Erlent
155 156 157 158 159 160 161 162 163 … 334 ›
Bein útsending: Blaðamannafundur Selenskí og Niinistö Volodomír Selenskí Úkraínuforseti og Sauli Niinistö Finnlandsforseti halda sameiginlegan blaðamannafund að loknum tvíhliða fundi þeirra í Helsinki þar sem Selenskí sækir leiðtogafund Norðurlandanna. Erlent 3.5.2023 10:03
Níu látnir og sjö særðir eftir skotárás í skóla í Belgrad Fjórtán ára drengur skaut á kennara sinn, samnemendur og öryggisverði í Vladislav Ribnikar-grunnskólanum í Belgrad í Serbíu í morgun. Níu eru látnir, átta nemendur og öryggisvörður. Erlent 3.5.2023 09:25
„Það er ekki þannig sem hvítir menn slást“ Uppgötvun skilaboða sem sjónvarpsmaðurinn Tucker Carlson sendi framleiðanda hjá Fox News leiddi til röð atburða sem urðu til þess að forsvarsmenn Fox ákváðu að gera dómsátt við Dominion Voting Systems og láta Carlson fjúka. Erlent 3.5.2023 07:57
Dregur úr frelsi fjölmiðla um allan heim Fjölmiðlar eiga undir högg að sækja í fleiri ríkjum nú um stundir en nokkru sinni áður ef marka má árlega skýrslu um frelsi fjölmiðla. Erlent 3.5.2023 07:49
Maður handtekinn vegna fjöldamorðsins í Texas Lögregla í Texas í Bandaríkjunum hefur handtekið 38 ára karlmann vegna gruns um að hafa skotið fimm nágranna sína til bana norður af Houston, á föstudaginn. Erlent 3.5.2023 07:47
Selenskí var ekki látinn vita af lekanum áður en hann komst í fréttirnar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir hvorki Hvíta húsið né hermálayfirvöld vestanhafs hafa látið sig vita af gagnalekanum á dögunum áður en fréttir birtust af honum í fjölmiðlum. Hann segir lekann koma niður á bæði stjórnvöldum í Washington og í Kænugarði. Erlent 3.5.2023 06:59
Leituðu tveggja stúlkna en fundu sjö lík Lögregluþjónar í Oklahoma í Bandaríkjunum fundu sjö lík er þeir voru að leita tveggja táningsstúlkna sem talið er að séu meðal hinna látnu. Leitin að stúlkunum, Ivy Webster (14) og Brittany Brewer (16) hófst í gærmorgun en þær höfðu síðast sést í Henryetta í Oklahoma með Jesse L. McFadden, dæmdum kynferðisbrotamanni. Erlent 2.5.2023 22:38
Fyrsti leiðtogafundur Norðurlanda eftir inngöngu Finna í NATO Forseti Finnlands og forsætisráðherrar hinna Norðurlandanna koma á morgun saman í Helsinki til fyrsta sameiginlegs fundar þeirra frá því Finnar urðu formlega aðilar að NATO hinn 4. apríl. Þá er unnið að myndun nýrrar samsteypustjórnar hægri flokka í landinu. Erlent 2.5.2023 21:35
Missti konu sína og son í skotárás óðs nágranna Wilson Garcia og fjölskylda hans hringdu fimm sinnum eftir aðstoð lögreglu þegar nágranni þeirra í Cleveland í Texas í Bandaríkjunum, neitaði að hætta að skjóta úr byssu í garði sínum. Þeim var tjáð að hjálp væri á leiðinni en stuttu síðar skaut umræddur nágranni fimm manns til bana, þar af konu og son Garcia. Erlent 2.5.2023 21:00
Kastaði haglaskotum í höllina Lögreglan í Lundúnum hefur handtekið mann sem sagður er hafa kastað haglaskotum og öðrum munum að Buckingham höll. Grunsamlegur poki sem maðurinn var með í fórum sínum var sprengdur í loft upp. Erlent 2.5.2023 20:40
Biden sendir hermenn að landamærum Mexíkó Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað varnarmálaráðuneytinu að senda 1.500 hermenn til landamæra Bandaríkjanna og Mexíkó. Það gerði hann vegna mikils fjölda fólks sem er að reyna að komast inn í landið um landamærin. Erlent 2.5.2023 18:54
Stefnir í greiðsluþrot í júní verði skuldaþakið ekki hækkað Bandaríska alríkisstjórnin gæti lent í greiðsluþroti strax um mánaðamótin samþykki Bandaríkjaþing ekki að hækka svonefnt skuldaþak ríkisins í tæka tíð, að sögn Janet Yellen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Repúblikanar krefjast mikils niðurskurðar gegn því að þeir samþykki það. Erlent 2.5.2023 11:03
Hundrað þúsund rússneskir hermenn fallið eða særst síðan í desember Yfir tuttugu þúsund rússneskir hermenn hafa fallið og yfir áttatíu þúsund hafa særst frá því í desember síðastliðnum. Þetta fullyrða bandarísk yfirvöld. Erlent 2.5.2023 10:56
„Það þýðir ekkert að semja við Rússa“ Óskar Hallgrímsson, sem búsettur er í Kyiv í Úkraínu, telur að stríðið í Úkraínu eigi eftir að klárast í ár eða á næsta ári. Hann telur að eina leiðin til að stríðið endi sé sú að Rússland gefist upp, það þýði ekki að semja við þá. Erlent 2.5.2023 10:54
Fundu sjö lík við leit að tveimur unglingum Lögreglan í Oklahoma í Bandaríkjunum fann líkamsleifar sjö í afskekktu húsi í gær. Lögreglan var að leita að tveimur unglingsstúlkum en talið er að þær séu meðal hinna látna. Þá er maðurinn sem talinn er hafa rænt þeim, og hefur nokkra kynferðisbrotadóma á bakinu, einnig talinn meðal látinna. Erlent 2.5.2023 10:38
