Viðskipti erlent
289 290 291 292 293 294 295 296 297 … 334 ›
Lánakjörin batna hjá Atlantic Petroleum Færeyska olíufélagið Atlantic Petroleum hefur náð samkomulagi við lánadrottna sína um betri kjör á lánum til endurfjármögnunnar félagsins. Tilkynnt var um endurfjármögnunina þann 9. júní en hún fólst í bæði auknum lántökum og hlutafjáraukningu. Viðskipti erlent 28.9.2009 09:20
Brown vill lög til að koma í veg fyrir launabónusa Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, ætlar að banna bónuslaunakerfi sem tíðkaðist í bönkunum fyrir fjármálakreppu. Hann ætlar að neyða bankana til þess að hegða sér með ábyrgari hætti. Viðskipti erlent 27.9.2009 10:46
AGS býst við hraðari bata í alþjóða hagkerfinu Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn býst við því að efnahagsbatinn í alþjóðahagkerfinu verði hraðari en áður var búist við. Viðskipti erlent 26.9.2009 10:21
Auðugustu Norðmennirnir tapa 2.100 milljörðum Sameiginlegt tap 400 auðugustu Norðmannana á síðusta ári nemur tæplega 100 milljörðum norskra kr. eða um 2.100 milljörðum kr. Ef litið er á þá 10 sem skipa toppinn á listanum yfir auðugustu menn Noregs er tap þeirra samtals 27 milljarðar norskra kr. eða rúmlega fjórðungur af heildartapi þessa fólks. Viðskipti erlent 25.9.2009 14:24
,,Armageddon" ef bandarískar skuldir hætta að seljast Julian Robertson stofnandi og stjórnarformaður Tiger Management segir að það muni liggja við heimsendi (Armageddon) ef Japanir og Kínverjar gefist upp á að kaupa bandarískar skuldir, það er ríkisskuldabréf. Viðskipti erlent 25.9.2009 11:09
Óttast að danskir „gulldrengir“ hafi komið auðæfum undan Talið er að talsverður fjöldi fjármálamanna og fasteignabraskara Í Danmörku hafi komið töluverðu af auðæfum sínum undan þrotabúum og geymi peninga sína erlendis. Skiptastjórar þrotabúa þeirra óttast að þessir fjármunir muni aldrei finnast. Viðskipti erlent 25.9.2009 08:35
Fjórir af hverjum tíu auðmönnum hagnast í kreppunni Samkvæmt nýrri könnunun hafa fjórir af hverjum tíu auðmönnum í heiminum hagnast á kreppunni undanfarið ár. Svo virðist sem útlitið sé bjart hjá þessum hluta heimsbúa því átta af hverjum tíu auðmanna búast við að hagnast á næsta ári. Viðskipti erlent 24.9.2009 17:00
Óvíst hvort Jón Ásgeir haldi söluverði íbúðar í Khöfn Vefsíðan business.dk greinir frá því í dag að lúxusíbúð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Kaupmannahöfn hafi verið seld en að óvíst sé hvort Jón Ásgeir fái að halda söluverðinu. Fréttastofa hefur áður greint frá þessari íbúð og sagt hana vera bitbein milli þrotabús Baugs í Danmörku og Gaums eignarhaldsfélags Jóns Ásgeirs og fjölskyldu. Viðskipti erlent 24.9.2009 14:43
Breskir stórbankar voru nokkrum tímum frá hruni Bresku stórbankarnir HBOS og Lloyds voru aðeins nokkrum klukkutímum frá hruni síðasta haust. Þetta segir Mervyn King seðlabankastjóri Englands í nýjum þætti á BBC, The Love of Money, sem sýndur er í dag. Viðskipti erlent 24.9.2009 12:25
JJB Sports tapaði 9 milljörðum á fyrri helming ársins Íþróttavörukeðjan JJB Sports tapaði 42,9 milljónum punda, eða tæplega 9 milljörðum kr., fyrir skatta á fyrri helmingi ársins. Er þetta þrefalt meira tap en á sama tímabili í fyrra. Viðskipti erlent 24.9.2009 10:03
