Formúla 1
80 81 82 83 84 85 86 87 88 … 151 ›
Williams staðfestir viðræður við Raikkönen Frank Williams hefur staðfest ári í viðtali við MTV3 sjónvarpsstöðina í Finnlandi að lið hans sé í viðræðum við Finnann Kimi Raikkönen um að aka með liðinu í Formúlu 1 á næsta ári. Oscar Saari, sem er Formúlu 1 sérfræðingur stöðvarinnar ræddi við Williams um áhuga hans á Raikkönen og hann sagði að það væri ekkert leyndarmál að liðið hefði mikinn áhuga á Raikkönen Formúla 1 16.11.2011 11:45
Formúlu 1 lið að meta hæfileika ungra ökumanna Formúlu 1 lið gáfu ungum ökumönnum tækifæri á Formúlu 1 tveimur æfingum í Abú Dabí í dag og verða æfingar næstu tvo daga til viðbótar. Liðin nota æfingarnar til að meta hæfileika ungra ökumanna með framtíðina í huga eða til að prófa ýmislegt í búnaði bíla sinna. Formúla 1 15.11.2011 17:48
Enn óljóst með endurkomu Kubica Eric Boullier framkvæmdarstjóri Renault Formúlu 1 liðsins segir að liðið sé enn að bíða og sjá hvort Robert Kubica keppi með liðinu i Formúlu 1 á næsta ári. Kubica slasaðist í rallkeppni s.l. vetur og gat ekki keppt með liðinu í ár og hefur verið í endurhæfingu eftir óhappið. Formúla 1 15.11.2011 10:15
Möguleiki Vettel á að jafna met Schumacher úr sögunni í ár Christian Horner, yfirmaður meistaraliðs Red Bull sagði Sebastian Vettel hafa verið vonsvikinn eftir keppnina í Abu Dabí í gær eins og allt liðið. Vettel féll úr leik í fyrsta hring eftir að afturdekk hvellsprakk og engin skýring hefur enn fundist á því hvað var þess valdandi. Vettel var í fyrsta sæti þegar dekkið sprakk. Formúla 1 14.11.2011 15:22
Whitmarsh: Frábært að sjá báða ökumenn McLaren á verðlaunapallinum Lewis Hamilton vann sinn sautjánda sigur með McLaren í gær, þegar hann kom fyrstur í endamark í Formúlu 1 mótinu í Abú Dabí í gær. Martin Whitmarsh, yfirmaður liðsins segir að Hamilton hafi ekið óaðfinnanlega, en liðsfélagi hans Jenson Button varð þriðji í keppninni. Formúla 1 14.11.2011 13:30
Alonso vill huga að næsta keppnistímabili sem fyrst Fernando Alonso á Ferrari veitti Lewis Hamilton mesta keppni í dag í Formúlu 1 mótinu í Abú Dabí í dag, en Hamilton vann sinn þriðja sigur á árinu þegar hann kom fyrstur í endamark í mótinu. Alonso sagðist hafa ekið hvern hring í mótinu eins og um tímatöku hefði verið að ræða, til að halda í við Hamilton. Formúla 1 13.11.2011 22:47
Vettel féll úr leik í fyrsta skipti á árinu eftir að dekk sprakk Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel féll úr leik í fyrsta hring í kappakstrinum í Abú Dabí í dag, eftir að afturdekk sprakk skömmu eftir að keppendur voru ræstir af stað. Bíllinn snerist útaf brautinni, en það er óljóst er hvað olli því að dekkið sprakk, því Vettel lenti ekki í stamstuði við neinn annan keppanda í upphafi mótsins. Hann hafði verið fremstur á ráslínu og var í forystu í kappakstrinum þegar dekkið sprakk. Formúla 1 13.11.2011 20:50
Lewis Hamilton vann í Abú Dabí Bretinn Lewis Hamilton, Mclaren, vann kappaksturinn í Abú Dabí í dag, en þetta er í þriðja sinn á tímabilinu sem hann fer með sigur af hólmi. Formúla 1 13.11.2011 20:09
Hamilton: Sigur er góður fyrir sálina Lewis Hamilton á McLaren vann sinn þriðja sigur á Formúlu 1 keppnistímabilinu í dag, þegar hann kom fyrstur í endarmark á Yas Marina brautinni í Abú Dabí. Hann tileinkaði móður sinni sigurinn þegar hann var kominn í endmark. Formúla 1 13.11.2011 18:29
Vettel: Mjög ánægður með að ná besta tíma Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í dag og jafnaði um leið met sem Nigel Mansell setti árið 1992, þegar hann náði fjórtán sinnum besta tíma í tímatöku. Vettel verður því fremstur á ráslínu í kappakstrinum á sunnudag og það er í fjórtánda skipti á árinu sem hann verður í þeirri stöðu í Formúlu 1 móti á árinu. Formúla 1 12.11.2011 21:16