Handritshöfundar í Hollywood leggja niður störf Á tólfta þúsund handritshöfunda í sjónvarps- og kvikmyndagerð í Bandaríkjunum hefja verkfall til að krefjast kjarabót í dag. Verkfallið gæti lamað framleiðslu kvikmyndavera og sjónvarpsframleiðenda. Erlent 2.5.2023 08:43
Barnanauðgarar eiga nú yfir höfði sér dauðarefsingu í Flórída Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og mögulegur forsetaframbjóðandi, hefur undirritað lög sem útvíkka dauðarefsinguna í ríkinu. Hér eftir verður hægt að dæma þá sem eru fundnir sekir um að nauðga barni yngra en 12 ára til dauða. Erlent 2.5.2023 08:28
Óttast hrun heilbrigðiskerfisins í Súdan Heilbrigðisstarfsmenn í Súdan segja innviði landsins að hruni komna. Lík safnast upp á götum úti í höfuðborginni Khartoum, fólk hefur neyðst til að drekka mengað vatn og skortur er á mat og eldsneyti. Erlent 2.5.2023 07:29
Rúmlega hundrað lögreglumenn særðust í Frakklandi Rúmlega hundrað lögreglumenn eru slasaðir eftir mikil mótmæli í Frakklandi í gær, fyrsta maí. Erlent 2.5.2023 07:20
Skutu fjölda eldflauga á Úkraínu í morgun Rússar skutu fjölda eldflauga á úkraínskar borgir í morgun. Að minnsta kosti einn lést í Kherson-héraði en 34 eru slasaðir í Dnipropetrovsk. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræddi við varnarmálaráðherra Úkraínu símleiðis í morgun. Erlent 1.5.2023 13:40
Jemenar og Sýrlendingar sitja eftir með sárt ennið Sádi-Arabar hafa unnið hörðum höndum við að koma fólki frá Súdan vegna átaka sem geisa yfir þar í landi. Einungis eru það ríkisborgarar annarra landa en Súdan sem þeir taka á móti en þúsundir manna hafa beðið í höfninni svo dögum skiptir með von um að komast úr landi. Erlent 1.5.2023 11:33
Forsætisráðherraefni fæddi barn tveimur vikum fyrir kosningar Paetongtarn Shinawatra, sem talin er líklegust til að verða næsti forsætisráðherra Taílands, eignaðist barn í morgun, tveimur vikum áður en kosningar þar í landi hefjast. Erlent 1.5.2023 08:31
Samið um vopnahlé sem er þó frekar í orði en á borði Alþjóðadeild Rauða krossins tókst að senda hjálpargögn til Súdan í dag en áframhaldandi átök gera mannúðarstarfi erfitt fyrir. Samið hefur verið um vopnahlé en loftárásir á Kartúm, höfuðborg landsins, hafa samt sem áður haldið áfram linnulaust. Þörf sé á tafarlausu vopnahléi sem báðar fylkingar þurfi að virða Erlent 30.4.2023 23:41
Segir Tyrki hafa fellt leiðtoga ISIS Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrknesku leyniþjónustuna hafa fellt Abu Hussein al-Qurashi, sem sagður er hafa tekið við stjórn Íslamska ríkisins eftir að Abu Ibrahim al-Qurayshi lést í árás Bandaríkjamanna á heimili hans í febrúar í fyrra. Erlent 30.4.2023 22:39
12 ára hælisleitandi aflaði 60 milljóna króna fyrir bágstödd börn 12 ára hælisleitandi frá Eþíópíu hefur aflað bágstöddum börnum í Svíþjóð meira en 50 milljóna íslenskra króna með merkjasölu. Hann varð fyrir árásum fullorðinna kynþáttahatara þegar hann byrjaði að selja merkin, en hefur nú selt fleiri merki en nokkur annar í sögunni. Erlent 30.4.2023 15:30
Morðinginn í Texas ófundinn og gæti verið hvar sem er Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt fimm nágranna sína í bænum Cleveland í Texas í gær er enn ófundinn. Lögreglan hefur varað við að hann sé vopnaður og gæti verið í felum hvar sem er. Erlent 30.4.2023 13:49
Ellefu látnir eftir gasleka Ellefu manns hafa látið lífið í borginni Ludhiana í norðurhluta Indlands eftir það sem talið er að sé gasleki. Uppruni lekans er yfirvöldum enn óljós. Erlent 30.4.2023 11:41
Sögð hafa káfað á ungum karlmönnum og segir af sér Formaður Fagbevægelsens Hovedorganisation, alþýðusambandsins í Danmörku, hefur sagt af sér vegna ásakana um að hafa farið yfir mörk í samskiptum sínum við unga karlmenn. Síðustu daga hafa nokkrir meðlimir sambandsins kallað eftir því að hún segði af sér. Erlent 30.4.2023 09:53
Hryðjuverkamaður náðaður og yfirgaf fangelsið á hestbaki Hryðjuverkamaðurinn György Budaházy var meðal þeirra sem forseti Ungverjalands, Katalin Novák, náðaði á föstudag, nokkrum dögum fyrir heimsókn páfans til landsins. Yfirgaf hann fangelsið á hestbaki. Erlent 30.4.2023 08:10
Freyja gerð ódauðleg með styttu í Osló Reist hefur verið stytta af vandræðarostungnum Freyju í Osló, höfuðborg Noregs. Freyja var aflífuð í ágúst á síðasta ári vegna ágengni almennings og ferðamanna þar sem hún dvaldi á smábátabryggju nærri Osló. Erlent 30.4.2023 07:46