Erlent
299 300 301 302 303 304 305 306 307 … 334 ›
Taldir ætla að króa fjórðung úkraínska hersins af í Donbas Þó hægt hafi á sóknum Rússa á mörgum vígstöðvum Úkraínu, og þeir hafi jafnvel þurft að hörfa undan gagnárásum Úkraínumanna í grennd við Kænugarð og Mykolaiv, hafa Rússar sótt fram í Donbas-héraði. Sú sókn hefur gengið hægt og rólega en hún hefur gengið. Erlent 24.3.2022 11:26
Segja Stoltenberg verða ár lengur í embætti Jens Stoltenberg mun framlengja tíð sína sem framkvæmdastjóri NATO um eitt ár en til stóð að hann myndi láta af embætti næsta haust. Ástæðan er ástandið vegna innrásar Rússa í Úkraínu sem hófst fyrir sléttum mánuði. Erlent 24.3.2022 10:47
Stærstu eldflaug Norður-Kóreu skotið á loft Ríkisstjórn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skaut í morgun stærstu eldflaug sem verkfræðingar einræðisríkisins hafa hingað til framleitt á loft. Eldflaugin flaug í þúsunda kílómetra hæð og lenti í sjónum undan ströndum Japans, innan lögsögu ríkisins. Erlent 24.3.2022 10:04
„Tígris-teymið“ skoðar viðbrögð vegna efna- og kjarnorkuvopnaárása Hvíta húsið hefur kallað saman teymi sérfræðinga á sviði þjóðaröryggismála til að skoða möguleg viðbrögð við því ef Vladimir Pútín Rússlandsforseti grípur til þess að nota efna, lífefna eða kjarnorkuvopn í Úkraínu. Erlent 24.3.2022 06:51
Óttast eldgos á Asóreyjum Mikil skjálftavirkni hefur mælst á Asóreyjum síðustu daga og yfirvöld óttast að virknin kunni að leiða til eldgoss. Grannt er fylgst með stöðunni og ferðamenn eru hvattir til að hætta sér ekki á eyjarnar. Erlent 23.3.2022 23:32
Stálheppinn Norðmaður vann 800 milljónir Ljónheppinn Norðmaður vann fyrsta vinning í Víkingalottó þessa vikuna og fær rúmlega 808 milljónir króna í sinn hlut. Samlandi hans var með annan vinning og fær rúmar 57 milljónir fyrir. Erlent 23.3.2022 23:21
Selenskí ávarpar heimsbyggðina og boðar mótmæli: „Heimurinn verður að stöðva Rússland“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur kallað eftir því að fólk um allan heim safnist saman á morgun, fimmtudaginn 24. mars, til að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu. Hann segir aðgerðir Rússa aðeins byrjunina á stríðinu gegn frelsi í Evrópu. Erlent 23.3.2022 22:55
Neita að endurskoða lífstíðardóm framhaldsskólastarfsmanns Pamela Smart, sem situr inni fyrir að hafa látið framhaldsskólanema myrða eiginmann sinn, fær ekki endurskoðun á lífstíðardómnum er hún hlaut fyrir rúmum þrjátíu árum síðan. Erlent 23.3.2022 22:50
Madeleine Albright látin Madeleine Albright, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú fallin frá, 84 ára að aldri, en fjölskylda hennar greinir frá þessu í yfirlýsingu. Hún lést af völdum krabbameins. Erlent 23.3.2022 19:29
Neyðarfundur helstu leiðtoga heims hefst á morgun Hugmyndir Pólverja um að NATO-ríki taki að sér friðargæslu í Úkraínu fá dræmar undirtektir fyrir sérstakan leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins, G-7 ríkjanna og Evrópusambandsins í Brussel á morgun. Hundrað þúsund manns eru enn í Mariupol undir stöðugum loftárásum. Kanslari Þýskalands segir Þjóðverja ekki geta hætt skyndilega að kaupa olíu af Rússum. Erlent 23.3.2022 19:20
