massa á ráspól í Barein Ferrari-ökumaðurinn Felipe Massa verður á ráspól í Barein kappakstrinum í Formúlu 1 sem fram fer á morgun. Massa var með besta tímann í tímatökum í morgun og ungstirnið Lewis Hamilton hjá McLaren var annar. Kimi Raikkönen hjá Ferrari var með þriðja besta tímann og heimsmeistarinn Fernando Alonso fjórði. Formúla 1 14.4.2007 12:25
Hamilton í sögubækurnar? Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren á möguleika á að rita nafn sitt í sögubækur í Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 á sunnudaginn. Þar getur hann orðið fyrsti nýliðinn til að komast á verðlaunapall í fyrstu þremur keppnum sínum á ferlinum. Formúla 1 12.4.2007 17:15
Tvöfaldur sigur McLaren Heimsmeistarinn Fernando Alonso sigraði í formúlu 1 kappakstrinum sem fram fór í Malasíu í morgun með miklum yfirburðum en félagi hans hjá McLaren, hinn breski Lewis Hamilton, stal senunni með frábærum akstri. Alonso og Hamilton tóku fram úr Felipe Massa strax í fyrstu beygju, en sá brasilíski var á ráspól, og stungu keppinautana frá Ferrari hreinlega af. Formúla 1 8.4.2007 12:03
Massa verður á ráspól Felipe Massa hjá Ferrari verður á ráspól í Malasíukappakstrinum í formúlu 1 sem fram fer á morgun en brasilíski ökuþórinn reyndist hraðskreiðastur í tímatökunum nú í hádeginu. Heimsmeistarinn Fernando Alonso frá Spáni hafnaði í öðru sæti en Kimi Raikönnen, sigurvegari fyrsta mótsins í Ástralíu í síðasta mánuði, ræsir þriðji á morgun. Formúla 1 7.4.2007 12:10
Raikkönen fljótastur á Sepang í dag Kimi Raikkönen var í miklu stuði á æfingum í Sepang í Malasíu í dag og náði besta tímanum á Ferrari bíl sínum. Hann var hálfri sekúndu á undan Alexander Wurz hjá Toyota, en sá ók 114 hringi á brautinni í dag - helmingi fleiri en Finninn. Skotinn David Coulthard náði þriðja besta tímanum á Red Bull- Renault bíl sínum. Formúla 1 28.3.2007 17:19
Raikkonen á að fá að drekka að vild Eddie Jordan, ein af helstu goðsögnu formúlu 1, hefur beðið forráðamenn Ferrari um að hafa ekki áhyggjur af óhóflegri drykkju finnska ökumannsins Kimi Raikkonen, en sá er sagður vera mikið fyrir að fara út á lífið og fá í tána. Jordan segir að á meðan Raikkonen haldi áfram að aka eins og hann hefur verið að gera geti drykkjan ekki annað en verið að gera honum gott. Formúla 1 25.3.2007 18:30
Raikkönen byrjar vel hjá Ferrari Kimi Raikkönen sigraði í ástralska kappakstrinum í Formúlu 1 í nótt og vann þar með sigur í fyrstu keppni sinni hjá Ferrari-liðinu. Það var samt nýliðinn Lewis Hamilton hjá McLaren sem stal senunni í dag þegar hann náði þriðja sætinu í sinni fyrstu keppni á ferlinum. Félagi hans og heimsmeistarinn Fernando Alonso varð í öðru sæti, en McLaren bílarnir höfðu ekki roð við sprækum Ferrari-bílnum. Formúla 1 18.3.2007 13:48
Raikkönen á ráspól Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen verður á ráspól í Melbourne í Ástralíu á morgun þegar fyrsta keppni ársins fer fram í Formúlu 1. Þetta var í 12. skipti á ferlinum sem Raikkönen nær ráspól og gefur góð fyrirheit um framhaldið hjá honum í sinni fyrstu keppni fyrir Ferrari. Heimsmeistarinn Fernando Alonso, sem einnig ekur fyrir nýtt lið, náði öðrum besta tímanum á McLaren bíl sínum og Nick Heidfeld og Lewis Hamilton urðu í þriðja og fjórða sæti. Formúla 1 17.3.2007 14:07
