Grunaður um höfuðkúpubrot 10. ágúst 2004 00:01
Karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi á Akureyri grunaður um að hafa höfuðkúpubrotið annan mann og veitt honum fleiri áverka. Fórnarlambið var lagt inn á gjörgæsludeild. Neyðarlínunni var aðfararnótt síðastliðins fimmtudags tilkynnt um slys í Öxnadal og að karlmaður á fertugsaldri hefði misst meðvitund. Þegar lögregla kom á staðinn voru þar tvær manneskjur auk hins slasaða. Fólkið á staðnum sagði manninn hafa fallið á veginn og slasast þegar hann fór út úr bílnum eftir að til deilna kom. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús á Akureyri þar sem í ljós kom að hann var höfuðkúpubrotinn og blætt hafði inn á heila hans, auk þess sem hann var bæði kinn- og nefbeinsbrotinn og var hann lagður inn á gjörgæsludeild. Hann hefur nú verið fluttur á handlækningadeild. Við frekari rannsókn kom í ljós að atburðarrásin hafði verið með öðrum hætti en upphaflega var lýst og að fleiri hefðu verið á staðnum þegar maðurinn hlaut áverkana. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í kjölfarið og var úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um að vera valdur að áverkum mannsins. Að sögn lögreglunnar eru hinn grunaði og fórnarlambið Akureyringar og hafa komið við sögu lögreglu áður í tengslum við fíkniefnamál.
Dómsmál Fréttir Innlent Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira