Skoðun

Davíð svarað

Á baksíðu Fréttablaðsins hinn 18. febrúar fer Davíð Þór mikinn, þar fer hann með rakalausan þvætting um Frjálslynda flokkinn: „Sá flokkur sem erfiðast er að tengja frjálslyndi í einhverri óbrjálaðri merkingu orðsins kallar sig Frjálslynda. Þar virðast allir velkomnir sem hrekjast úr öðrum flokkum vegna óvinsælda."

Hefurðu lesið málefnahandbók flokksins Davíð Þór? Ef ekki hvernig leyfir þú þér að tala svona?

Það virðist vera lenska í dag að tengja allt sem einstakir menn segja, sem skoðun flokksins. Í flokknum er fólk, fólk með misjafnar skoðanir.

Eða segja menn að Sjálfstæðisflokkurinn hafi þá skoðun að ef menn fá ekki sætustu stelpuna á ballinu, þá taki þeir bara þá næstsætustu með sér heim ?

Og hvað varðar Valdimar Leó, var hann ekki Samfylkingarmaður þangað til bara núna nýlega. Þannig að það sé þá líka skoðun Samfylkingarinnar sem hann boðar þarna. Varla hefur hann skipt um skoðun.

En það eru lokaorðin sem ég ætla að ræða hér. Og ég ætla að gera meira, ég ætla að fara fram á að þú Davíð Þór biðjir mig og samflokksmenn mína afsökunar á þessum orðum. Þetta eru staðlausir stafir og kjaftæði.

„Í huga frjálslyndra eru fíklar hins vegar ekki bara glæpamenn heldur beinlínis hryðjuverkamenn. Eina ráðið sem þeir kunna er að refsa fleirum þyngra, lengur og harðar. Væntanlega í þeirri trú að nýliðun í stétt smyglara sé engin, að fíkniefni hverfi af markaði bara ef nógu mörgum er stungið inn nógu lengi. Það hefur víða verið reynt og hvergi skilað öðru en hörmungum.

Fársjúkt fólk á rétt á skilningi og aðstoð. Frjálslyndir bjóða því Litla-Hraun."

Ég skal segja þér að ég hef yfir 20 ár þurft að berjast fyrir syni mínum. Og var lengi vel eina manneskjan sem trúði á hann og barðist fyrir því að hann ætti mannréttindi. Það virðist nefnilega vera svo að ógæfufólk er ekki álitið fólk sem á rétt á mannlegri reisn. Hefur ekkert með Frjálslynda flokkinn að gera. Þannig að það eru algjör öfugmæli sem þú setur fram þarna. Hræsni og lygi tróna hátt í þessum skrifum þínum. Margir þykjast vera þess umkomnir að dæma heilan flokk út frá einstaka mönnum, og jafnvel einni fyrirsögn.

Ég krefst þess hér með að þú biðjir mig afsökunar á þessum ummælum þínum. Og þú ættir ef til vill að lesa aftur í Biblíunni þinni. Þar stendur ýmislegt sem þú mátt alveg tileinka þér, eins og að „sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum".

Höfundur er móðir og varamaður í miðstjórn Frjálslynda flokksins.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×