Ferrari getur unnið án Schumachers Ross Brawn, fyrrum tæknistjóri Ferrari í Formúlu 1, segir að liðið sé í góðri aðstöðu til að vinna titil bílasmiða á komandi tímabili þó það njóti ekki lengur krafta hins magnaða Michael Schumachers. Hann segir liðið í góðum málum með þá Kimi Raikkönen og Felipa Massa við stýrið. Formúla 1 13.3.2007 19:15
Scumacher er ekki að kaupa Toro Rosso Gerhard Berger, annar tveggja eiganda Toro Rosso liðsins í formúlu 1, segir ekkert hæft í þeim fréttum að hann sé um það bil að selja sinn hlut til Michael Scumacher, fyrrum heimsmeistara í formúlunni. Formúla 1 11.3.2007 14:25
Ecclestone: Massa verður meistari Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone segir að Brasilíumaðurinn Felipe Massa hjá Ferrari sé að sínu mati líklegasti ökuþórinn til að verða heimsmeistari á komandi keppnistímabili í Formúlu 1. Formúla 1 6.3.2007 18:37
Alonso: Ferrari skrefinu á undan Heimsmeistarinn Fernando Alonso sem nú ekur fyrir McLaren í Formúlu 1, segir að Ferrari sé skrefinu á undan sínum mönnum á síðustu vikunum fyrir fyrstu keppni ársins sem fram fer í Ástralíu þann 18. mars. Formúla 1 5.3.2007 16:58
Button er ekki bjartsýnn Ökuþórinn Jenson Button segir að Honda bíllinn í ár standi öðrum bílum töluvert langt að baki og hann sé því ekki bjartsýnn á góðan árangur á komandi leiktíð í formúlu 1 kappakstrinum. Forráðamenn Honda liðsins höfðu áður gert sér vonir um að berjast um sjálfan heimsmeistaratitilinn á þessu tímabili. Formúla 1 23.2.2007 17:00
Raikkönen er ofmetinn ökumaður Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Jacques Villeneuve, segir að finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hjá Ferrari sé ofmetinn ökumaður. Hann segir þann finnska ekki hafa það til að bera sem þurfi til að fylla skó Michael Schumacher hjá þeim rauðu. Formúla 1 19.2.2007 17:01
Alonso segir bílinn ekki tilbúinn Ökuþórinn Fernando Alonso, heimsmeistari síðustu tveggja ára í formúlu 1 kappakstrinum, reynir sitt besta til að draga úr væntingum til sín fyrir komandi tímabil í formúlunni með því að lýsa yfir áhyggjum sínum af keppnisbíl McLaren. Hinn 25 ára gamli Alonso yfirgaf herbúðir Renault í haust og gekk í raðir McLaren. Formúla 1 9.2.2007 15:32
Barichello ánægður með nýja bílinn Rubens Barichello kveðst mjög ánægður með nýja RA107-keppnisbíl Hondu liðsins í formúlu 1 en hann prufukeyrði hann í fyrsta sinn í vikunni. Barichello skipar lið Honda á komandi tímabili í formúlunni ásamt Jenson Button og segist sá brasilíski hlakka mikið til samstarfsins. Formúla 1 27.1.2007 20:15
Alonso mjög sáttur við nýja bílinn Heimsmeistarinn Fernando Alonso lét ekki smá olíuleka skemma fyrir sér frumraun sína á nýja McLaren bílnum í Valencia í gær. Þetta var í fyrsta skipti sem Alonso ók MP4-22 bílnum og sagði Spánverjann bílinn virka mjög vel. Þá hafa fyrrum félagar Alonso í Renault einnig tekið nýjan bíl í notkun og hefur sá verið kallaður R27. Formúla 1 18.1.2007 13:42
