Erlent

Hnepptu mæðgur í þrældóm og pyntuðu

Frá Ungverjalandi; Búdapest.
Frá Ungverjalandi; Búdapest.

Fimmtíu og fimm ára gömul ungversk kona er látin eftir að nágrannar hennar pyntuðu hana og þrítuga dóttur hennar svo mánuðum skipti. Einn karlmaður og tvær konur hafa verið handteknar vegna málsins. Þetta gerðist í litlu þorpi í miðju Ungverjalandi.

Að sögn lögreglunnar virðast nágrannarnir hafa hneppt mæðgurnar í þrældóm. Þeir hirtu af þeim alla peninga og neyddu þær til þess að fara í sendiferðir og þrífa hús sitt. Konurnar voru svo hræddar að þær þorðu ekki að biðja um aðstoð. Lögreglan segir að nágrannarnir hafi barið mæðgurnar, skorið þær, brennt þær og neglt þær við veggi.

Móðirinn dó þegar brotið rifbein stakkst í gegnum lunga hennar eftir að hún var barin með kústskafti. Í fyrstu sagði dóttirin að hún hefði orðið móður sinni að bana, af ótta við frekari pyntingar. Hún var hinsvegar sjálf svo illa útleikin að lögreglan trúði henni ekki og komst að hinu sanna við yfirheyrslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×