Erlent

Bin Laden gefur frá sér yfirlýsingu

Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkanetsins, sagðist í yfirlýsingu í gær styðja eftirmann Abu Musab al-Zarqawi til að leiða baráttu al-Kaída í Írak. Auk þess varaði hann íraska sjía við að aðstoða bandaríska hernámsliðið í landinu við að knésetja uppreisnarmenn súnnía. Í síðustu viku lofaði hann al-Zarqawi í hástert en það sem af er þessu ári hefur hann alls sent frá sér fimm hljóðupptökur. Langur tími er hins vegar frá því að myndir birtust síðast af Osama bin Laden.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×