Erlent

Árásum á Gaza haldið áfram

MYND/AP

Ísraelskar herþotur gerðu í nótt árásir á ýmis skotmörk á Gaza-svæðinu, þar á meðal innanríkisráðuneyti heimastjórnar Palestínumanna og skrifstofur Fatah-hreyfingar Abbas, forseta, í Gaza-borg. Einn Palestínumaður er sagður hafa fallið.

Enn er ekkert vitað um hvar ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit, sem rænt var á sunnudaginn, er í haldi og því halda aðgerðir Ísraelshers á Gaza-svæðinu áfram. Ísraelsk stjórnvöld hafa heitið því að herlið verði dregið til baka um leið og Shalit verði skilað heilu og höldnu.

Fjölmiðlar í Egyptalandi hafa eftir Hosni Mubarak, Egyptalandsforseta, að þeir herskáu Palestínumenn sem haldi Shalit hafi boðist til að láta hann lausan að uppfylltum ótilgreindum skilyrðum. Ísraelar hafa ekki brugðist við þeim fréttum eða greint frá því hafa skilyrði hafi verið sett fyrir lausn hans önnur en þau að palestínskum konum og börnum verði sleppt úr ísraelskum fangelsum, en sú krafa var gerð fyrr í vikunni. Ísraelar hafa krafist þess að Shalit verði látinn laus án nokkurra skilyrða. Egypskir sendifulltrúar hafa, að sögn BBC, unnið baki brotnu síðustu daga við að reyna að semja um lausn hermannsins unga.

Það var í gær sem fjölmargir þingmenn Hamas-samtakanna, þar á meðal þriðjungur ráðherra í heimastjórn Palestínumanna, voru teknir höndum. Var talið að reynt yrði að skipta á þeim og Shalit en því neita ísraelsk stjórnvöld og segja þá hafa verið tekna höndum þar sem Hamas-liðarnir væru grunaðir um aðild að hryðjuverkum.

Þar sem deilan er enn í hnút halda aðgerðir Ísraelsmanna á Gaza-svæðinu áfram og í nótt gerði Ísraelsher loftárásir á ýmis skotmörk á Gaza. Bygging innanríkisráðuneytis heimastjórnarinnar er mikið skemmd. Sprengjum var einnig varpað á skrifstofu Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, í Gaza-borg. Einn Palestínumaður er sagður hafa fallið í árásunum. Herlið á jörðu niðri er við landamærin að Gaza, bæði í norðri og suðri, en heldur kyrru fyrir á meðan leitað er leiða til að semja um lausn á deilunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×