Erlent

Heiðruðu konung rokksins

Opinberri kveðjuheimsókn Junichiros Koizumi, forsætisráðherra Japans, til Bandaríkjanna lauk á léttari nótunum, þegar George W. Bush Bandaríkjaforseti bauð þessum japanska samherja sínum í heimsókn til Gracelands, seturs Elvis Presley.

Koizumi er mikill Elvisaðdáandi og þakkaði bandarísku þjóðinni opinberlega fyrir dægurlagið Love Me Tender í lok blaðamannafundar á dögunum.

Opinberlega er hann hér til að heimsækja forsetann, en ég veit að hápunktur heimsóknarinnar verður þegar hann vottar konunginum virðingu sína, lét Bush hafa eftir sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×