Erlent

Viðbúnaður á Norðurbrú

Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur uppi talsverðan viðbúnað vegna boðaðra mótmæla í dag við Jagtvej 69 á Norðurbrú þar sem Ungdomshuset umdeilda stóð áður. Í sms-skeytum sem nú ganga á milli stuðningsmanna hússins sem var rifið í vikubyrjun segir "Farið til Kaupmannahafnar og brennið borgina til grunna."

Búist er við miklum mannfjölda á svæðið, meðal annars segir dagblaðið Politiken að von sé á rútum frá Noregi með mótmælendum. Nokkur mannsöfnuður var á lóð hússins í nótt og handtók lögreglan 37 manns fyrir spellvirki og að raska ró nágrannanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×