Keflavíkurflugvöllur Umferð um aðalhlið varnarsvæðisins á Miðnesheiði hefur verið hætt. Hliðið var tekið í notkun í mars 2005, fyrir fimmtán mánuðum. Kostnaður við framkvæmdir vegna þess nam rúmum 130 milljónum króna en reist voru ný varðskýli og bygging fyrir vegabréfaumsýslu auk breytinga á bílastæðum og girðingu.
Umferð inn á varnarsvæðið verður eftirleiðis um svonefnt Grænáshlið.
Ekki náðist í Jóhann R. Benediktsson, sýslumann á Keflavíkurflugvelli, til að inna hann eftir ástæðum breytinganna.
Innlent