Skoðun

Framlög til LÍN hækkuð

Nú á dögunum voru samþykkt fjárlög fyrir árið 2007 frá Alþingi. Miðað við fjárlög 2006 voru framlög til LÍN hækkuð um 767 m.kr. Framalög úr ríkissjóði til LÍN verða samtals 5.244 m.kr. og hafa aldrei áður verið hærri eða hækkað jafn mikið milli ára.

Sjóðurinn stendur traustari fótum en nokkru sinni fyrr og hefur ekki áður átt jafn stóran þátt og nú í að tryggja jafnrétti til náms, að stuðla að samkeppni og árangursríku skólastarfi og þar með innkomu vel menntaðs fólks, alls staðar að úr heiminum, inn á íslenskan vinnumarkað.

Það er því dapurlegt að sjá fulltrúa námsmanna koma inn á ritvöllinn og harma niðurskurð á framlögum til LÍN, sbr. málflutning framkvæmdastjóra Stúdentaráðs HÍ hér í blaðinu föstudaginn 15. desember sl. Þeir sem hafa valið þennan fulltrúa til trúnaðarstarfa hafa í það minnsta fengið það staðfest að hann skirrist ekki við að fórna heildarhagsmunum námsmanna fyrir pólitíska sérhagsmuni. Sem væntanlegur frambjóðandi til Alþingis verður hann í það minnsta Samfylkingunni ekki til sóma.

Framkvæmdastjóri Stúdentaráðs HÍ vissi þegar hann skrifaði blaðagreinina að hér var ekki um niðurskurð að ræða. Hann vissi að með samþykkt fjárlaga var um útgjaldaaukningu milli ára að ræða og að breytingin við þriðju umræðu var einungis leiðrétting á áætlaðri framlagsþörf.

Hann vissi að stærstur hluti útgjaldaaukningarinnar til LÍN var vegna breytinga á úthlutunarreglum sjóðsins, sem gert var samkomulag um milli fulltrúa stjórnvalda og námsmanna síðastliðið sumar. Hann vissi einnig að með leiðréttingunni var ekki verið að hrófla við 617 m.kr. útgjaldaaukningunni sem samkomulagið gerði ráð fyrir.

Leiðréttingin var fyrst og fremst vegna minni fjölgunar lánþega en fyrri áætlun hafði gert ráð fyrir. Lækkunin, sem fulltrúi SHÍ bar á torg, átti því ekkert skilt við niðurskurð. Fyrir ári síðan fjölgaði t.d. lánþegum umfram áætlun og var framlag til sjóðsins þá hækkað umyrðalaust til samræmis við það.

Fullt traust milli stjórnar LÍN og fjárveitingarvaldsins á stóran þátt í sterkri fjárhagsstöðu LÍN í dag. Þetta traust byggir meðal annars á því að fjárhagsáætlun sjóðsins sé endurskoðuð vegna ytri breytinga hvort heldur þær leiða til hækkunar eða lækkunar. Afstaðan sem skín í gegnum málflutning framkvæmdastjóra SHÍ er því ekki upp á marga fiska. Það er ekki vitnisburður um vönduð vinnubrögð að vilja halda afgangi vegna ofáætlunar útgjalda og samtímis ekkert vilja vita af vanda sem fylgir því þegar útgjöld hafa verið vanáætluð. Og það sem verra er; afstaða sem þessi grefur undan nauðsynlegu trauti og getur stefnt heildarhagsmunum námsmanna í voða.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×