Telja ekki tilefni til aðgerða 20. júlí 2006 06:45 Ein flugvéla landsflugs Framkvæmdastjóri hjá Landsflugi segir niðurstöðu nefndarinnar í samræmi við það sem félagið hafi þegar vitað.
Starfshópur heilbrigðisráðuneytisins sem falið var að gera úttekt á sjúkraflugi í Vestmannaeyjum skilaði bráðabirgðaniðurstöðu á dögunum. Samkvæmt henni hefur flugrekstrarfélagið Landsflug, sem sér um sjúkraflug í Eyjum, staðist settan viðbragðstíma í öllum þeim 33 sjúkraflugum sem farið hafa þaðan frá áramótum, utan eins þar sem viðbragðstíminn var fimm mínútum lengri en leyfilegt er. Ekki þykir tilefni til tafarlausra aðgerða af hálfu ráðuneytisins. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem bað um að úttektin yrði gerð, segir ekki öll kurl komin til grafar. „Ég tek strax eftir því að í skýrsluna vantar tvö sjúkraflug þar sem lífshætta skapaðist vegna fjarveru sjúkraflugvélar og tafa á viðbragðstíma,“ segir hann. „Við munum gefa umsögn um skýrsluna og ég vona að lokaniðurstaðan verði önnur en þessi.“ Rúnar Fossádal Árnason, framkvæmdastjóri hjá Landsflugi, segir niðurstöðuna í takt við það sem hafi verið vitað. „Við skiljum ekkert í því að bæjarstjórinn og aðrir í Eyjum séu að æsa sig yfir þessu án þess að kynna sér báðar hliðar málsins,“ segir Rúnar.
Innlent Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira