Stálu 10 til 15 milljónum 21. júlí 2006 07:00 „
Þetta reyndust ekki nógu nákvæmar upplýsingar sem lögregla veitti Fréttablaðinu. Hið rétta er að þær upphæðir sem stolið hefur verið úr heimabönkum fólks nema tíu til fimmtán milljónum króna,“ sagði Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær eru fjögur umfangsmikil þjófnaðarmál úr heimabönkum til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík. Grunur lék á að um peningaþvætti væri að ræða í sumum tilvika. Rannsókninni hefur miðað vel og er hún nú á lokastigi. Samkvæmt fyrstu upplýsingum Fréttablaðsins um upphæðir þær sem millifærðar höfðu verið af reikningum fólks var um nær tuttugu milljónir króna að ræða. Við nánari samantekt lögreglu kom í ljós að upphæðin nemur tíu til fimmtán milljónum króna. Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, segir varðandi skaða fólks að það sé í raun hvers banka fyrir sig að meta hvernig brugðist sé við. Hins vegar hafi meginlínan verið sú að ef ekkert benti til gáleysis viðskiptavinar við meðferð bankaupplýsinga fengi hann skaðann bættan.
Innlent Mest lesið Dr. Bjarni er látinn Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Erlent Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Erlent Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Innlent Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Erlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Fleiri fréttir Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Sjá meira