Gera allt til þess að tækla þetta 4. apríl 2005 00:01
Mikla athygli vakti þegar leikmönnum úr körfuknattleiksliði ÍR var hótað með SMS-sendingum meðan á undanúrslitunum í Intersportdeildinni stóð þar sem liðið átti í höggi við Keflavík. Þetta er annað árið í röð þar sem stuðningsmenn úr röðum Keflvíkinga eru staðnir að slíkum sendingum en Hlynur Bæringsson, leikmaður Snæfells, mátti þola hótanir með sama hætti á síðasta ári þegar Snæfell mætti Keflavík í úrslitum. "Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að tækla þetta mál," sagði Hermann Helgason, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur. "Þetta viljum við ekki sjá í körfuboltanum, hvort sem það er tengt okkar liði eða einhvers annars. Við höfum orðið okkur úti um þessi símanúmer sem hringt var úr til leikmanna ÍR-liðsins en því miður voru engin nöfn skráð þar á bak við." Hermann segir athæfið setja dökkan blett á íþróttina og að stjórn Keflavíkur harmaði að þetta hafi átt sér stað. "Þetta er því miður alþekkt þegar menn eru komnir í úrslitin og líklegt að þarna séu á ferðinni aðilar sem að sækja ekki leiki. Það þarf ekkert endilega að vera að þetta séu Keflvíkingar heldur," sagði Hermann sem fullyrti að þetta væri ekkert nýtt af nálinni. "Menn á borð við Teit Örlygsson og Jón Kr. Gíslason þurftu að þola símhringingar á nóttu sem degi þegar Keflavík og Njarðvík mættust í úrslitum hér áður. Svona mál á náttúrlega að útkljá á vellinum en ekki með svona leiðindum. Við stöndum ekki fyrir svona hlutum," sagði Hermann.
Körfubolti Mest lesið Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Körfubolti Eiður Smári sá son sinn leggja upp mark á móti Chelsea Fótbolti Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Körfubolti Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Enski boltinn Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Fótbolti Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Golf „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Hann gerir einhvern veginn alla í kringum sig betri“ Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Súrt tap í framlengdum leik hjá Tryggva Snæ og félögum Thuram skaut Inter í toppbaráttuna „Áfram Breiðablik, það er það eina sem ég veit núna“ Einkunnir stórleiksins á Hlíðarenda: Telma og vörn Blika bar af Hrafnhildur Ása efnilegust og Telma hlaut gullhanskann Óðinn Þór öflugur „Ótrúlega stolt af hópnum hvernig við nálguðumst þetta tímabil“ „Þessi er klárlega mjög sérstakur“ „Agla María hélt liðsfund eftir þann leik og hvatti liðið áfram“ Pickford bjargaði stigi Valverde sá til þess að Real var ekki í vandræðum með Villareal Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Lið Hildar yfir gegn meisturunum í hálfleik en töpuðu með sjö „Ef Andri hefði náð að haldast heill þá værum við ekki að berjast fyrir lífi okkar“ Áhorfendamet slegið í úrslitaleiknum Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 0-1 | Gestirnir taka bronsið Þægilegt hjá Þrótti í Krikanum Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Risasigrar hjá Val og Haukum Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Pétur gerir tvær breytingar á liði Vals Lið Cecilíu jafnaði undir lokin og er enn taplaust Sandra María valin best Helena tekin inn í heiðurshöll TCU „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn