Fótbolti

Nesta og Serginho undir hnífinn?

Alessandro Nesta hefur átt í miklum vandræðum með meiðsli á síðustu mánuðum
Alessandro Nesta hefur átt í miklum vandræðum með meiðsli á síðustu mánuðum NordicPhotos/GettyImages
Svo gæti farið að varnarmennirnir Alessandro Nesta og Serginho hjá ítalska liðinu AC Milan þyrftu báðir að fara í aðgerð fljótlega vegna þrálátra meiðsla sem hafa hrjáð þá lengi. Nesta kom inn sem varamaður í leik gegn Messina á dögunum en kenndi sér meins í öxlinni og þarf nú líklega í uppskurð. Sömu sögu er að segja af Serginho, nema hvað hann er meiddur í baki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×