Erlent

Gates vonast eftir hermönnunum heim fyrir áramót

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.
Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. MYND/AP
Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að hann vonaðist eftir því að bandarískir hermenn gætu snúið á heim á leið fyrir lok þessa árs. Þetta kom fram á fundi sem hann átti með hermálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins í kvöld.

Gates var ekki ánægður með tillöguna sem reynt var að koma í gegn í öldungadeildinni í gær en hún hefði lýst yfir óánægju með aukningu hermanna í Írak. Tillagan var felld. Demókratar láta það þó ekki á sig fá og segja nú að verið sé að láta bandaríska hermenn berjast í borgarastyrjöld í Írak.

Fulltrúadeild bandaríska þingsins mun greiða atkvæði um samskonar tillögu í næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×