Skoðun
Hvernig lítur framtíð verslunar í landinu út?
Atvinnugrein heild- og smásöluverslunar skipar stórt hlutverk í íslensku hagkerfi. Hún skiptir miklu máli fyrir samfélagið og fyrir neytendur. Framlag greinarinnar til landsframleiðslu er um 8%, greining býr til störf fyrir um 11% af vinnuafli landsins og um 30% af neyslu heimila fer til fyrirtækja í greininn. Mikilvægi greinarinnar er ótvírætt og því mikilvægt að huga að framtíð hennar.
Landbúnaðarstefna og búvörusamningar
Fyrir helgi birti matvælaráðherra inn á samráðsgátt stjórnvalda Tillögu að þingsályktun um landbúnaðarstefnu til ársins 2040. Það er löngu tímabært og ber að fagna á sama tíma er umræða um endurskoðun búvörusamninga er að hefjast.
Firring og bæling
Síðustu daga hef ég setið undir ýmsum ærumeiðingum og verið borin sökum sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Ég er máluð upp opinberlega, með skipulögðum hætti sem transfóbískur og hatursfullur rasisti.
Ljósið í undruninni
Í rauntengdum heimi er sem hefðbundin trú á Guð sé að einhverju leiti á undanhaldi, eða hvað? Jú, þegar allt leikur í lyndi, fjármálakerfin virka og góðrar heilsu notið, er öryggiskenndin meiri og þörfin fyrir trú minni. Jesú Kristur verður þannig feimnismál margra að vitja, ræða um eða viðurkenna.
Afvegaleiðing atvinnurekenda
Um allan heim er að renna upp fyrir stjórnvöldum að ein stærsta áskorunin sem samfélög standa frammi fyrir er skortur á starfsfólki í heilbrigðisþjónustu og umönnun á sama tíma og þörfin fyrir slíka þjónustu er að aukast mjög á næstu árum vegna hækkandi lífaldurs, hlutfallslegrar fjölgunar aldraðra og fólksfjölgunar.
Eru samningar Landsvirkjunar við landeigendur við Þjórsá löglegir?
Þann 17. janúar síðastliðinn birti ég greinina Samfélagsleg áhrif af sambúð með Landsvirkjun á visir.is. Í henni skoðaði ég samfélagsleg áhrif af ríflega hálfrar aldar sambýli Landsvirkjunar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Ég bar saman bæði mannfjöldaþróun og rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins við nágrannasveitarfélögin. Í þeim samanburði kom Skeiða- og Gnúpverjahreppur verst út og vil ég meina að sambúð við Landsvirkjun hafi þar áhrif.
Að ýta kerfinu fram yfir þolmörk þess
Það eru blikur á lofti. Á örfáum árum hefur stóraukin harka færst í samskipti ólíkra samfélagshópa. Háværu raddirnar hafa hlotið mestan hljómgrunn á meðan skynsemisraddirnar hafa verið kaffærðar.
Létta Borgarlínan er hagkvæmasta lausnin
Samtökin „Samgöngur fyrir alla“ (SFA) hafa lagt fram tillögur sem geta bætt umferðarástandið á höfuðborgarsvæðinu án þess að leggja þurfi á vegfarendur svokölluð tafagjöld eða flýtigjöld. Í stað rándýrra vegstokka er gerð tillaga um mislæg gatnamót sem eru um 3 sinnum ódýrari.
Eru grænmetisolíur eitur?
Grænmetisolíur hafa verið töluvert áberandi í umræðunni á samfélagsmiðlum að undanförnu og virðist algengt að halda fram skaðsemi þeirra.
Eiga opinberir starfsmenn að njóta ríkari réttarverndar í starfi?
Í umræðu um réttarvernd opinberra starfsmanna vaknar oft upp spurningin hvers vegna opinberum starfsmönnum er tryggð ríkari réttarvernd í samskiptum sínum við ríkið og sveitarfélögin sem vinnuveitendur en launþegar búa almennt við á almennum vinnumarkaði og hvort ekki sé komin tími á endurskoðun á þessu umhverfi.
Hjálpaðu mér upp, mér finnst ég vera að drukkna
Umræða um leikskóla í samfélaginu er í stuttu máli þessi:Það vantar rými fyrir börn, helst eins ung og hægt erÞað vantar leikskólakennara og starfsfólkÞað er mygla í skólum
Ofbeldi stjórnenda gagnvart almennu starfsfólki
Ofbeldi á vinnumarkaði er margvíslegt. Það fyrirfinnst meðal almenns starfsfólks, frá almennu starfsfólki til stjórnenda, og frá stjórnendum til almenns starfsfólks.
Ég sé skýrar
Nú sé ég starf mitt og köllun skýrar.
Þingmenn kusu án þekkingar – en það má bæta fyrir þær misgjörðir
Svo fór illu heilli að frumvarp til nýrra laga um leigubifreiðar var samþykkt í flýti skömmu fyrir jólaleyfi þingmanna.
Íslensk táknmál er “þjóðtunga” döff Íslendinga
Dagur íslenska táknmálsins (ÍTM) er þann 11. febrúar, sama dag og afmæli Félags heyrnarlausra. Árið 2011 tóku gildi lög um stöðu íslenskrar tungu og ÍTM. Samkvæmt þeim er íslenska og íslenskt táknmál jafnrétthá til tjáningar og samskipta manna í milli. Þar kemur jafnframt fram að íslenska sé þjóðtunga Íslendinga og opinbert mál á Íslandi. Íslensk táknmál er á sama hátt „þjóðtunga“ um 300 döff íslendinga. Íslenskt táknmál er ekki alþjóðlegt mál heldur sérstakt fyrir Ísland, líkt og önnur tungumál eru ólík á milli landa.