Olíuverðið fellur undir 70 dollara eftir birgðatölur Heimsmarkaðsverð á olíu á markaðinum í New York féll í 69,3 dollara á tunnuna í dag eftir að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna birtir nýjar tölur um olíubirgðir landsins. Reyndust birgðirnar mun meiri en sérfræðingar höfðu spáð fyrir um. Viðskipti erlent 23.9.2009 15:13
Norðmenn ólmir í að hefja olíuleit við Jan Mayen Á sama tíma og allir eru hættir við olíuleit og rannsóknir á Drekasvæðinu berast fréttir frá Noregi um að Norðmenn séu ólmir í að hefja olíuleit við Jan Mayen-hryggnum það er sín megin á svæðinu. Viðskipti erlent 23.9.2009 12:42
Útlendingar mjólka danska skattkerfið Ríkissjóður Danmerkur er hreint sjálfsafgreiðslu hlaðborð fyrir hátt í 50.000 útlendinga sem vinna í landinu. Og það eru í raun engir möguleikar á að hafa stjórn á því. Viðskipti erlent 23.9.2009 09:54
Húsaleigan lækkar í dýrustu götu heimsins Verslunargatan Fifth Avenue í New York er á toppi listans yfir dýrustu götur heimsins en þar hefur húsaleigan lækkað töluvert í ár eða um rúm 8%. Ferfetið við götuna er nú leigt á 1.700 dollara eða um 209 þúsund kr. Viðskipti erlent 23.9.2009 09:35
Moody´s sakað um að blása upp lánshæfiseinkunnir Fyrrverandi greinandi hjá matsfyrirtækinu Moody´s hefur sakað Moody´s um að blása upp lánshæfiseinkunnir sínar. Hefur hann farið með málið fyrir ransóknarnefnd á Bandaríkjaþingi, að því er segir í blaðinu Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 23.9.2009 08:54
Barroso minnti írska kjósendur á örlög Íslands José Manuel Barroso nýkjörinn forseti framkvæmdastjórnar Ervrópusambandsins minnti írska kjósendur á örlög Íslendinga þegar hann heimsótti Limerick á Írlandi um síðustu helgi. Barroso var þar á ferð til að styðja baráttuna fyrir því að Írar samþykktu Lisbon-sáttmálann í komandi kosningum. Viðskipti erlent 23.9.2009 08:37
Hlutabréfamarkaðurinn hefur ekki verið hærri í Bandaríkjunum í ár Hlutabréf á Wall Street hækkuðu í kvöld og hafa ekki verið hærri það sem af er ári. Dow Jones vísitalan hækkaði um 0,5%, Nasdaq hækkaði um 0,4% og S&P 500 hækkaði um 0,7%. Viðskipti erlent 22.9.2009 22:16
Blóðbað meðal svissneskra úraframleiðenda Sala á lúxusvörum hefur hrapað í kreppunni og nú finna starfsmenn hjá svissneskum úraframleiðendum fyrir því. Talið er að minnkandi sala á úrum muni kosta um 3.000 störf í þessum iðnaði í Sviss. Viðskipti erlent 22.9.2009 14:48
Tvívolíið í Kaupmannahöfn heldur sínu í kreppunni Þótt að komum erlendra ferðamanna í Tívolíið í Kaupmannahöfn hafi fækkað töluvert í ár hefur komum heimamanna fjölgað á móti þannig að þessi þekkti ferðamannastaður hefur haldið sínu í kreppunni. Viðskipti erlent 22.9.2009 10:58
Bank of America fyrir dóm vegna bónusgreiðslna Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna (SEC) ætlar að draga stjórn Bank of America fyrir dómstóla vegna þess að stjórnin dró fjárfesta á asnaeyrunum þegar hún lýsti því yfir að engar bónusgreiðslur yrðu greiddar til starfsmanna Merrill Lynch án samþykkis hlutafjáreigenda. Viðskipti erlent 22.9.2009 10:24