Saka Rússa formlega um stríðsglæpi: „Að ráðast vísvitandi á óbreytta borgara er stríðsglæpur“ Anthony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir bandarísk stjórnvöld hafa formlega lýst því yfir að rússneskar hersveitir hafi framið stríðsglæpi í Úkraínu með því að ráðast á óbreytta borgara. Hann segir skýr sönnunargögn um að árásir Rússa hafi valdið dauða og eyðileggingu um alla Úkraínu. Erlent 23.3.2022 19:00
Vaktin: Kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim á morgun Sérstakur leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins, G-7 ríkjanna og Evrópusambandsins fer fram í Brussel á morgun en forseti Úkraínu kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim. Þetta sagði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, í daglegu ávarpi sínu í nótt. Erlent 23.3.2022 15:10
Varðist ásökunum um linkind í garð barnaníðinga Ketanji Brown Jackson hefur varið undanförnum tveimur dögum í að svara fjölmörgum spurningum bandarískra öldungadeildarþingmanna. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur tilnefnt hana til Hæstaréttar og ef hún kemst í gegnum staðfestingaferli öldungadeildarinnar verður hún fyrsta þeldökka konan í Hæstarétti Bandaríkjanna. Erlent 23.3.2022 10:09
Annar flugrita kínversku vélarinnar fundinn Leitarlið hefur fundið annan af flugritum farþegavélarinnar sem hrapaði í suðurhluta Kína á mánudaginn. Ekki er liggur fyrir hvort um sé að ræða ferðritann eða hljóðritann en hann er mikið skemmdur að því er segir í frétt AP. Erlent 23.3.2022 09:48
Aftur til fortíðar? Skortur og raðir í Rússlandi Refsiaðgerðir bandamanna gegn Rússum eru farnar að bitna á almennum borgurum, sem þurfa nú að greiða töluvert meira fyrir innfluttan varning en áður, ekki síst vegna gengislækkunar rúblunnar. Erlent 23.3.2022 08:58
Taka þökin af turnum Dómkirkjunnar í Lundi Þak nyrðri turns Dómkirkjunnar í Lundi var fjarlægt með stórum krana í gær en framundan eru endurbætur á kirkjunni sem nú er klædd er stillönskum. Mikill fjöldi fólks kom saman til að fylgjast með framkvæmdinni. Erlent 23.3.2022 08:57
Einn látinn eftir að hvirfilbylur gekk yfir úthverfi New Orleans Að minnsta kosti einn er látinn eftir að stór hvirfilbylur gekk yfir bandarísku stórborgina New Orleans í gær og í nótt. Óveðrið þeytti upp bílum og svipti þökum af húsum í Arabi-hverfinu auk þess sem rafmagn fór af stórum hluta borgarinnar. Erlent 23.3.2022 07:16
Bandaríkjamenn gagnrýna „hættulegt“ tal Rússa um notkun kjarnorkuvopna John Kirby, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, fordæmdi ummæli talsmanns stjórnvalda í Moskvu á CNN í gær, þar sem hann sagði að kjarnorkuvopnum yrði mögulega beitt ef „tilvistaleg ógn“ steðjaði að Rússum. Erlent 23.3.2022 06:19
Viðtal við konu frá Maríupól: Sátu á gólfinu og báðu bænir í sprengjuregni Kona sem flúði Maríupól í Úkraínu, þar sem fólk býr við hryllilegar aðstæður eftir linnulausar árásir Rússa, segir skelfilegt að horfa upp á heimaborg sína sprengda í loft upp. Hún þurfti að sjá um alla matseld við opinn eld undir berum himni eftir að rafmagnslaust varð í borginni. Erlent 22.3.2022 20:00
Úkraínuforseti kallar rússneska hermenn áróðursþræla Forseti Úkraínu hvetur Vesturlönd til að herða enn á refsiaðgerðum sínum og auka stuðning þeirra við Úkraínu. Hann kallar rússneska hermenn þræla sem skjóti að frjálsu fólki í borgum sem þeir hafi hertekið. Barist er á götum Mariupol þar sem talið er að hersveitir Téténa leggi Rússum lið. Erlent 22.3.2022 19:21
