Nýskipaður starfshópur, sem heyrir undir félagsmálaráðuneytið, á að kanna hvort þörf sé á að semja heildstæða löggjöf um frístundahús eða réttarstöðu eigenda og íbúa slíkra húsa.
Slík löggjöf gæti tekið til samskipta sveitarfélaga og sumarhúsaeigenda, rétts sumarhúsaeigenda gagnvart landeigendum, skipulags þjónustu á vegum opinberra aðila og öryggis þeirra sem dvelja í frístundahúsum.
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum til ráðherra fyrir 1. mars árið 2007.