Norðmenn íhuga olíuleit við Jan Mayen Í dag mun sendinefnd frá Noregi með Terje Riis-Johansen olíu- og orkumálaráðherra landsins í broddi fylkingar heimsækja Jan Mayen. Samkvæmt frétt um málið á vefsíðunni e24.no eru Norðmenn nú að íhuga olíuleit á Jan Mayen hryggnum í framhaldi af áformum Íslendinga á Drekasvæðinu. Viðskipti erlent 22.9.2009 09:35
Kíló af sænskum humar selt á 20.000 krónur Fyrsti humar fiskveiðaársins í Svíþjóð var seldur á 1.100 krónur sænskar kílóið á uppboði í morgun eða rétt tæplega 20.000 kr. íslenskar. Viðskipti erlent 22.9.2009 08:42
Gengið frá láni danskra stjórnvalda til Föroya Banki Í dag var gengið frá láni danskra stjórnvalda til Föroya Banki en lánið kemur úr svokölluðum bankpakke II. Upphæð lánsins er rétt rúmlega 204 milljónir danskra kr. eða um 5 milljarðar kr. Viðskipti erlent 21.9.2009 15:12
Íslandshrun leiðir til breytinga í fjármálum breskra sveitarfélaga Hið gífurlega tap bæjar- og sveitarfélaga á hruni íslenska bankakerfisins s.l. haust hefur leitt til grundvallarbreytinga í stjórn á fjármálum þessara félaga. Fulltrúar þeirra eiga nú í viðræðum við forstjóra sjóða í The City, fjármálahverfi Lundúna, um stofnun nýrra sjóða sem sjái sérstaklega um að ávaxta fjármuni bæjar- og sveitarfélaganna. Viðskipti erlent 21.9.2009 10:45
Hertar bankareglur G-20 munu draga úr hagnaði banka Leiðtogar G-20 ríkjanna hittast í vikunni og á fundi þeirra verður reynt að herða reglur um starfsemi banka. Í frétt á Bloomberg fréttaveitunni segir að um umfangsmestu uppstokkun á þessum reglum verði að ræða síðan upp úr 1930. Talið er að reglurnar muni draga úr hagnaði bankanna og á þeim bæjum eru menn ekki sáttir. Viðskipti erlent 21.9.2009 09:52
Fjármálaspekingur: Alheimsgjaldmiðill árið 2024 Kínverski fjármálaspekingurinn og rithöfundurinn Song Hongbing segir í nýrri bók sinni, Gjaldeyrisstríðin, annar hluti (The Currency Wars Two) að dularfull en geysiöflug alþjóðleg samtök muni árið 2024 losa sig við dollara og aðra helstu gjaldmiðla heimsins og taka upp einn sameiginlegan alheimsgjaldmiðil. Viðskipti erlent 21.9.2009 09:08
Spá frekari samdrætti í jólakaupum vestan hafs Fyrstu spár um jólaeyðslu Bandaríkjamanna eru komnar í hús og telja sérfræðingar Deloitte að hinn almenni neytandi muni halda fast um budduna frekar en hitt. Viðskipti erlent 21.9.2009 09:03
Karen Millen langar að kaupa Karen Millen af Kaupþingi Tískudrottningin Karen Millen hefur áhuga á því að kaupa tískuverslanakeðjuna Karen Millen af skilanefnd Kaupþings. Millen stofnaði keðjuna árið 1981 og var þá aðeins með 100 pund milli handanna. Viðskipti erlent 21.9.2009 08:39
AGS selur 400 tonn af gulli fyrir 1.600 milljarða Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur ákveðið að selja yfir 400 tonn af gullforða sínum. Verðmæti þessa gulls er um 13 milljarðar dollara, eða rúmlega 1.600 milljarðar kr. Viðskipti erlent 21.9.2009 08:27
Landstjóri Guernsey fagnar málshöfðun gegn neyðarlögunum Lyndon Trott landstjóri á Guernsey segir að hann fagni fyrirhuguðu dómsmáli innistæðueigenda í útibúi Landsbankans á eyjunni. Ennfremur muni stjórnvöld á eyjunni styðja við bakið á innistæðieigendunum fari mál þeirra fyrir íslenska dómstóla. Viðskipti erlent 21.9.2009 08:00