Uppvakningahugmyndir um sjóeldi
Uppvakningahugmynd (e. zombie ideas) er hugmynd eða hugarfóstur sem hefði átt að vera drepin með staðreyndum en nær samt að lifa áfram og vakna aftur til lífsins sama hvað á dynur, og er þannig haldið á lofti í umræðunni eins og sannindum þrátt fyrir að staðreyndir tali öðru máli.
Ég á vinkonu
Ég á vinkonu.
Til hamingju með dag íslensks táknmáls!
Íslenskt táknmál er annað tveggja tungumála sem fjallað er um í lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls nr. 61/2011. Íslenskt táknmál er jafnrétthátt íslensku til tjáningar og samskipta og óheimilt er að mismuna fólki eftir því hvort málið það notar (2. mgr., 13. gr.). Íslenskt táknmál er fyrsta mál um 250-300 manns hér á landi.
Um fúsk og óráðsíu háskólaráðherra
Háskóla Íslands vantar milljarð til að ná endum saman á þessu ári vegna niðurskurðar háskólastigsins. Ljóst er að niðurskurðurinn muni draga úr getu háskólanna til að sækja fram – sem jafnframt mun hafa afleiðingar fyrir sóknarfæri lands og þjóðar til framtíðar. En hvernig bregðast stjórnmálamenn við þessari stöðu, t.d. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem ætti að bera hag háskólanna fyrir brjósti og ekki síst reyna að skilja hvar skóinn kreppir að?
Nokkrar vangaveltur um tryggingar
Enn og aftur sting ég niður penna og fjalla um hækkun trygginga. Það er ekki að ástæðulausu, því í nýlegum Þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að hlutfall þeirra sem ekki ná endum saman fjárhagslega hafi ekki verið jafn hátt í sjö ár og sögðust átta af hundrað safna skuldum.
Sameinumst og skerum meinið burt!
Stundum dettur maður óvart í „Lennon-íska“ trú á mannkynið og þá er um að gera að nýta það áður en ískaldur raunveruleikinn sparkar manni til baka í febrúar-slabbið.
Minnstu bræðurnir
Kópavogur á að fara fyrir í að hjálpa þeim sem helst eru hjálpar þurfi, ekki vera eftirbátur annarra. Fjárfesting í betra samfélagi er góð fjárfesting sem skilar góðri ávöxtun á alla mælikvarða. Mannúð elur af sér mannúð.
Metnaðarlaust klúður í skipulagsmálum í Kópavogi - Kársnes
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Kópavogi hefur haldið því fram að skipulagstillaga á reit 13 á þróunarsvæði á Kársnesinu hafi verið unnin í samráði við íbúa á svæðinu. Sú fullyrðing er í besta falli sjónhverfingar.
Vinur minn Róbert Guðfinnsson
Fyrst vil ég þakka fjölmörgum Siglfirðingum bæði búsettum og brottfluttum fyrir jákvæð símtöl, skilboð og auðsýndu þakklæti fyrir greinarkorn mitt um mismerkilega Siglfirðinga. Þessi sterku viðbrögð komu ánægjulega á óvart. Það sem flestir tala um, er hvers vegna heyrist ekkert í bæjarstjórn Fjallabyggðar um þetta alvarlega málið.
Hvaða fornöfn notar þú?
Vani er bara vani þar til við brjótum hann. Það getur verið krefjandi, til dæmis þegar fólk setur sér áramótaheit að í stað þess að sofa til 10 þá ætli þau heldur að mæta 5:30 í OLY tíma í líkamsræktarstöð fjarri heimili sínu. Flest bölvum við sjálfum okkur fyrir þetta eftir sirka 10 daga og tökum okkur sjálf og aukna svefnþörf aftur í sátt.
Um lögmæti búvörusamninga
Í kvöldfréttum RÚV þann 3. febrúar sl. var umfjöllun um gerð nýrra búvörusamninga. Þar var m.a. tiltekið að núgildandi búvörusamningar hefðu verið gerðir árið 2016 og ættu að gilda út árið 2026 en síðari endurskoðun þeirra stæði nú fyrir dyrum.
Ber láglaunafólk ábyrgð á stöðugleikanum?
Í þessari viku hófust verkföll á Íslandi. Og í þessari viku hækkuðu vextir, sem eru ekkert annað en verð á peningum. Matarkarfan okkar verður dýrari með hverjum mánuðinum. Verðbólgan er í tæpum 10% en með henni rýrnar virði peninganna okkar.
Að berjast eða barma sér
Allt frá því að kjarasamningar Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins voru kynntir í desember á síðasta ári hefur Efling haldið því fram að þessir samningar væru mistök.
Fortíðin er búin, framtíðin er snúin
Allt sem við gerðum í fortíðinni mótaði hvernig samtíminn okkar lítur út. Allt sem við ákveðum í dag hefur áhrif á framtíð okkar,framtíð barna okkar og barnabarna.
Biðja um launahækkun korter í egglos
Af hverju er almennur vinnutími frá 9-5? Hvað er það sem stýrði því að atvinnulífið þróaðist á þann veg? Sögubækur segja okkur að karlmenn voru lengi vel þeir sem voru úti á vinnumarkaðnum og kvenmenn sáu um heimilishald og börnin á meðan.