Erlent

Geimfari reyndi að ræna keppinaut

Ástir í geimnum urðu kveikjan að mannránstilraun í Bandaríkjunum í gær. Geimfarinn Lisa Nowak lagði á sig langferð frá Houston til Orlando svo hún gæti rænt konu sem hún óttaðist að hefði stolið elskunni sinni frá sér. Nowak gæti átt yfir höfði sér lífstíðar fangelsi.

Nowak var handtekin í gær og ákærð fyrir tilraun til mannráns og morðtilraun. Hún hafði að eigin sögn fellt hug til starfsbróður síns, Williams Oefelein, en samband þeirra var ekki náið. Þegar hún hafi orðið áskynja um náið samband milli Oefeleins og Collen Shipman, sem er verkfræðingur hjá Bandarísku geimferðastofnuninni, hafi hún fundið sig knúna til að ná tali af Shipman. Því hafi hún lagt af stað í 1.600 kílómetra ferðalag á bíl sínum frá Houston til Orlando, þar sem Shipman var. Nowak klæddist hárkollu og rykfrakka svo kennsl yrðu ekki borin á hana og var með bleyju til að sleppa við salernisstopp á leiðinni.

Þegar Nowak réðst að Shipman, hljóp sú síðarnefnda inn í bíl sinn en renndi niður bílrúðunni þegar Nowak fór að gráta. Þá sprautaði Nowak piparspreyi framan í Shipman og reyni að hafa hana á brott með sér. Shipman tókst þá að aka á brott og lét lögreglu vita sem handtók Nowak. Hún hafði haft loftriffil og stálkylfu meðferðis og í bíl hennar fundust útprentuð töluvskeyti milli Oefeleins og Shipmans.

Samkvæmt upplýsingum frá NASA höfðu Nowak og Oefeleins ekki farið í geimferð saman en sitt í hvoru lagi höfðu þau bæði farið ferðir í alþjóðlegu geimstöðina.

Nowak er gift og þriggja barna móðir en Oefeleins ókvæntur. Verði Nowak sakfelld gæti hún átt yfir höfði sér lífstíðar fangelsisdóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×