Erlent

007 hlerar vitlausa síma

Daniel Craig hefur aldrei hringt í vitlaust símanúmer, svo vitað sé.
Daniel Craig hefur aldrei hringt í vitlaust símanúmer, svo vitað sé. MYND/AP

Samkvæmt nýrri breskri skýrslu gera leyniþjónustumenn hennar hátignar alltof margar skyssur þessa dagana. Þeir hlera vitlausa síma og gramsa í gegnum póst á heimilisföngum sem löngu hafa skipt um eigendur. Njósnurunum er þó talið það til afsökunar að þeir hafa haft gríðarlega mikið að gera undanfarin ár. Verkefnum þeirra hefur fjölgað langt umfram mannskap, síðan stríðið gegn hryðjuverkum hófst.

Samkvæmt skýrslunni er öllum gögnum sem safnað er saman fyrir mistök samviskusamlega eytt. Þar segir líka að þrátt fyrir skyssurnar gegni starfsbræður 007 lykilhlutverki í vörnum landsins og hafi komið í veg fyrir mörg hryðjuverk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×