Erlent

Friðarviðræðum verður fram haldið

Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, á fundi sínum í Jerúsalem í dag.
Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, á fundi sínum í Jerúsalem í dag. MYND/AP

Leiðtogar Ísraels og Palestínumanna ítrekuðu í dag stuðning sinn við stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Olmert, forsætisráðherra Ísraels, Abbas, forseti Palestínumanna, og Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddu friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs í Jerúsalem í morgun.

Sameiginlegur blaðamannafundur var ekki haldinn eftir viðræðurnar en Rice sagði frekari fundi leiðtoganna fyrirhugaða á næstunni og því snúi hún aftur til Mið-Austurlanda innan tíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×