Erlent

Mannfall við landamærin í Kasmír

Indverskir hermenn skutu átta menn til bana þegar þeir reyndu að smygla sér yfir landamæri indverska og pakistanska hluta Kasmírs-héraðs í morgun. Talsmaður hersins segir mennina hafa verið íslamska vígamenn.

Pakistanar og Indverjar hafa deilt um yfirráð í Kasmír-héraði í áratugi. Tólf andspyrnusveitir hafa haldið uppi skærum þar síðan 1989, en þær berjast ýmist fyrir sjálfstæði héraðsins, eða því að það verði sameinað Pakistan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×