Schumacher fengi hjartaáfall í Nascar Fyrrum Formúluökuþórinn Juan Pablo Montoya tók ekki vel í ummæli Michael Schumacher þegar sá þýski lýsti yfir furðu sinni á ákvörðun Kólumbíumannsins að hætta í Formúlu og fara í Nascar í Bandaríkjunum. Formúla 1 17.1.2007 17:12
BMW Sauber stefnir á verðlaunapall Forráðamenn BMW Sauber-liðsins í Formúlu 1 ætla liðinu að komast oftar á verðlaunapall á komandi keppnistímabili og setja stefnuna á að keppa um titilinn árið 2009. BMW tók við liði Sauber í lok árisins 2005 og komust ökumenn liðsins tvisvar á verðlaunapall á síðasta tímabili. Formúla 1 16.1.2007 14:21
Alonso stefnir á sigur með McLaren Heimsmeistari síðustu tveggja ára í formúlu 1, Spánverjinn Fernando Alonso, er sigurviss fyrir komandi tímabil í kappakstrinum. Alonso skipti úr herbúðum Renault í McLaren eftir síðasta tímabil og telur hann að keppnisbíll McLaren eigi mikið inni þrátt fyrir að liðið hafi ekki unnið eina einustu keppni í fyrra. Formúla 1 15.1.2007 20:55
Massa hlakkar til að keyra nýja bílinn Felipe Massa, annar ökumaður Ferrari-liðsins í formúlu 1 kappakstrinum á komandi tímabili, er mjög ánægður með hinn nýja bíl Ferrari sem frumsýndur var í gær. Formúla 1 15.1.2007 14:15
Jordan: Schumacher verður goðsögn Eddie Jordan, stofnandi og æðsti yfirmaður Jordan-liðsins í formúlu 1, segir að orðspor Michael Schumcaher í íþróttinni muni aukast til muna á næstum misserum nú þegar hann er hættur að aka. Jordan, sem gaf Schumacher fyrst tækifæri í formúlu 1 árið 1991, telur að Schumacher verði orðinn goðsögn innan fárra ára. Formúla 1 15.1.2007 12:45
Ralf er ekki að hætta Ökuþórinn Ralf Schumacher segir að ekkert sé til í þeim fregnum að hann hyggist hætta í formúlu eftir að núverandi samningur hans við Toyota rennur út eftir næsta tímabil. Schumacher hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við Toyota og við það fóru sögusagnirnar af stað. Formúla 1 14.1.2007 19:30
Toyota frumsýnir nýja bílinn Lið Toyota frumsýndi í dag nýja keppnisbíl liðsins í Formúlu 1 sem fær heitið TF 107. Forráðamenn liðsins notuðu tækifærið og báðust afsökunar á því að liðið næði ekki í sinn fyrsta sigur á síðasta tímabili og lofuðu að úr því yrði bætt á komandi tímabili. Toyota er eina liðið sem verður með sömu ökumenn og í fyrra á næsta ári, þá Ralf Schumacher og Jarno Trulli, og þá er liðið með sömu hjólbarða og sömu vél. Formúla 1 12.1.2007 16:51
Raikkönen ætlar ekki að breyta um stíl Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen segist ekki ætla að breyta um stíl eftir að hann gekk í raðir Ferrari frá McLaren í Formúlu 1, hvorki utan vallar né innan. Raikkönen hefur verið gagnrýndur af Formúlusérfræðingum fyrir að taka ekki nógu vel leiðsögn og fyrir að taka íþróttina ekki nógu alvarlega. Formúla 1 10.1.2007 16:08
Schumacher aðstoðar Raikkönen Vonir forráðamanna Ferrari-liðsins í Formúlu 1 standa til þess að fyrrum heimsmeistrainn margfaldi Michael Schumacher komi finnska ökuþórnum Kimi Raikkönen til aðstoðar á fyrstu mánuðum sínum í Ferrari-bílnum. Raikkönen gekk í raðir Ferrari frá McLaren í sumar. Formúla 1 9.1.2007 15:47