Viðskipti erlent

Forstjórinn fékk væna launahækkun

Forstjóri stillir sér upp. Stuart Rose, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Marks & Spencer, fékk jafnvirði 990 milljóna króna í laun og aðrar greiðslur í fyrra.
Forstjóri stillir sér upp. Stuart Rose, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Marks & Spencer, fékk jafnvirði 990 milljóna króna í laun og aðrar greiðslur í fyrra. Markaðurinn/AFP

Stuart Rose, forstjóri bresku verslanakeðjunnar Marks & Spencer, ætti að hafa tilefni til að brosa þessa dagana. Rose fékk 7,8 milljónir punda í laun og bónusgreiðslur í fyrra. Þetta jafngildir rúmum 990 milljónum íslenskra króna, sem er 68 prósenta launahækkun á milli ára.

Um þriðjungur var beinar launagreiðslur í reiðufé. Þær námu 2,6 milljónum punda, jafnvirði 330 milljóna króna. Bónusgreiðslurnar eru hámark þess sem hann getur fengið samkvæmt ráðningarsamningi en þær hljóða upp á fjórföld laun.

Rose, sem tók við forstjórastólnum árið 2004, er þakkaður góður árangur verslanakeðjunnar, sem tók skrefið upp á við sama ár og skilaði hagnaðaraukningu upp á tæp 29 prósent í fyrra.

Þrátt fyrir vænt launaumslag á hann enn eitthvað inni því í ráðningarsamningi hans er kveðið á um að hann fái bónusgreiðslur upp á átta milljónir punda, rétt rúman einn milljarð króna, í reiðufé og hlutabréfum aukist hagnaður verslunarinnar um tíu prósent að lágmarki á ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×