Fjögur látin í hryðjuverkaárás í Ísrael Árásarmaður ók yfir hjólreiðarmann og stakk fimm manns við verslunarmiðstöð í borginni Bersheeba í Íslrael í dag. Tala látinna er komin í fjóra. Erlent 22.3.2022 18:51
Segir ekkert eftir af Mariupol og kallar eftir aðgerðum Volódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði ítalska þingið í dag en hann sagði ekkert eftir af borginni Mariupol, sem Rússar hafa setið um í þrjár vikur. Selenskí sagði rússneskar hersveitir hafa varpað tveimur stórum sprengjum á borgina í dag en mannfall eftir þær árásir liggur ekki fyrir. Að sögn Selenskí vilja rússneskar hersveitir aðeins skilja borgina eftir í rústum. Erlent 22.3.2022 18:06
Vaktin: Von á hertum refsiaðgerðum síðar í vikunni Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur ítrekað ákall sitt eftir viðræðum við Vladimir Pútín Rússlandsforseta, sem hann segir lykilinn að því að binda enda á stríðið. Fulltrúar Rússlands segja samningaviðræður ekki enn komnar á það stig. Erlent 22.3.2022 14:00
Fangelsisvistin lengd um níu ár og Navalní færður í hámarksöryggisfangelsi Alexei Navalní, pólitískur andstæðingur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefur verið dæmdur í níu ára fangelsi og verður færður í hámarksöryggisfangelsi. Hann var í morgun dæmdur sekur um stórfellt fjármálamisferli í tengslum við samtök hans gegn spillingu í Rússlandi sem yfirvöld hafa skilgreint sem öfgasamtök. Erlent 22.3.2022 13:10
Sjá engin ummerki um undiröldu gegn Pútín Vladimír Pútin, forseti Rússlands, getur enn reitt sig á hollustu hinnar pólitísku elítu í Rússlandi. Það er þrátt fyrir fordæmalausar refsiaðgerðir vegna innrásar Rússa í Úkraínu og að innrásin hafi verið fordæmd um mest allan heim. Erlent 22.3.2022 11:59
Leita að flugritum MU5735 í skógi vöxnu fjalllendi Viðbragðsaðilar hafa verið að í um sólarhring við að leita að líkum þeirra sem fórust í flugslysi í suðurhluta Kína í gærmorgun. Óvíst er hvað olli slysinu og er flugritanna enn leitað. Erlent 22.3.2022 09:49
Var handtekinn tíu mínútum eftir að tilkynning barst Átján ára nemandinn, sem banaði tveimur konum í framhaldsskóla í sænsku borginni Malmö síðdegis í gær, var handtekinn tíu mínútum eftir að tilkynning um árásina barst lögreglu. Erlent 22.3.2022 09:16
Navalní fundinn sekur um fjármálamisferli Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní, einn helsti gagnrýnandi Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, var í morgun fundinn sekur um stórfellt fjármálamisferli. Erlent 22.3.2022 08:00
Búa sig undir mikið óveður Íbúar í Louisiana, Mississippi og Alabama í Bandaríkjunum hafa verið varaðir við miklu óveðri sem er að skella á ríkin eftir að hafa skilið eftir sig slóð eyðileggingar í Texas. Óttast er að sterkir skýstrokkar myndist víða. Erlent 22.3.2022 07:21
Biden segir Pútín „kominn út í horn“ og hann íhugi notkun efnavopna Falskar ásakanir Rússa um að Úkraína hafi verið að þróa og búi að lífefna- og efnavopnum er „augljóst merki“ um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hyggist beita slíkum vopnum. Erlent 22.3.2022 06:30