Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar 26. október 2026 13:32 Frakkland er stundum nefnt sem fyrirmyndarríki í íslenskri umræðu vegna öflugs velferðarkerfis. Því fylgir þó sjaldnast lýsing á því hvernig það er fjármagnað eða hvort tekjurnar standi undir útgjöldunum. Sú spurning verður sífellt áleitnari. Í síðustu viku fór ávöxtunarkrafa tíu ára franskra ríkisskuldabréfa yfir 5%, í fyrsta sinn síðan 2002. Vaxtamunurinn gagnvart sambærilegum þýskum bréfum varð um 1,7 prósentustig. Þótt krafan hafi síðan lækkað lítillega er viðvörunin skýr: Fjárfestar krefjast hærri greiðslu fyrir að lána franska ríkinu. Frakkland og Þýskaland nota sömu evru. Sameiginlegur gjaldmiðill tryggir þeim samt ekki sömu lánskjör. Skuldir, tekjur og geta stjórnvalda til að ráða við ríkisfjármálin skipta áfram máli. Velferð þarf traustan tekjugrunn Samkvæmt frönsku hagstofunni fóru um 57% opinberra útgjalda árið 2024 til velferðarmála, þar á meðal lífeyrisgreiðslna og heilbrigðisþjónustu. Aukning lífeyris- og heilbrigðisútgjalda skýrði jafnframt stærstan hluta útgjaldaaukningarinnar það ár. Sé þetta sett í nánara samhengi sést að árið 2025 námu opinber útgjöld 57,3% af landsframleiðslu en opinberar tekjur 52,2%. Með öðrum orðum vantaði sem nam 5,1% af landsframleiðslu til að ná endum saman. Mismunurinn bætist við skuldirnar sem voru ærnar fyrir. Þeir sem mæra franska velferðarkerfið þurfa að horfast í augu við báðar hliðar þess. Hægt er að veita umfangsmikla þjónustu og greiða háar bætur um tíma með lántökum. Skattstofnar eru heldur ekki óþrjótandi auðlind þótt vel uppbyggð opinber þjónusta geti stuðlað að verðmætasköpun. Menntun, heilbrigði og góðir innviðir skipta þar miklu. En skattheimta hefur líka áhrif á ákvarðanir fólks og fyrirtækja. Aukin skattbyrði getur dregið úr hvata til vinnu, fjárfestinga og atvinnurekstrar. Þá veikist einmitt sá tekjugrunnur sem velferðarkerfið þarf að byggjast á. Viðvarandi halli verður því ekki sjálfkrafa leystur með því að hækka skatta enn frekar. Þetta á ekki bara við ríkissjóð Frakklands. Hver bjargar bjargvættinum? Norski hagfræðingurinn Christian Anton Smedshaug fjallaði nýlega um stöðu Frakklands í færslu á samfélagsmiðlum. Hann bendir á að hættan geti nú verið að færast til. Fyrir fjármálakreppuna sem hófst árið 2007 voru veik húsnæðislán og viðkvæmir bankar í miðju vandans. Nú beinist athyglin að ríkisfjármálunum. Ríkissjóður er gjarnan flautaður inn á völlinn þegar áföll verða. Opinber útgjöld eiga að verja heimili, styðja fyrirtæki og tryggja stöðugleika. En hversu mikið svigrúm hafa ríkin ef þau ganga sjálf inn í næsta áfall með miklar skuldir og viðvarandi rekstrarhalla? Opinberar skuldir Frakklands voru komnar í 119% af landsframleiðslu um mitt þetta ár. Hærri markaðsvextir leggjast ekki strax á allan skuldastofninn, en þeir hækka kostnað nýrrar lántöku og endurfjármögnunar eftir því sem eldri lán falla á gjalddaga. Þannig getur myndast vítahringur. Veikur hagvöxtur takmarkar tekjurnar. Hallinn kallar á meiri lántöku. Vaxtagreiðslurnar hækka og þrengja að þjónustu og fjárfestingum. Innan evrusvæðisins geta einstök ríki heldur ekki brugðist við með eigin gengisaðlögun. Þrýstingurinn á aðrar aðlögunarleiðir verður þeim mun meiri. Í greininni Veislunni er lokið var fjallað um veikingu efnahagslíkans Evrópu og vaxandi útgjaldaþörf. Nú verður spurningin um fjármögnunina sífellt brýnni. Velferðarkerfi er ekki traustara en geta samfélagsins til að standa undir því. Þeir sem benda á Frakkland sem fyrirmynd þurfa því að svara einfaldri spurningu: Hvernig á að greiða reikninginn? Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Sjá meira
