Erlent

Seldi 10 ára dóttur sína

Það verða varla margir Valentínusardagar í lífi telpunnar sem faðirinn seldi fyrir augnaðgerð á sjálfum sér.
Það verða varla margir Valentínusardagar í lífi telpunnar sem faðirinn seldi fyrir augnaðgerð á sjálfum sér. MYND/AP

Pakistanskur maður seldi tíu ára gamla dóttur sína fyrir 350.000 krónur til þess að borga augnaðgerð fyrir sjálfan sig. Talsmaður lögregelunnar í þorpinu þar sem þetta gerðist segir að faðirinn hafi lofað að afhenda öðrum þorpsbúa dóttur sína þegar hún næði kynþroskaaldri.

Lögreglan komst í málið vegna þess að ættingjar telpunnar leituðu til hennar. Maðurinn verður væntanlega kærður. Mál sem þetta eru ekki óalgeng í sveitum Pakistans þar sem menn annaðhvort selja dætur sínar eða láta þær upp í skuld eða til að jafna einhver ágreiningsmál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×