Erlent

Látinn eftir umsátur við grunnskóla í Þýskalandi

Grímuklæddur maður vopnaður skambyssu, sem réðst inn í grunnskóla í Emsdetten í vesturhluta Þýskalands í morgun, er látinn. Óvíst er hvort hann féll fyrir eigin hendi eða byssukúlum öryggissveitarmanna sem höfðu umkringt skólabygginguna en að sögn BBC var maðurinn með sprengjubelti um sig miðjan.

Samkvæmt Reuters-fréttastofunni tók maðurinn nemendur og kennara í gíslinu og féll einn gíslanna fyrir hendi mannsins. Aðrir miðlar segja hins vegar að enginn gísl hafi týnt lífi og aðeins átta særst lítillega. Árásarmaðurinn mun hafa verið átján ára og fyrrverandi nemandi í skólanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×