Sport

Garcia Evrópumeistari

Spánverjinn Sergio Garcia vann sigur á Evrópska meistaramótinu í golfi sem lauk í Sviss í gær. Sigur Spánverjans var naumur en hann lauk leik samtals á fjórtán höggum undir pari. Svíinn Peter Gustafsson var annar höggi á eftir Paul Casey þriðji. Þetta var fyrsta mótið sem gefur stig til þáttöku í Ryder keppninni á næsta ári. Þetta var sjötti sigur Garcias á Evrópsku mótaröðinni og annar sigur hans á árinu en hann hrósaði sigri á móti í Bandaríkjunum fyrr á árinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×