Vettel fljótastur í tímatökunni í Abú Dabí og jafnaði met Mansell Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í tímatökunni á Yas Marina brautinni í Abu Dabí í dag. Hann var 0.141 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren og Jenson Button á McLaren náði þriðja besta tíma og var 0.150 úr sekúndu á eftir Vettel. Vettel hefur fjórtán sinnum náð besta tíma í tímatöku á árinu. Formúla 1 12.11.2011 14:43
Hamilton fljótastur á lokæfingunni í Abú Dabí Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinn í Abu Dhabi í dag. Hann varð 0.427 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Mark Webber á Red Bull var með þriðja besta tíma og var 0.451 á eftir Hamilton. Formúla 1 12.11.2011 11:41
Hamilton sneggstur á seinni æfingunni í Abú Dabí Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í dag, en liðsfélagi hans hjá McLaren liðinu, Jenson Button náði næstbesta tíma. Hamilton ók á tímanum 1.39.586, en Button var 0.199 úr sekúndu á eftir honum Formúla 1 11.11.2011 14:38
Button fljótastur á fyrstu æfingunni í Abú Dabí Jenson Button á McLaren var fljótastur á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í morgun, en næstsíðasta Formúlu 1 mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn. Formúla 1 11.11.2011 10:51
Rosberg framlengdi samning sinn við Mercedes liðið Nico Rosberg hefur framlengt samning sinn við Mercedes Formúlu 1 liðið og í frétt á autosport.com segir að umræða hafi verið um það síðustu mánuði að hann færi til Ferrari í framtíðinni, en nú er ljóst að hann hefur framlengt samning sinn við Mercedes til loka 2013 í það minnsta. En í fréttatilkynningu frá Mercedes er rætt um samning sem nær til loka 2013 og framyfir þann tíma, sem gæti þýtt að hann eigi val á að vinna lengur með Mercedes samkvæmt frétt autosport.com. Formúla 1 10.11.2011 16:00
Grosjean fær tækifæri á æfingum með Renault Heimsmeistarinn í GP 2 mótaröðinni 2011, Romain Grosjean mun aka með Renault liðinu á æfingu á föstudegi í þeim tveimur Formúlu 1 mótum sem eftir eru. Næsta mót er í Abú Dabí um næstu helgi. Grosjean er varaökumaður Renault liðsins, en Bruno Senna og Vitaly Petrov eru aðalökumenn þess. Formúla 1 9.11.2011 06:30
Button: Yas Marina brautin tilkomumikil Jenson Button hjá McLaren varð í öðru sæti á eftir Sebastian Vettel á Red Bull í síðustu Formúlu 1 keppni, sem var í Indlandi á nýrri braut og Button keppir í Abú Dabí um næstu helgi. Button er í öðru sæti í stigakeppni ökumanna, en Vettel er þegar orðinn heimsmeistari ökumanna. Formúla 1 8.11.2011 11:30
Hamilton vill vinna tvö síðustu mótin Lewis Hamilton hjá McLaren hefur unnið tvö Formúlu 1 mót á þessu keppnistímabili og vill ljúka því með því að vinna tvö síðustu mót ársins. Fyrra mótið er í Abu Dabí um næstu helgi, á Yas Marina-brautinni, en það síðara fer fram í Brasilíu. Formúla 1 7.11.2011 19:00
Schumacher segir óvenjulega stemmningu í Abú Dabí Formúlu 1 mót fer fram í Abú Dabí um næstu helgi og Michael Schumacher og Nico Rosberg hjá Mercedes mæta til leiks á mótsvæði sem var notað í fyrsta skipti árið 2009 í Formúlu 1. Mótið hefst í dagsbirtu, en lýkur á flóðlýstri braut, þar sem það hefst seint að degi til. Formúla 1 7.11.2011 16:00
Fjórir ökumenn eiga möguleika á öðru sætinu í stigamóti ökumanna Fjórir ökumenn eiga möguleika á að ná öðru sæti i stigamóti Formúlu 1 ökumanna, þegar tveimur mótum er ólokið, en McLaren liðið tryggði sér annað sætið í stigamóti bílasmiða í gær, á eftir Red Bull, með árangri liðsins á Buddh brautinni í Indlandi. Formúla 1 31.10.2011 20:00
Karthikeyan naut sín á heimavelli Indverjinn Narain Karthikeyan ók á heimavelli í fyrsta indverska Formúlu 1 kappakstrinum á Buddh brautinni í Indlandi í gær. Hann ók bíl HRT liðsins í stað Tonio Liuzzi, sem er keppir venjulega með liðinu ásamt Daniel Ricciardo. Formúla 1 31.10.2011 18:30
Ecclestone ánægður með fyrsta Formúlu 1 mótið í Indlandi Fyrsta Formúlu 1 mótið í Indlandi fór fram í gær á Buddh brautinni og Bernie Ecclestone, framkvæmdarstjóri FOM kveðst ánægður með fyrsta mótið í á brautinni. Formúla 1 31.10.2011 16:00
Vettel stoltur að vera fyrsti sigurvegarinn í Indlandi Sebastian Vettel hjá Bull liðinu bætti enn einni í rósinni í hnappagatið í Formúlu 1 keppni í dag þegar hann vann indverska Formúlu 1 kappaksturinn. Í fyrsta skipti á sömu mótshelgi náði hann að ná besta tíma í tímatöku, vera í forystu í keppninni frá upphafi til enda, ná besta aksturstímanum í einstökum hring í keppninni og fagna sigri. Vettel er líka yngsti ökumaður sögunnar til að ná þessum árangri í Formúlu 1 keppni. Formúla 1 30.10.2011 19:43
Enn einn sigurinn hjá Vettel Þjóðverjinn Sebastian Vettel fagnaði í dag sigri í indverska kappakstrinum í Formúlu 1-mótaröðinni en hann var fyrir nokkru síðan búinn að tryggja sér heimsmeistaratitilinn í ár. Formúla 1 30.10.2011 11:08
Vettel jafnaði árangur Prost og Senna í dag Sebastian Vettel á Red Bull náði því marki að ná besta tíma tímatöku í þrettanda skipti á árinu, í tímatökunni á Buddh brautinni í Indlandi í dag. Vettel jafnaði þannig árangur sem Alain Prost og Ayrton heitin Senna höfðu áður náð á sínum Formúlu 1 ferli í tímatökum en metið hvað árangur í tímatökum varðar á Nigel Mansell. Mansell náði fjórtan sinnum að vera fljótastur í tímatökum árið 1992. Formúla 1 29.10.2011 20:27
Vettel fremstur á ráslínu í þrettánda skipti og Red Bull sló met Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Buddh brautinni í Indlandi í dag. Lewis Hamilton var með næst besta tíma á McLaren og Mark Webber á Red Bull varð þriðji. Árangur Vettel þýðir að hann verður fremstur á ráslínu í þrettánda skipti í Formúlu 1 móti á árinu. Formúla 1 29.10.2011 11:35
Massa fljótastur á Buddh brautinni í Indlandi Felipe Massa á Ferrari náði besta aksturstímanum á Buddh brautinni í Indlandi, sem verður notuð í fyrsta skipti í keppni á sunnudaginn. Tvær æfingar fóru fram á föstudag á brautinni. Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á fyrri æfingunni, en Massa á þeirri síðari. Tími Massa reyndist besti tími dagsins. Formúla 1 28.10.2011 16:00
Mallya býst við glæstri Formúlu 1 hefð í Indlandi Fyrsta Formúlu 1 mót sögunnar í Indlandi fer fram á sunnudaginn og eitt keppnisliðið sem þar keppir var stofnað af indverskum aðila. Vijay Mallya stofnaði Formúlu 1 liðið Force India árið 2007, en nafn liðsins mætti þýða á íslensku sem Mátt Indlands. Force India liðið er með starfsaðstöðu við Silverstone brautina í Bretlandi og ökumenn liðsins eru Paul di Resta frá Skotlandi og Adrian Sutil frá Þýskalandi. Formúla 1 27.10.2011 22:24
Ný Formúlu 1 braut í Indlandi kostaði 300 miljónir Bandaríkjadala Nú Formúlu 1 braut verður notuð af Formúlu 1 liðum í keppni í fyrsta skipri á Indlandi á sunnudaginn, en hún er staðsett í 50 km fjarlægð frá miðhluta Nýju Delí og kallast brautin Buddh. Brautin var hönnuð af Hermann Tilke og fyrirtæki hans og er áætlað að það hafi kostað 300 miljónir Bandaríkjadala (nærri 34 miljarða íslenskra króna) að koma henni í gagnið samkvæmt upplýsingum frá FIA. Buddh brautin er 5.137 km að lengd og verða eknir 60 hringir í kappakstrinunm á sunnudag. Formúla 1 27.10.2011 19:15
Horner segir Red Bull liðið hafa bætt sig á öllum sviðum Red Bul liðiðl fagnaði því í gær að liðið vann titil bílasmiða í Formúlu 1, viku eftir að Sebastian Vettel, annar ökumanna liðsins hafði fagnað því að vinna meistaratitil ökumanna. Red Bull var í mestri samkeppni við McLaren og Ferrari um meistaratitil bílasmiða, en tryggði sér titilinn í gær, þó þremur mótum sé enn ólokið á keppnistímabilinu. Yfirmaður Red Bull, Christian Horner segir liðið hafa bætt sig á öllum sviðum. Formúla 1 17.10.2011 14:45