Erlent

Bítlarnir og Apple ná sáttum

Apple merkið og Apple Corps hljómplata.
Apple merkið og Apple Corps hljómplata. MYND/AP

Tæknifyrirtækið Apple hefur loksins náð sátt í deilum sínum við Bítlana en þeir eiga útgáfufyrirtæki sem heitir Apple Corps. Allt síðan 1981 hafa Bítlarnir og Apple deilt um réttinn á vörumerkinu Apple.

Bítlarnir hafa ekki enn hafið sölu á tónlist sinni á tónlistarveitum á internetinu. Talið er að fyrst að sátt hafi náðst í málinu verði lög Bítlana brátt til sölu á iTunes, tónlistarveitu Apple.

Árið 2003, þegar Apple hóf að nota iTunes tónlistarverslunina, fóru Bítlarnir í mál við Apple og sögðu þá brjóta vörumerkjalög. Dómarinn í málinu sagði hins vegar að þar sem Apple byggi ekki til tónlist heldur sæi um að miðla henni, gæti fyrirtækið haldið nafni sínu.

Fréttavefur BBC skýrði frá þessu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×