Innlent

Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Stefnt er á að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum fyrir jól. 
Stefnt er á að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum fyrir jól.  Samsett

Skíðaáhugafólk er eflaust farið að hlakka til vetursins í fjallinu líkt og starfsmenn Bláfjalla. Rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu segir stefnt á að opna Bláfjöll fyrir jól en enn hefur ekki fryst nægilega til að hefja snjóframleiðslu. 

„Við bara erum bara klárir í startholunum og bíðum þangað til við fáum nægilegt frost,“ Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu. Stefnt sé að því að opna fyrir jól, „og ef það er 1. desember er það bara geggjað,“ segir Einar. 

Er þetta fjórði veturinn sem Bláfjöll nota snjóframleiðslukerfi til þess að lengja opnunartíma vetursins. Snjóframleiðsluvélarnar hafi reynst afskaplega vel. 

„Þetta hefur bara bjargað síðustu árum þegar er verið að gefa okkur svona milli 12 og 15 aukadaga.“

Síðasta vetur hafi snjórinn þó ekki látið sjá sig fyrr en í lok febrúar. Enn eitt árið hafi mikilvægi snjóframleiðslunnar sannað sig þó að það hafi sannarlega ekki verið eins augljóst og síðustu vetur.

Sjá einnig: Ó­venju­legu tíma­bili að ljúka

„Það er náttúrulega einstakt að það komi varla náttúrulegt snjókorn vetrarmánuðina sjálfa, nóvember, desember, janúar og nánast allan febrúar. Og ekki nóg með það, hitastigið þessa mánuði var það hátt að nánast aldrei gaf til snjóframleiðslu,“ segir á síðu skíðasvæðanna um síðasta vetur. 

„Við vorum tvisvar tilbúnir, búnir að troða fyrir jól og græja allt saman. Þá kom hvað, þriggja vikna rigning?,“ segir Einar. 

Þannig þið vonist eftir betri vetri í ár? 

„Já, við eigum það bara skilið. Við skulum orða það þannig,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri skíðasvæðanna.


Tengdar fréttir

Von á byltingu í Blá­fjöllum í vetur

Í morgun snjóaði í Bláfjöllum. Þó ekki nóg til að opna brekkurnar en rekstrarstjóri segir fólk eiga von á góðu í vetur. Það styttist í opnun og að nýja snjóframleiðslukerfið verði tekið í notkun. 

Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum

Stefnt er á að hefja snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli við Akureyri á föstudaginn. Þar með styttist í að skíðasvæðið verði opnað fyrir almenningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×