Frakkland er stundum nefnt sem fyrirmyndarríki í íslenskri umræðu vegna öflugs velferðarkerfis. Því fylgir þó sjaldnast lýsing á því hvernig það er fjármagnað eða hvort tekjurnar standi undir útgjöldunum. Sú spurning verður sífellt áleitnari. Í síðustu viku fór ávöxtunarkrafa tíu ára franskra ríkisskuldabréfa yfir 5%, í fyrsta sinn síðan 2002. Vaxtamunurinn gagnvart sambærilegum þýskum bréfum varð um 1,7 prósentustig. Þótt krafan hafi síðan lækkað lítillega er viðvörunin skýr: Fjárfestar krefjast hærri greiðslu fyrir að lána franska ríkinu. Frakkland og Þýskaland nota sömu evru. Sameiginlegur gjaldmiðill tryggir þeim samt ekki sömu lánskjör. Skuldir, tekjur og geta stjórnvalda til að ráða við ríkisfjármálin skipta áfram máli. Velferð þarf traustan tekjugrunn Samkvæmt frönsku hagstofunni fóru um 57% opinberra útgjalda árið 2024 til velferðarmála, þar á meðal lífeyrisgreiðslna og heilbrigðisþjónustu. Aukning lífeyris- og heilbrigðisútgjalda skýrði jafnframt stærstan hluta útgjaldaaukningarinnar það ár. Sé þetta sett í nánara samhengi sést að árið 2025 námu opinber útgjöld 57,3% af landsframleiðslu en opinberar tekjur 52,2%. Með öðrum orðum vantaði sem nam 5,1% af landsframleiðslu til að ná endum saman. Mismunurinn bætist við skuldirnar sem voru ærnar fyrir. Þeir sem mæra franska velferðarkerfið þurfa að horfast í augu við báðar hliðar þess. Hægt er að veita umfangsmikla þjónustu og greiða háar bætur um tíma með lántökum. Skattstofnar eru heldur ekki óþrjótandi auðlind þótt vel uppbyggð opinber þjónusta geti stuðlað að verðmætasköpun. Menntun, heilbrigði og góðir innviðir skipta þar miklu. En skattheimta hefur líka áhrif á ákvarðanir fólks og fyrirtækja. Aukin skattbyrði getur dregið úr hvata til vinnu, fjárfestinga og atvinnurekstrar. Þá veikist einmitt sá tekjugrunnur sem velferðarkerfið þarf að byggjast á. Viðvarandi halli verður því ekki sjálfkrafa leystur með því að hækka skatta enn frekar. Þetta á ekki bara við ríkissjóð Frakklands. Hver bjargar bjargvættinum? Norski hagfræðingurinn Christian Anton Smedshaug fjallaði nýlega um stöðu Frakklands í færslu á samfélagsmiðlum. Hann bendir á að hættan geti nú verið að færast til. Fyrir fjármálakreppuna sem hófst árið 2007 voru veik húsnæðislán og viðkvæmir bankar í miðju vandans. Nú beinist athyglin að ríkisfjármálunum. Ríkissjóður er gjarnan flautaður inn á völlinn þegar áföll verða. Opinber útgjöld eiga að verja heimili, styðja fyrirtæki og tryggja stöðugleika. En hversu mikið svigrúm hafa ríkin ef þau ganga sjálf inn í næsta áfall með miklar skuldir og viðvarandi rekstrarhalla? Opinberar skuldir Frakklands voru komnar í 119% af landsframleiðslu um mitt þetta ár. Hærri markaðsvextir leggjast ekki strax á allan skuldastofninn, en þeir hækka kostnað nýrrar lántöku og endurfjármögnunar eftir því sem eldri lán falla á gjalddaga. Þannig getur myndast vítahringur. Veikur hagvöxtur takmarkar tekjurnar. Hallinn kallar á meiri lántöku. Vaxtagreiðslurnar hækka og þrengja að þjónustu og fjárfestingum. Innan evrusvæðisins geta einstök ríki heldur ekki brugðist við með eigin gengisaðlögun. Þrýstingurinn á aðrar aðlögunarleiðir verður þeim mun meiri. Í greininni Veislunni er lokið var fjallað um veikingu efnahagslíkans Evrópu og vaxandi útgjaldaþörf. Nú verður spurningin um fjármögnunina sífellt brýnni. Velferðarkerfi er ekki traustara en geta samfélagsins til að standa undir því. Þeir sem benda á Frakkland sem fyrirmynd þurfa því að svara einfaldri spurningu: Hvernig á að greiða reikninginn? Höfundur er hagfræðingur.
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun